Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 4
Eftir sjö ár og tvö börn með ítölsku leikkonunni Luisa Mattioli hefur Dýrlingurinn
__ ROGER MOORE — l°ks fengið skilnað frá fyrri konu sinni, sem hingað til
hefur sífellt ncitað að gefa skilnaðinn eftir. Roger og Luisa giftu sig með það
sama, og skelltu sér í brúðkaupsferð til Frakklands.
Sænska sjónvarpsstjarnan ALICE
BABS átti nýlega silfurbrúðkaupsafmæli,
og þá vitaskuld með manni sínum, Nils-
Ivar Sjöblom. í tilefni Jiessa stórviðburð-
ar brugðu þau sér til Spánar og léku golf.
MARLON BRANDO leikur brczkan
aðalsmann í „Qucmanda", nýrri kvikmynd
sem tekin er í Kólumbíu. Myndin fjallar
um tiltckinn aðalsmann, sem verður skip-
reika á eyðiey, en er bjargað af innfædd-
um. Það á ekki af honum að ganga . ..
JEAN 'GABIN vinnur
nú að nýrri kvikmynd á
Ítalíu, með Alain Delon
í einu aðalhlutverkanna.
Mynd þessi nefnist „Sikil-
eyingarnir“, og þar lcikur
Gabin sjálfur ættarhöfuð
sikileyskrar fjölskyldu,
sem berst í bökkum við
að bjarga hciðri fjölskyld-
unnar. Delon leikur morð-
ingja og Mafíu-leiðtoga,
sem kaupir heilan flug-
vélarfarm af dcmöntum.
Skæðar tungur segja, að
þarna sé Delon alls ekki
svo fjarri raunveruleikan-
um. Þetta er 90. mynd Je-
an Gabin, en hann var
orðinn 30 ára þegar hann
hóf að leika.
CARY GRANT
ennþá aðdáunarstunur
kvenna, hvar sem hann
kemur með sitt silfurgráa
hár og í sparifötunum.
4 VIKAN 26-tbl-