Vikan


Vikan - 18.12.1969, Síða 5

Vikan - 18.12.1969, Síða 5
inni að birta bréf á fáránlegu „slangi“, sem aðeins ákveðinn aldursflokkur skilur. Ég geri það að tillögu minni til þess að reyna að bæta ástand- ið í þessum efnum, að VIKAN efni til bréfasamkeppni. Sá sem skrifar bezta bréfið um eitthvert tiltekið efni, fær verðlaun. Mér er sagt, að slík samkeppni fari stundum fram í erlendum blöð- um, enda gæti árangurinn orð- inn skemmtilegur og keppnin í heild ofurlítil hvatning til manna um að vanda sig, þegar þeir skrifa bréf, og sýna hvað þeir geta, þegar þeir stinga niður penna. Virðingarfyllst, H. H. Það er anzi mikið til í þessu bréfi. Pósturinn veit það manna bezt, að margir íslendingar, sem eiga þó að heita sæmilega menntaðir, eru alls ekki sendi- bréfsfærir. En ætli skólamir eigi hér ekki einhverja sök? Við tök- um hina ágætu hugmynd til at- hugunar og þökkum síðan bréf- ið frá H. H., sem hefði þó mátt vera betur stílað, fyrst það fjall- aði nú um þetta efni. Kvenleg skynsemi Kæri Póstur! Vandamál mitt er líklega ekk- ert einsdæmi, en bagar mig þó mikið og hefur gert það lengi. Þannig er mál með vexti, að yf- irleitt er ég álitin heldur heimsk af karlmönnum. É’g mundi ekk- ert kippa mér upp við þetta, ef ég væri falleg, en nú er því ekki að heilsa. Og ég gæti ekkert sagt við þessu, ef þetta væri satt. En ég veit með vissu, að það er að- eins úlit mitt, sem bendir til þess, að ég sé heimsk og auk þess er eins og allt komi öfugt út úr mér, þegar ég er að reyna að láta ljós mitt skína. Gefðu mér eitthvert gott ráð við þessu, Póstur minn. Með þakklæti fyrir allar góðu framhaldssögurnar, sérstaklega kvikmyndasöguna „Fjarri heims- ins glaumi". Hvenær verður myndin sýnd? H. S. Gamall málsháttur hljóðar svo: „Skynsöm stúlka ætti umfram allt að vera svo skynsöm, að hún líti ekki út fyrir að vera það“. Samkvæmt þessu skaltu ekkert kippa þér upp við, þótt einhverj- ir gárungar álíti þig heimska. Þú skalt aðeins glotta með sjálfri þér, af því að þú ein veizt, að hið rétta er alveg öfugt. — „Fjarri heimsins glaumi“ verður að öllum líkindum jólamyndin í Gamla bíói á þessu herrans ári, sem senn er að Ijúka. Vesælir vegfarendur Kæri Póstur! Ég hef skrifað þér tvisvar sinnum áður og í bæði skiptin birtir þú bréfin mín skilmerki- lega og þakka ég þér fyrir það. Þessi tvö ágætu bréf mín fjöll- uðu bæði um sama efnið. Og enn er ég við sama heygarðshornið. Mér þykir bara verst, að þessi framtakssemi mín skuli engan árangur hafa borið enn. En ég er ekki á því að gefast upp, og þess vegna sezt ég enn einu sinni niður og skrifa þér um þetta hjartans mál mitt. Það sem ég ber svo mjög fyrir brjósti er velferð hinna vesælu vegfarenda, þ. e. a. s. þess fá- menna hóps fólks, sem ekki hef- ur efni á að eiga bíl og verður að fara fótgangandi allra sinna ferða um bæinn. Þetta fólk hef- ur enn ekki haft manndóm í sér til að stofna með sér samtök eins og bílaeigendur eru búnir að gera fyrir löngu og einstæðar mæður og feður hafa nýverið gert. Það er til háborinnar skammar, hversu réttur fótgang- andi fólks er fyrir borð borinn. Bíleigendur virða bókstaflega rétt vegfarendanna að vettugi, og maður má þakka sínum sæla fyrir að sleppa lifandi úr um- ferðinni. Ég get nefnt sem dæmi, að ég þarf að fara yfir götu, þar sem mikil umferð er svo að segja allan liðlangan daginn. Sam- kvæmt reglunum eiga bílar að stanza við zebrabrautirnar skil- yrðislaust og hleypa þeim yfir, sem bíða eftir að komast yfir götuna. En þetta gera þeir alls ekki lang flestir. Maður þarf stundum að bíða í fimm til tíu mínútur, þar til einhverjum Mis- kunnsömum Sgmverja úr hópi bíleigenda þóknast að stöðva farkost sinn. Mér finnst alveg ótækt að níðzt sé svona freklega á rétti okkar, hinna vesælu vegfarenda. É'g bið þig, Póstur minn, að leggja mér í þriðja skipti lið í þessu brýna baráttumáli, um leið og ég þakka þér fyrir allt gam- alt og gott. Göngu-Hrólfur. Póstinum finnst sjálfsagt, að Göngp-Hrólfur taki nú á sig rögg og stofni samtök vesælla vegfarenda. Slík samtök gætu aflað sér ýmissa tekna, svo sem með fjárstyrk frá ríki og hæ, happdrættissölu og ýmsum öðr- um ráðum. Kannski að allir með- limir samtakanna verði svo efn- um búnir fyrir rest, að þeir geti keypt sér bíl! Ronson HARÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN TIL JÖLAGJAFA EINKAUMBOD: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK 5 51. tbi. ynCAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.