Vikan - 18.12.1969, Page 7
SEGIST KRISTUR
ENDURFÆDDUR
Þegar Sathyanarayana Raju
fæddist hóf tcimbura fjölskyld-
unnar að spila óvænt og skyndi-
lega, án nokkurrar hjálpar, og
cobraslanga birtist undir vöggu
hans. Sem barn sýndi hann alls
kyns dulræna hæfileika og þeg-
ar hann var 13 ára kom hann
dag einn heim úr skólanum og
sagði móður sinni, sem er virðu-
leg húsmóðir í Puttaparti-þorp-
inu, að hann væri ekki lengur
Sathya, sonur hennar. „Eg er
Sai Baba. Ég lít ekki á sjálfan
mig sem mann skyldan þér. Verk
bíður mín. Bhakthas (átrúend-
ur) bíða mín. Vertu sæl. Tilbiddu
mig á hverjum fimmtudegi."
Nú er Baba fjörutíu og tveggja
ára og hefur að sögn unnið
kraftaverk af ýmsu tagi síðan
þetta gerðist. Meðal annars hef-
ur hann breytt vatni í benzín,
lifað af fjögur hjartaslög í röð
án þess að njóta nokkurrar lækn-
ishjálpar, bjargað flugvél frá því
að hrapa með því að birtast við
hlið flugmannsins á síðustu
stundu og hitt og þetta fleira.
Og í hverjum nóvembermánuði
þyrpast 50 þúsund Indverjar til
Puttaparti til að halda upp á af-
mæli hans —• sem ætti að vera
nokkuð tilþrifamikil hátíð eftir
öllu þessu að dæma.
☆
W#S/ „ - ' # \
V'""/ '
• vísur vikunnar
Hverfult er allt og árið líður senn
í aldanna skaut með tímans þunga straumi
við áramótin finna flestir enn
hve fallvalt það er að trúa heimsins glaumi.
í vetrarins gjósti gleði manns er hætt
glötuð sú þrá er vér í sumar ólum
og kaupmenn sem ekki gátu á oss grætt
gráta sín mistök fram að næstu jólum.
SKRAUTLEGUR SOLDÁTI
Nei, þetta er ekki afrískur
töfralæknir, heldur arabískur
skæruliði sem er að verja land-
ið sitt fyrir ágangi og ruddaskap
ísraelsmanna við Golanhæðir.
Mun þessi furðulegi útbúnaður
vera nauðsynlegur til að verjast
Gyðingum sem ætla allt að drepa
(eftir öllum fréttum að dæma,
a. m. k.) og eins er sólin sterk á
þessum slóðum og til þess er
þessi merkilegi hjálmur. En byss-
an . . . bágt eigum við með að
trúa að hún komi að nokkru
gagni ....
☆
PAT ER DÝRARI EN JACKIE
Forsetafrú Bandarikjanna, sem
í dag heitir Pat Nixon, þarf vita-
skuld að vera ákaflega vel klædd
alla daga, og svo að sumum þyk-
ir nóg um. Nú hefur sú saga
komist á kreik í Washington, að
hún hafi eytt rúmlegra hálfri
annarri milljón ísl. kr. í föt síðan
maður hennar kom sér fyrir á
baðstofuloftinu í Hvíta húsinu.
Fylgdi sögunni að hún hefði
keypt sér 65 nýja og dýra kjóla.
En þá reis frúin upp til mót-
mæla og spurði hver hefði svo
sem séð sig ganga um í 65 nýjum
kjólum?
Allt um það. hún á allavega
nokkra kjóla, sem hafa kostað
allt frá 9000 krónum og upp i
56.000 krónur stykkið. Laglegasti
fatnaður, ekki satt?
☆
5i. tw. vikAN 7