Vikan


Vikan - 09.10.1969, Side 21

Vikan - 09.10.1969, Side 21
-jfe. ÞaS voru sannarlcga glaSir Keflvíkingar, sem horfSu á heimamenn sina sigra Vai og hljóta hinn eftirsóknarverSa titil íslandsmeistari i knattspyrnu 1969. Nokkrir áhugasamir strákar létu í ljós aSdáun sína mcS því aS bera stóran borSa meS áletruninni í B K. Tveir þreyttir en glaSir Keflvíkingar: Jón Ólafur og GuSni Kjartansson. -qp- Þjálfarar tveggja efstu liðanna: Rík- harður Jónsson, þjálfari Akraness-liðsins, og Hólmbert Friðjónsson, þjáifari Keflvíkinga. Þess má raunar geta, að Ríkharður var um skeið þjálfari Keflvikinga. 4 „Þcir lengi lifi . . — Albert hrópar húrra fyrir íslandsmeisturunum 1969. Albert Guðmundsson, formaður KSÍ, afhend- ir Guðna Kjartanssyni, fyrirliða Keflvíkinga, bikarinn. Það ríkti heldur betur fögnuður á knattspyrnuvellinum í Keflavík sunnudaginn 21. september sl., þegar heimamenn urðu íslands- meistarar 1969. Þeir sigruðu Val í umræddum leik með 2 mörkum gegn engu. Þetta er í annað sinn, sem Keflvíkingar hljóta hinn eftir- sóknarverða íslandsmeistaratitil, en baráttan um hann hefur aldrei ver- ið jafn hörð og tvísýn og nú. Kefl- víkingar unnu íslandsmótið árið 1964, en síðan hefur gengið á ýmsu hjá þeim. Þeir höfnuðu til dæmis í neðsta sæti í fyrra, en unnu aukaleik gegn Haukum um laust sæti í fyrstu deild. Hinar miklu framfarir, sem liðið hefur tekið á aðeins einu ári eru ekki sízt þjáIf- aranum að þakka, Hólmbert Frið- jónssyni. Hann er yngsti fyrstu- deildarþjálfari hér á landi, aðeins 28 ára gamall. — Hann var í liði Keflavíkur fyrir fimm árum, þegar þeir urðu (slandsmeistarar, en varð litlu síðar að hætta að leika vegna meiðsla í baki. Þá gerðist hann þjálfari yngri flokka Keflavíkur og náði svo góðum árangri, að honum var falin umsjá meistaraflokksins. Á þessari opnu bregður VIKAN upp nokkrum svipmyndum frá úr- slitaleiknum og fagnaðarlátum Kefl- víkinga að unnum sigri. "ír Áhorfcndur gátu ekki stillt sig um að þjóta inn á völlinn til aö óska hinum nýju íslandsmeisturum til hamingju. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnieifsson SIGRIFAGNAB Í KEFLAVÍK

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.