Vikan


Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 16

Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 16
ANDRÉS INDRIÐASON Svanhildur syngur „Út við himinbláu sund- in“. Myndin er úr sjónvarpsþættinum „Hér gala gaukar“. Fyrir nokkru kom út ný fjögurra laga hljóm- plata frá Ólafi Gauki og hans góða fólki. Tvö laganna á plötunni er eftir Gauk, eitt eftir Rúnar en fjórða lagið er af erlendum toga. Útsetningar hljómsveitarstjórans eru í sama andanum og á undanfarandi plötum sextettsins; allt er fjarskalega fínt og fágað, gítar og saxófónn klingja saman að vanda og skapa þennan sérstaka hljóm (,,sound“), sem ætíð einkennir hljómsveitina. Spila- mennska hljómsveitarinnar er líka svo pott- þétt, að hvergi er finnanlegur blettur eða hrukka. Sama er raunar að segja um söng Svanhildar og Rúnars. Því miður réttlætir þetta þó ekki þau um- mæli útgefanda aftan á plötuumslagi, að þetta sé tvímælalaust bezta fjögurra laga 16 VIKAN 26- tbL plata sextettsins. Fjarri því. Höfuðgallinn er sá, að það vantar allt líf í músikina. Lag eins og „Út við himinbláu sundin“ er nánast stein- dautt í meðförum hljómsveitarinnar. Hvað veldur? Jú, lagið er skrúfað svo rækilega ofan í útsetninguna og allar dúllurnar, að allur léttleiki er víðs fjarri. Eflaust hefði það líka gert lagið fjörlegra hefðu hljómsveitar- mennirnir tekið undir viðlagið með Svanhildi. Ekkó er notað í miklu óhófi, og er það skilj- anlega til lýta. Sama er að segja um lagið „Tvisvar tveir“, sem er eftir Ólaf Gauk. Lag- línan er mjög skemmtileg, en af sömu ástæðu og fyrr greinir er lagið ekki eins áheyrilegt og orðið gæti. Lagið er upphaflega samið sem „beat“, en í þessari útfærslu er því mið- ur ekki unnt að skilgreina það sem slíkt. Um textann skal ekki fjölyrt að öðru leyti en því, að mér fannst hinn upprunalegi texti, „Táraflóðið", mun betri. Þegar við snúum plötunni við á fóninum, verður fyrst fyrir lagið „Kóngur í Kína“, sem er einnig eftir Ólaf. Þetta er rólegt lag og virkilega fallegt. Hér er útsetningin líka mjög vel við hæfi og skemmtilega útfærð. Sérkennileg rödd Rún- ars nýtur sín vel í þessu lagi og textinn er afbragð. Sem sagt: Gott. Fjórða og síðasta lagið á plötunni er eftir Rúnar Gunnarsson og heitir „Fáð ér sykurmola". Þetta lag er samansett af mjög undarlegum hljómgangi og mjög er það í öðrum dúr en búast hefði mátt við frá Rúnari. Sýnir það ljóst, að Rúnari er ekki alls varnað, og víst er það plús fremur en hitt að eiga fleiri en eina hlið. Sjálfsagt á Ólafur Gaukur líka fleiri hliðar en þá einu, sem kemur fram í útsetn- ingum hans á plötunni. Slíkum hæfileika- manni sem honum ætti að vera í lófa lagið að koma fram með eitthvað nýtt, frískandi og freskandi, eitthvað frábrugðið því, sem maður heyrir alltaf á hljómplötum með Sex- tett Ólafs Gauks. "ú leimir 09 Jónas Margir muna sjálfsagt eftir þessum ungu mönnum, Heimi Sindrasyni og Jónasi Tómas- syni, sem sungu saman í eina tíð lög í þjóð- lagastíl og í léttum dúr. Heimir og Jónas sungu saman meðan þeir voru í menntaskóla, en síðan skildu leiðir. Heimir hélt utan til náms í tannlækningum en Jónas hóf nám við Tónlistarskólann. Áður en leiðir skildu sungu þeir tólf lög inn á hljómplötu og nú um þessar mundir er þessi plata að koma út á vegum Fálkans. Á plötunni eru fjögur lög við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, fjögur við ljóð eftir Tómas Guðmundsson og fjögur sitt úr hverri áttinni, gamanvísur og þjóðlög. Heimir og Jónas fengu til liðs við sig þær Vilborgu Árnadóttur og Þóru Krist- ínu Johansen, og syngur Vilborg í lögunum við ljóð Tómasar en Þóra Kristín í lögunum við ljóð Davíðs. Vilborg hefur stundað söng- nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og er nú við framhaldsnám í London en Þóra Kristín er í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Ekki er að efa, að lögin á þessar plötu eiga eftir að heyrast oft. Kemur þar bæði til, að flutningurinn er með miklum ágætum, •— söng og spilastíll þeirra félaganna (þeir leika undir á gítara og flautu) er mjög sérstæður og mun án efa koma á óvart. Svo er hitt, að mörg laganna eru velþekkt en heyrast nú í nýjum og skemmtilegum útsetningum, t.d. lögin „I Vatnsmýrinni" og „Fyrir átta árum“, svo eitthvað sé nefnt, en einnig eru á plöt- unni lög, sem Heimir og Jónas hafa samið við nokkur ljóð Davíðs og Tómasar, m.a. „Bréfið hennar Stinu“, og Húsið í bænum“. Útsetningarnar hafa þeir félagar sjálfir unn- ið ásamt Páli Einarssyni, sem einnig leikur undir á bassa í öllum lögunum. ☆ Y/.V.V.V' . . ■ ■ : : ■Pfelpi iitlfttiiili i v> " mmmmm

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.