Vikan - 09.10.1969, Síða 39
KX
ftft
XX
ftft
ftft
XX
XX
XX
ftft
XX
XX
XX
XX
XX
XX
X]
x:
xa
xa
xi
XX
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
»
X
X
X
X
X
X
X
X
X
Srax»a“S»»a»K8*xKR»»ttS”«5S3S5«
HONIG VÖRUR
HEIMSÞEKKTAR
VÖRU R
biðja hann um að fara með sig á
brott. En þess ! stað hló hún glað-
lega og sagði: — Velkominn Rich-
ard!
— Þakka þér fyrir, sagði hann,
og leit ákveðinn á hana. — Er allt
eins og það á að vera?
Hún kinkaði kolli.
— Þakka þér fyrir bókina, sagði
hún lágt. — Komdu inn og fáðu þér
eitthvað að drekka.
David kom á móti þeim. Júlía
kynnti þá. Henni hafði alltaf fund-
izt David hávaxinn, en við hliðina
á Richard var hann hreinn dvergur.
— Komið með mér og heilsið
upp á einkaritarann minn, sagði
David og rétti honum glas. —• Hún
er svo hrifin af kvikmyndum yðar,
og er að deyja af löngun eftir að
kynnast yður.
Júlía beit á vörina.
Nokkru síðar fór hún fram í eld-
hús ,til að fá sér vatn að drekka
og stóð um hríð við eldhúsborðið.
Hopkins hafði stokkið upp á borðið,
og hún strauk honum, eins og utan
við sig.
Eftir stundarkorn heyrði hún
fótatak fyrir aftan sig. Richard de
Lisle stóð rétt innan við dyrnar.
Júlía fleygði sér i fang hans,
eins og fugl„ sem leitar hælis. Þau
stóðu kyrr og þögul í faðmlögum.
Svo sagði hann:
— Ég veit að það er rangt af mér
að haga mér svona,- mér þykir líka
leiðinlegt að verða til þess að trufla
líf þitt, en ég er bókstaflega band-
vitlaus í þér. Þú hverfur aldrei úr
huga mínum, ég get ekki sofið, get
ekki einbeitt mér að vinnunni, ég
get ekki einu sinni hugsað. Ég veit
að ég á ekki að segja þetta, Júlía,
ég verð að hitta þig eina, við verð-
um að hittast.
Rödd hans var mild og ísmeygi-
leg. Hún fann hlýjar hendur hans
við bert bakið, og henni var Ijóst
að mótstöðukraftur hennar var horf-
inn.
— Á mánudaginn, hvíslaði hún.
— David fer þá að borða í klúbbn-
um.
— Ég hringi þá til þín á mánu-
dag. Hann lagði lófana blíðlega um
andlit hennar.
— Lofaðu mér því að sjá þig
ekki um hönd, hvíslaði hann. —
Mundu að ég elska þig.
Svo sleppti hann henni, og hefði
ekki mátt vera augnabliki síðar.
David kom inn í eldhúsið. En það
var greinilegt að hann hafði ekki
orðið var við neitt, því hann var
glaðlegur og talaði hressilega við
þau.
— Jæia, hérna eruð þér þá, sagði
hann við Richard. — Konan yðar
vill víst fara heim.
— Þetta var vel heppnað sam-
kvæmi, sagði hún við David, þeg-
ar gestirnir voru farnir. — Hvað
finnst þér?
— Það bezta sem við höfum haft,
tók hann undir.
Júlía gat ekki á sér setið, hún
varð að tala um Richard.
— Finnst þér de Lisle-hjónin ekki
skemmtileg? sagði hún.
— Hún er dásamleg kona, sagði
David, — en hann er nú ekkert sér-
stakur.
— Hvað áttu við? sagði Júlía. —
Finnst þér hann of listamannsleg-
ur?
— Ekki svo mjög. En hann virð-
ist hafa háar hugmyndir um sjálf-
an sig. Hann lét ekki Suzy vesaling-
inn í friði.
- Suzy?
— Já, hann bað hana eiginlega
sfrax að fara með sér til Parísar.
Að lokum neyddist hún til að lofa
því að borða með honum hádegis-
verð á morgun. Hún bað mig um
að láta hringja til hans, snemma í
fyrramálið og segja að hún væri
veik.
iiBiwnii
MYNDATÖKUR FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
*
FERMINGARKIRTLAR Á STOFUNNI
*
III HllinK
uu
Garðastræti 2 - Reykjavík - Sími 20900
41 tbl VIKAN 39