Vikan


Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 11

Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 11
 George Chapman er alltaf í transi, er hann rannsakar sjúklinga eða framkvæmir á þeim aðgerðir. Þá minnir hann í rödd og framkomu á aldraðan mann og er að öllu ólíkur sjálfum sér dagsfarslega. Bernard Iiutton var orðinn óvinnufær sökum sjóndepru, en hefur nú sæmilega sjón og er tekinn til starfa á ný. William Lang læknir dó 1937. Nú George Chapman lítur á sig sem kvað hann framkvæma lækningar verkfæri æðri máttarvalda. gegnum George Chapman. Hann mætti á tilsettum tíma og var vísað inn til manns í hvítum slopp. Sá líktist að vísu myndum, sem birzt höfðu af Chapman miðli í blöðum, en var langtum ellilegri. Hutton sá fyrir sér andlit gamals manns, en hann vissi að Chapman var aðeins rúmlega fertugur. Maðurinn í sloppnum stóð upp, og virtist svo sem hann væri í einskonar dái. — Í5g er Lang læknir, sagði hann, Einnig röddin var ellileg. Hann lét gestinn setjast og byrjaði með að skoða gleraugu hans. — Það var það, sagði hann. — Mínus átján. Það var rétt með farið. Linsurnar í gler- augum Huttons voru mínus átján, en hann hafði ekki látið þess getið. Maðurinn í sloppnum fór nú að þreifa á augum sjúk- lingsins með þumalfingrunum. Eftir andar- tak sagði hann: — Þér hafið verið skorinn upp við sjónskekkju í bernsku. Það hefur tekizt mjög vel. Hutton varð steinhissa. Hvernig gat lækn- ir þessi vitað það? Jafnvel ekki konan hans vissi það. Hann hafði aðeins verið sex óra og átt heima erlendis, í Tékkóslóvakíu, þeg- ar uppskurðurinn var gerður. Rannsóknin hélt áfram og á meðan kom maðurinn í sloppnum stöðugt með hinar og þessar læknisfræðilegar útskýringar á sjúk- leikanum. Hann var fljótur að gizka á að Hutton hlyti að sjá tvöfalt. Eftir að hafa far- ið með fingrum um efri hluta líkamans sagði sloppmaðurinn: — Veiran sem hafði í för með sér sjúk- dóminn, sem læknir yðar taldi lömunarveiki, er farin. En þér hafið annað, einskonar gulu sem hefur áhrif á lifrina. Undrun Huttons jókst nú um allan helming. Hann hafði ekki minnzt einu orði á önnur vandamál sín en sjóndepruna við Chapman. Gæti þetta verið hugsanalestur? datt honum í hug. — Eg kemst ekki hjá að gera á yður augnauppskurð, ungi maður, sagði gamal- mennisröddin. — Þér þurfið ekkert að óttast, því að allir hafa tvo líkami, holdlegan og sálrænan. É'g ætla að skera upp sálræna líkamann og reyna að láta árangurinn koma fram á þeim holdlega. Þér munið heyra mig tala, gefa fyrirmæli og biðja um áhöld. Verið ekki hræddur. Margir starfsbræður mínir munu aðstoða, en þér getið ekki séð þá. Og þér finnið ekki til sársauka. Leggið yður nú útaf þarna á sófann. Hutton lagðist þegar á bakið og hafði aug- un galopin. Sá í sloppnum lyfti höndunum og hreyfði þær á ýmsa vegu yfir augum hans. Sjálfur hafði hann augun lokuð. Hann kreppti fingurna og rétti úr þeim eins og hann héldi til skiptis á áhöldum og legði þau frá sér. Hutton virtist þetta allt saman svo ótrúlegt og fáránlegt, að hann átti erfitt með að stilla sig um að reka upp skellihlátur. — Nú hef ég sálarlíkama yðar fyrir fram- an mig og geri uppskurðinn, sagði læknir- inn. — Nú er ég bakvið augað.... Skyndilega fannst Hutton sem farið væri inn í annað auga sitt, án þess þó að hann finndi til nokkurs sársauka. Chapman snerti hann aldrei, en litlu síðar fannst honum sem sár væru saumuð saman. Þá hætti Hutton að langa til að hlæja. Þegar „uppskurðinum“ var lokið, hafði hann á tilfinningunni að ósýnilegir aðstoðarmenn ræddu aðgerðina sín á milli og styddu sjónarmið læknisins. Svo heyrði Hutton gamalmennisraustina segja að ekki yrði hjá því komizt að taka lifr- arsjúkdóminn einnig til meðferðar, annars kæmi augnauppskurðurinn að engu gagni. Hutton var beðinn að setjast upp. Hann fann Framhald á bls. 32. 26. tbi. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.