Vikan


Vikan - 26.06.1969, Page 13

Vikan - 26.06.1969, Page 13
Herra Spiller var í draumkenndri vímu, þegar hann kom heim til sín, og mætti Masters. — Hvar eru hin? — Herra Proudfoot er farinn og fröken Elísabeth er farin að hátta. — Er herra Goosh kominn inn? •— Ég veit það ekki, herra. Á ég að gá að því? — Nei, nei, þér getið farið. Ef Goosh hefði haldið sig dyggilega að viskýflöskuna, þá var vissara að láta hann ekki komast í tæri við Masters. — Hafið þér lokað fyrir gosbrunninn? — Já, herra, ég gerði það sjálfur. Klukk- an hálf ellefu, ég sá að þér voru upptekinn. -- Ágætt. Góða nótt, Masters. — Góða nótt, herra. Hann heyrði að maðurinn gekk út um bakdyrnar. Herra Spiller var hugsandi, þeg- ar hann læsti báðum dyrunum og gekk aft- ur inn í bókaherbergið. Viskýflaskan var úti í garðinum hjá Goosh, svo herra Spiller fékk sér koníak með sóda í glas og tæmdi það í einum teig. Hann þarfnaðist þess, því að hann átti eftir það leiða verk að koma Goosh í rúmið. Þá sá hann að hann þurfti ekki að sækja gestinn. Goosh kom inn um svalardyrnar.' Hann var drukkinn, en ekki ósjálfbjarga. Herra Spiller andaði léttar. — Jæja? sagði Goosh. — Jæja, bergmálaði frá Spiller. — Hvernig var þessi elskulega ekkja? Skemmtuð þið ykkur vel? Sumir eru heppn- ir, gamli refur, og búa sig vel undir ellina. — Hættu þessu þvaðri, ég er þreyttur, sagði herra Spiller. — Þú verður þreyttari, þegar ég er búinn að sauma að þér. Herra Goosh gróf hend- urnar niður í buxnavasana, og stóð, dig- ur og ógnandi, svolítið valtur á fótunum, fyrir framan hann. — Ég er staurblankur, hef verið óheppinn þessa viku. Það er kominn tími til að þú látir eitthvað af hendi rakna. — Þú hefur fengið það sem um var tal- að, og svo færð þú að koma hingað þegar þig lystir. Þú getur ekki krafizt meiri hlunn- inda. — Jæja, þú segir það, fyrrverandi fangi númer 4132! — Þegiðu, sagði herra Spiller og gáði i kringum sig, eins og veggirnir hefðu eyru. — Þegja, þegja! hafði herra Goosh háðs- lega eftir honum. — Heldurðu að þú getir skipað mér fyrir, 4132! Þegja! Þjónustu- fólkið getur heyrt til mín. Betty getur heyrt til mín. Kærastinn hennar Betty líka! Hvað segirðu við því? Kærastinn hennar Betty, — sá yrði hissa að heyra að þú hafir slopp- ið úr fangelsi, og gætir hvenær sem er verið tekinn fastur aftur og látinn dúsa í tugt- húsinu í sex ár fyrir falsanir. — Sam, ég hefi ekki mikla peninga hand- bæra, sagði herra Spiiler, — það veiztu vel. En ég vil ekki hafa neitt uppistand, og ég skal gera það sem ég get, ef þú, í þetta sinn, lofar að krefjast ekki meiri peninga en ég get látið þig hafa, og tekjur mínar leyfa. — Ég lofa því fúslega, sagði herra Goosh góðlátlega. — Þú lætur mig hafa fimm þús- und pund núna, síðar ... Herra Spiller kæfði óp. — Fimm þúsund! Hvernig' hefurðu hugs- að þér að ég geti það? Vertu ekki svona Framhald á bls. 28 ím : iillililliif; ■wjfeaiM ' ' Ijily IV. 26. tbi. vikan 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.