Vikan


Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 11

Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 11
— Þú getur fengið þ;ið sem þú vilt, allt nema Fionu. Þar sem Tina hefir alltaf haft mikið vald yfir Alexander, er það ekki undar- legt þótt Onassis vilji f'á hana sem banda- mann i stríðinu við soninn, fá hann til að hætta við „þessa heimsku“, eins og hann segii'. En eftir því sem kunningjar Jackie segja, þá finnst henni þetta sam- band við fyrri konuna hreinn óþarfi, og ákaflega smekklaust. HVERNIG KEMUR HÚN UPP UM STG? Jackie er í erfiðri aðstöðu. Hún getur ekki bannað manni sínum að hringja til fyrrverandi eiginkonu sinnar, og hún getur heldur ekki komið í veg fvrir að hann liitti hana. Þegar allt kemur til alls, þá eru þau öll fullorðið fólk, og' verða að haga sér eftir því. Jackie vill líka að litið sé á sig sem heimsborgara. Ef hún lætur afbrýðisemi í ljós, þá verð- ur hún að athlægi. En Jackie getur ekki alltaf ráðið við tilfinningar sínar, og í smáatriðum kem- ur hún upp um sig. Til dæmis er það opinbert mál að hún neitar að búa í íbúðinni í París, þar sem Onassis bjó áður með Tinu. Minningarnar um fvrra líf hans eru alltof augljósar þar ... Þetta er aðeins eitt af þeim atriðum, sem Jackie notar til að halda manninum frá fvrri konunni. Meðal annarra ágrein- ingsatriða má nefna baráttuna um það hverskonar hús eigi að reisa á Skorpios. Ari vill byggja hús, sem er stærra en Hvíta húsið, en Jackie tekur það ekki í mál. Onassis hafði hugsað sér að hafa nægilegt húsrými, til að halda stórkost- legar veizlur, og hýsa fjölda gesta. En líklega hefir það líka verið að hann vildi hafa það mikið húsrúm að Tina og börnin gætu séð sér fært að koma bang- að til dvalar, jafnvel þótt hann og Jackie væru þar. Þá þyrfti enginn að troða annan um tær. Onassis gæti vel hugsað sér að hafa Tinu fyrir viðskiptaráðgjafa, því ennþá á hann í stríði við fyrrver- andi svila sinn Niarchos, um milljóna- samning við grísku ríkisstjórnina. Onassis og dóttirin Christina, um borð í snekkjunni, sem hann skírði í höfuðið á henni. — Við óskum að pabbi verði hamingjusamur, segir hún. BARÁTTAN Á SKORPIOS Eins og er hefir hann orðið að láta í minni pokann í baráttunni á Skorpios, og Ari þarf á ráðleggingum og hjálp að halda, og hver getur betur veitt hon- um hana en Tina, sem er fædd og upp- alin í grískri fjölskyldu, sem dóttir ann- ars valdamikils skipaútgerðarmanns, og fyrrverandi mágkona Nicarchosar. Þessutan er Ari mikill fjölskyldumað- ur, eins og Grikkir yfirleitt eru, og' hann óskar þess innilega að geta haft börn sín sem mest hjá sér. Þetta veit Jackie, og þessvegna strit- ast hún á móti stórbyggingum á Skor- pios. Hún sagði við Lee Radziwill að hún gæti hreinlega ekki lmgsað sér að fá Tinu í heimsókn þangað. Það hefir því verið mjög stormasamt á eynni, þeg- ar rætt hefir verið um byggingar fyrir framtíðina. ARKITEKTINN í VANDRÆÐUM Arkitektinn Billy Baldwin, sem Jackie fékk til að koma frá New York, hefir Framhald á bls. 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.