Vikan


Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 5

Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 5
JAPÖNSK ALPARÓS Þessi unga japanska stúlka heitir Mickiko Imai, og varð ný- lega heimsins fyrsta kvinna til að klífa upp norðurhlið Eiger- tindsins. Hingað til hafa 27 of- urhugar látið lífið við þessa þolraun. Mickiko fór þessa ferð ásamt 5 karlkyns löndum sínum, og hún mældi í sífellu blóðþrýsting þeirra á leiðinni upp, og fylgd- ist með líðan þeirra á allan hátt, mjög vísindalega. Hún er nefni- lega aðstoðarlæknir við sjúkra- hús í Tokyo, og hefur hugsað sér að sérnema sig í hjartalækn- ingum. Niðurstöður sínar úr ferðinni ætlar hún svo að leggja fram til prófs. -fc FJÖRUGIR KNATT- SPYRNUAÐDÁENDUR Hundruð bálreiðra knatt- spyrnuáhugamanna í ítalska bænum San Angelo hertóku ráð- húsið, tóku borgarstjórann sem gísl, kveiktu stór bál á aðalgöt- unni og lömuðu umferðakerfi borgarinnar í nokkra klukku- tíma. Ástæðan fyrir þessum hama- gangi var sú, að ítalska knatt- spyrnusambandið hafði neitað að láta knattspyrnulið bæjarins leika í 4. deild ítölsku knatt- spyrnunnar næsta keppnistíma- bil. Liðið hafði náð tilskildu marki, en sambandið hafði neit- að á þeirri forsendu að knatt- spyrnuvöllur þess væri ekki nógu góður. Borgarstjóranum var ekki sleppt fyrr en hann hafði lofað að veita forsæti nefnd, sem átti að bera fram mótmæli við ítalska knattspyrnusambandið. -fr SNJALLT RÁÐ í UMFERÐARMÁLUM Lögreglan í Tókyó fann ný- lega upp á snjöllu bragði til að fá óvarkára ökumenn til að virða umferðarreglurnar, þótt enginn lögregluþjónn væri til staðar. Þeir settu upp gínu, íklædda fullri lögregluþjónsmúnderingu á öll helztu umferðarhorn borgar- innar — með góðum árangri, eins og myndin ætti reyndar að bera meS sér. '---------------------------------------------------------------------v • vísur vikunnar Haustið er svalt og barist er í bönkum braut vorra drauma enn er þyrnum vaxin malbornar götur aka í þungum þönkum þeir sem í sumar misstu stóra laxinn. En þóað lukkan láti stundum dragast á langinn, það sem oss er mikils virði ennþá er von að eitthvað kunni að lagast í áfengismálum suðrí Hafnarfirði. FYRRVERANDI EIGINKONA BARNARDS LEYSIR FRÁ SKJÓÐUNNI „Hvers vegna ég giftist hon- um? Nú, þegar skilnaður okkar er orðinn staðreynd, spyr ég sjálfa mig þessarar spurningar aftur og aftur. Ég held, að ég hafi aldrei verið ástfangin af honum. Það er mjög erfitt að elska Chris, sérstaklega þegar maður hefur þekkt hann eins lengi og ég geri. Hann er gjör- sneyddur allri rómantík og á af- skaplega erfitt með að láta blíðu sína í ljós, á þann hátt, sem all- ar konur vilja, að menn þeirra geri.“ Þetta eru ummæli fyrrverandi eiginkonu hins fræga hjarta- skurðlæknis, Christians Barn- ards. Hún hefur nýverið leyst frá skjóðunni og skrifað minn- ingar sínar um samlífið við þenn- an heimsfræga mann. Frásögn hennar birtist í útbreiddu viku- blað í Suður-Afríku. Barnard var á ferðalagi í Evrópu, þegar honum barst blað- ið í hendur. Það skipti engum togum, þegar hann hafði lesið greinina: Hann tók næstu flug- vél til Höfðaborgar til að reyna að koma í veg fyrir, að frásögnin yrði birt um allan heim. Hann neyddist til að semja við fyrrverandi konu sína og fékk hana til að strika út þá kafla, sem berorðastir voru og köst- uðu mestri rýrð á dýrðarljóm- ann sem stafar af nafni Barnards. ☆ 4i. tw. vikAN .5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.