Vikan


Vikan - 26.06.1969, Síða 37

Vikan - 26.06.1969, Síða 37
Philip Morris vekur athygli á mest seldu amerísku filtersigarettunni í Evrópu. Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er raunverulegur tóbakskeimur. Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni? „FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI. þegar hún faer ekki nema 700, eyðir hún ekki nema sjöhundruð. Ef hún fær afiur 100 kall seinna verð- ur hún auðvitað himinglöð og eyðir honum í hvelli. Nú mun að vísu sem oftar vera starfandi nefnd, esm á að skipuleggja þessi mál, en hvað dvelur orminn langa? Það er heldur varla hægt að verj- ast þeirri hugsun, að kerfið sé af- skaplega vont í þessum efnum. Per- sónufrádráttur hefur til dæmis ekki hækkað ( ein tvö ár, og er nú svo lágur, að útiloka'Ö er að lifa af því. Þá er ekkert tillit tekið til þess, hvort er ekkert tillit tekið til þess, hvort einstaklingar eða fyrirtæki nota tekj- ur sínar og tekjuafgang til þess að skapa einhver aukin verðmæti, eða sóa fénu út í vind. Maður, sem legg- ur hart að sér til að koma þaki yfir sig og fjölskyldu sína verður að gjalda eftir sama stiga og sá, sem notar kaupið sitt í brennivín og leigubíla, þó heldur hærra, því sá síðarnefndi sýnir enga eignaaukn- ingu og því vcrður ekki lagt á hann eignaútsvar eða eignaskattur. Það virðist vera dagsatt, að í þjóðfélag- inu megi enginn hagnast eða kom- ast af með glæsibrag, hér vérða all- ir að vera með trýnið ofan í draf- inu. Lausnin er þó engan veginn að flýja land, heldur berjast til að reyna að lagfæra það sem aflaga fer. Meðan núgildandi kerfi er við líði, er hætt við að fátt þrífist hjá okkur nema bílskúraiðnaður og holuverksmrðjur, þar sem mögu- • leiki er að stinga undan skatti og fóðra á lempilegan hátt. Og fólkið sem reynir að eignast sitt eigið og losna undan húsaleiguokinu verður slitið og þreytt fyrir aldur fram. Sagan um nýkomna manninn á Kleppi, sem samsjúklingarnir lögðu fyrir þessa spurningu: — Hvað varstu kominn langt? Var orðið fokhelt? — breytist á þann veg, að spurningin verður: — Hvað varstu kominn langt? Varstu búinn að steypa plötuna? Fólk fleygir þvi sín á milli, í hálf- kæringi vona ég, áð einasti vegur- inn til að lifa þægilegu, mannsæm- andi lífi, sé að segja sig til sveitar. Þá fái maður góða íbúð með tepp- um oq öðrum þægindum, og þurfi ekki að leggja hart að sér við neitt annað en fá einhvers konar smá- fokk að dunda við, sem ekki þurfi að gefa upp til skatts. Ekki alls fyrir löngu var mér bent á leigubílstjóra og sögð um hann sú saga, að hann væri á bænum og hefði í krafti þess prýðilega íbúð í gamla borgarhlut- anum, borgin hefði hjálpað honum til að eignast bílinn en sjálfur gætti hann þess að láta ekki meira koma fram af tekjum sínum en svo, að hann héldi borgaríbúðinni og öðr- um viðurgerningi borgarinnar ó- skertum, en ætti svo á nafni vensla- manna sinni hús, sem hann leigði út með ágætum hagnaði. Ljótt er ef satt er. Um annan heyrði ég líka sögu, sem missti vegna tímabund- inna byrjunarörðugleika í fjárhag ágætan atvinnurekstur, sem hann var að koma sér upp, auk þess hús- næðis, sem hann hafði náð eign- arhaldi á. Hann sagði sig á borgina og fékk góða íbúð og vel frágengna í nýju húsi en atvinnu hans er þann- ig háttað, að hann getur haft sæmi- legt að gera í sínu fagi án þess að það sé gefið upp til skatts. Enda myndi hann heldur sitja af sér vinnu en þurfa að gefa hana upp, því hann er svo vel haldinn eins og fyrirkomulagið er. Ljótt er ef satt er. Annars virðist svo sem markvisst sé unnið að niðurdrepi (slenzkra at- vinnuvega og íslenzks framtaks á flestum sviðum. Við höfum nærtækt dæmi hér á Vikunni, þar sem við verðum að borga svo og svo mikið í tolla af pappír og öðrum vörum sem þarf til útgáfu blaðsins meðan dönsku blöðin til dæmis eru flutt inn tollfrjáls á undirverði frá dansk- inum. Og allt efni til bókagerðar bókaþjóðarinnar er hátollað en er- lent lesmál hverju nafni sem nefn- ist er flutt inn tollfrjálst. Fjarri sé það mér að biðja um tolla á það, heldur fremur tollaniðurfellingu á því sem til þarf að geta gefið hvað- eina út á íslenzku við sambærilegar aðstæður í tollamálum. Meira að segja ríkisstofnun eins og sjónvarpið er látin grafa undan íslenzkum atvinnuvegum. Þótt aug- lýsingar í sjónvarpi séu kannski ekki dýrar miðað við sambærilegar aug- lýsingar erlendis, eru þær dýrar miðað við íslenzka getu og innan- landsmarkað eingöngu,- afleiðingin verður sú að erlend fyrirtæki sem selja vöru sína hér á íslandi hafa góða aðstöðu í sjónvarpsauglýsing- um fram yfir fslenzka framleiðendur. Bæði kostar filman erlendu auglýs- endurna lítið, hún er gerð í mörg- um eintökum til að sýna í mörgum löndum, en (slenzkir auglýsendur verða að láta gera sér eitt eintak og geta hvergi notað það nema hér; þess utan hafa þeir miklu minna fé til að auglýsa fyrir en erlendir auð- hringir, svo notað sé þjóðviljalegt orð. Engum dettur ( hug að neita því, að auglýsing í sjónvarpi sé mjög sterk, og því hlýtur að enda með því að útlendu fyrirtækin sem auglýsa hérlendis sem ( öðrum út- sölulöndum sínum fyrir ákveðna fjárhæð hverju sem rignir kæfi þau íslenzku, sem Ktið eða ekkert geta auglýst samkeppnisvöru sína ( sjón- varpinu fjárhagsins vegna. Stórt spor í rétta átt væri að veita fs- lenzkum framleiðendum að minnsta kosti verulegan afslátt, segjum 50% af auglýsingaverði í sjónvarpi, en auglýsendum erlendrar vöru, sem er í samkeppni við innlenda, engan. ( krónutölu myndi það líklega ekki koma verulega lakar út, því þá gætu fleiri auglýst; þá skapaðist einnig vinna við að gera auglýsingarnar sem ( sumum tilfellum að minnsta kosti eru tekjur fyrir sjónvarpið. Það er alltaf verið að tala um, að ísland sé ekki lengur afskekkt, 26. tbt. VIKAN 37

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.