Vikan


Vikan - 09.10.1969, Qupperneq 44

Vikan - 09.10.1969, Qupperneq 44
ÞERSPARID MEDÁSKRIFT ÞÉR GETIÐ SPARAÐ FRA KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MÉÐ ÞVI AÐ GERAST ASKRIFANDI AÐ VIKUNNI Oð ÞÉR ÞEKKK) EFNIÐ: VEBBUUNAKR0SS6AIA VIKUNNAR VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG f ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á UEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓBLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O.FL., O.FL, Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift n i i i □ 4 TÖLUBLÖÐ Kr. 170.00. Hvert blað á kr. 42.50. □ 3 MÁNUÐIR • 13 tölubl. - Kr. 475.00. Hvert blað á kr. 36.58. □ 6 MÁNUÐIR • 26 tölubl. ■ Kr. 900.00. Hvert blað á kr. 34.62. Gjalddagar fyrir 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1.' febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember. Skrifið, hringið eða komið. L PÓSTSTÖÐ VIKAN SKIPHOLTI 33 PÚSTHOLF 533 REYKJAVlK SlMAR: 36720 - 35320 i i i j við! Ég hélt, að eitthvað hefði komið fjrrir mömmu. — Ég varð að hringja til að vita, hvort allt væri í lagi. Ég get ekki sofið, og geri varla ráð fyrir, að þú getir það heldur. Léttirinn var svo mikill, að hún hló móðursýkislega. — Þú verður að bera mig upp að altarinu, Frank. Hefur þú hugmynd um, hvað tvö hundruð þúsund dollarar eru miklir pen- ingar? Ég hef þá útbreidda á rúminu fyrir framan mig. Þau ræddust við um stund, en hún hafði ekki fyrr lagt á, en síminn hringdi aftur. Hún fann hræðsluna vaxa á nýjan leik. Hún lyfti tólinu óendanlega hægt. Það var Hawk. — Er allt í lagi? Eitthvað hlaut að vera að. Hann hafði aldrei hringt til hennar fyrr. — Hann kallaði gegnum vasa- sendinn fyrir nokkru, svaraði hún. — Hann skipaði mér að telja peningana, og ég er að því. En það veiztu sjálfsagt. — Ég er með nokkur fyrir- mæli, sagði Hawk. — Ég vil, að þú farir ekki út úr íbúðinni í nótt, jafnvel ekki, þótt hann skipi þér að láta peningana einhvers staðar. Segðu, að þú sért lasin, og getir ekki farið, þótt lífið sé í veði. Segðu honum, að hann verði heldur að koma til þín. — Það hefur eitthvað komið fyrir! Þegar hann hikaði, bætti hún við: — Þú hefur alltaf verið hrein- skilinn við mig. Segðu mér, hvað gerzt hefur. Hann svaraði lágmæltur og án tónbrigða, og hún fann, að hann kostaði kapps um að hræða hana ekki. — Þá það. Það hefur nokkuð komið fyrir. Við höfum talað við manninn, sem afhenti peningana í nótt. Hann var milliliður, rétt eins og þú. Eins og okkur grun- aði, er um fjárkúgun að ræða. Og hreint út sagt: Sá, sem borg- aði, heldur að þú sért potturinn og pannan. Hún þagði svo lengi, að Hawk stóð ekki á sama. — Þá vitið þið sem sagt, hver fórnarlambið er, sagði hún að lokum. — Já, maður, sem heitir Jo- seph McNulty. Hann á konu og þrjú börn. — Og hann heldur, að ég .... — Við töluðum við hann og sögðum honum, að þú værir milliliður, eins og maðurinn, sem hann sendi. Ég held, að við höf- um getað sannfært hann, en það er aldrei að vita. Það er ástæða til að óttast, að hann hafi menn á sínum snærum, sem hafa feng- ið fyrirmæli um að ná í pening- ana aftur. — En ef hann heldur, að ég sé kúgarinn, þá er líklegt, að. sá sem á að endurheimta peningana, eigi 44 VIKAN «•tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.