Vikan


Vikan - 09.10.1969, Page 8

Vikan - 09.10.1969, Page 8
P\ /l/^sír^s 1 'N Hskartgripir Modelskartgripur er gjöf sem ekki gley - SIGMAR OG PÁLMI Hverfisgötu 16a. Sími 21355 og Laugaveg 70. Sími 24910. | mist. j ÞðRIS Laugavegi 20 B — Sími 15602 — Heimasimi 13451 LJðSMYNDASTQFA Myndatökur um helgar og á kvöldin yfir fermingartímann. Pantiö tímanlega MIG DREYMDI „Vinartrúlofun“ Kæri draumráðandi! Mér fannst ég vera trúlofuð góðum vini mínum, sem er í raun og veru trúlofaður annarri. Við vorum mjög hamingjusöm og allt var bjart og hlýtt í kring- um okkur. Leiddumst við alltaf, og var ég í grænni kápu (eini liturinn sem ég man úr draumn- um). Hið eina sem skyggði á var að okkur fannst við ekki breyta alls kostar rétt, því að hann var einnig trúlofaður hinni. Hún var ekki heima og það tækifæri not- uðum við okkur. Mér fannst líka allt fólk líta okkur hornauga. Alls staðar var fullt af fólki, bæði sem ég þekki og ókunnugu, en ég kærði mig kollótta um gagnrýni þess. Það var sumardagurinn fyrsti og glaðasólskin. 'Ég hitti skóla- bróður sem sýnir mér gullbaug á hægri hendi sinni. Hikandi rétti ég fram hægri hönd mína og sýndi honum hringinn, er glóði mjög. Hann varð mjög undrandi og spurði hvers vegna ég hefði gert þetta. Mér vafðist tunga um tönn og sagði: „Þetta er bara vinartrúlofun." Allt í einu voru unnasta vinar míns og móðir hennar komnar á vettvang. Þær slitu okkur í sund- ur, ráku mig inn í afarstórt hús, upp marga stiga og inn í lítið þakherbergi. Þar helltu þær sér yfir mig í reiði og skildist mér, að ég yrði að fara í burtu, því ef hann skildi við unnustu sína yrði hann gerður félaus. Fannst mér hann styðja málstað mæðg- anna, eins og verkfæri í höndum þeirra. Ég fór að gráta af miklum harmi og örvæntingu, jafn miklu og ég hafði verið hamingjusöm áður. Allt var grátt og ömurlegt. Mér tókst þó að flýia úr hús- inu og kom þá út í mikla auðn. Þar stóð svartklædd kona með reifabarn og rétti mér. Bað hún mie að "æta bess vel. Ég grét enn. en tók samt barnið í fang- ið og reikaði stefnulaust út í víð- áttumikla auðnina. Madga. Ég hef ekki trú á að þessi draum- ur þinn skipti þennan vin þinn neinu máli, heldur er hann fyrir miklum erfiðleikum sem þú átt eftir að lenda í. Snögg umskipti munu eiga sér stað í lífi þínu; sennilega muntu lenda í ástar- ævintýri sem endar með því að farið verður fram á hjúskap við þig. Þú ættir að taka öllu sliku með gát, því óvíst er hvort þér tekst að yfirstíga þá erfiðleika sem því myndu fylgja. Þó er eins og nokkur hamingja sé þessu öllu fylgjandi, og ef þú hugsar þinn gang vel, og anar ekki út í neitt, þá gæti allt farið vel að lokum. Hægt andlát Kæra Vika! Ég var stödd á ókunnum stað, lá þar í rúmi og var að deyja. Það gekk bara ekki vel, því ég var ýmist að deyja eða vakna til lífsins aftur, og var ég leið á því hve þetta tók langan tíma. Það var eitthvað af fólki í kringum mig en enginn sem ég þekkti. Það var heldur ekki vel bjart. Ég var ekkert hrædd og fann hvergi til; mér fannst ég bara þurfa að ljúka þessu af. Allt í einu fannst mér móðir mín vera komin til mín, en hún er dáin fyrir mörgum árum, og mundi ég það, þó mér fyndist hún vera lifandi þarna, og varð ég mjög fegin: Nú væri allur vandinn leystur, því hún myndi vita allt um þetta. Ég spurði hana hvað það tæki langan tíma að deyja. „Fjögur ár,“ svaraði hún, og við það vaknaði ég. Helga. Þú skalt taka lítið mark á því sem þér er lofað á næstunni, því það munu vera ómerk loforð. Þó er þér óhætt að halda áfram sömu braut, og hika hvergi frá settu marki. Svar til Jonnu í Vestmannaeyjum: Þessi draumur mun vera fyrir erfiðleikum þessarar gömlu konu; jafnvel dauða einhverra ættingja hennar. Eitthvað mun það koma við þig líka og vin- konu þína. Sendu mér strax nákvæmara heimilisfang, því ráðning sem þessi kostar ekki neitt. Ef þú vilt það ekki, Iáttu mig þá allavega vita hvað ég á að gera við pen- ingana. 8 VIKAN «•tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.