Vikan - 18.12.1969, Síða 8
r
Hoover þvottavélar 8 gerðir
Hoover kæliskápar 5 gerðir
Hoover ryksugur 8 gerSir
Hoover bónvéiar 2 gerSir
Hoover rafmagnsofnar 3 gerSir
Hoover straujárn 3 gerSir
Hoover uppþvottavélar
Hoover hárþurrkur
Hoover hrærivélar
Hoover teppaburstar
Hoover eldavélahimnar
V___________________________________________J
Heimsþekkt vörumerki
Hoover vörurnar fást í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavík.
Sími 14376. Einnig víða í verzlunum úti á landi.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta að Laugavegi 89, simi 20670.
Einkaumboð:
MAGNÚS KJARAN
Umboðs- og heildverzlun
MIG
DREYMDI
Oæskileg gifting
Kæri þáttur!
. . . Mér fannst ég vera á gangi
með strák sem ég þekki, í hverfi
þar sem frænka mín býr. Við
vorum eitthvað að tala um að
giftast, en pabbi vildi ekki sam-
þykkja það. Þá stoppar strákur-
inn allt í einu og kyssir mig, og
þá fannst mér allt vera í lagi.
Svo komum við í húsið þar sem
frænka mín býr, og þar fannst
mér ég eiga heima og var öll
fjölskyldan þar saman komin, þó
ekki frænka mín og hennar fjöl-
skylda. Við vorum öll að horfa
á sjónvarpið og þá segir pabbi
allt í einu að við (ég og strák-
urinn) verðum að giftast, þar
sem ég hlyti að vera ólétt eftir
hann (en ég var það alls ekki).
Við bárum auðvitað á móti því,
en pabbi sagðist ekki trúa öðru
og við yrðum að giftast þó hann
væri ekki hlynntur því. Svo för-
um við út og ég fylgi stráknum
út í bíl sem var fyrir utan, en
hann kom ekki á bílnum, og ég
segi við hann: „Hann leyfir okk-
ur ekki að giftast.“
Svo var draumurinn búinn.
Með fyrirfram þökk fyrir
ráðninguna. Ein forvitin.
Yfirleitt er það ekki góðs viti
fyrir ógift fólk að það sé gift
eða í þann veginn að giftast. Er
af sumum talið að það sé fyrir
erfiðleikum og fjárhagsvandræð-
um — jafnvel refsingu og fang-
elsun. En ég vil ráða draum þinn
þannig að þú munir lendi í ein-
hverjum vandræðum hráðlega,
en þó ekki alvarlegum, og lykt-
ar allt mun betur en á horfist.
Kettlingar
í hundraðatali
Kæri Draumráðandi!
Mér fannst ég vera stödd í
húsi hjá hjónum sem ég þekki
ekkert til, og stóð til að við fær-
um öll út saman. Þau hjónin áttu
þrjá ketti og þegar við erum að
fara segir konan:
„Nei, sjáið þið. kötturinn er að
fara að gjóta.“
Við hættum við að fara út og
biðum eftir því að læðan gyti.
Svo kom sá fyrsti og annar og
þriðji, og fannst mér þá að þeir
yrðu ekki fleiri, en hún hélt
áfram að gjóta og komu kettling-
arnir hlaupandi út úr henni í
hundraðatali. Og að lokum var
allt morandi í kettlingum í
kringum okkur.
Ég vona að þú getir ráðið
þennan draum.
Með fyrirfram þakklæti.
H. Þ.
Til hamingju, því þú átt von á
miklum peningum bráðlega —•
sennilega vinnur þú í happdrætti
eða eitthvað svipað. En hætt er
við að þú ráðstafir ekki fé þínu
sem skynsamlegast væri . . .
Kysserí á svölunum
Kæri Draumráðandi:
Mig dreymdi að ég væri í
veizlu, og þar var strákur sem
ég er mjög hrifin af og heitir X.
Mér fannst hann hafa smakkað
það svolítið, en hann var í mjög
góðu skapi og ofsa glaður. Ég
tek það fram að það voru ekki
margir í veizlunni en allir voru
ánægðir. Svo tekur X í höndina
á mér og leiðir mig út á svalir
(þetta var í blokk) og tekur utan
um mig, blíðlega, og kyssir mig.
Fyrst varð ég afar hissa, en
kyssi hann svo á móti. Ég varð
líka hissa á því að vínlykt fann
ég enga.
Svo varð draumurinn ekki
lengri, en ég vona að þið ráðið
hann fyrir mig fljótlega því þetta
er mjög áríðandi.
Ein sem bíður eftir svari.
Þessi draumur er þér hagstæð-
ur, sennilega endar það með þvi
að þú nærð í kauða. En margir
draumar, og ef til vill þessi líka,
eru aðeins í beinu framhaldi af
hugrenningum manns þegar
maður leggst til hvílu, og þá eru
þeir aðeins þægilegar hugsanir.
— En í draumi þínum bólar
einnig á töluvert á peningum.
Vín
Kæri Draumráðandi:
Mig dreymdi að ég væri fyrir
framan túnið heima hjá mér. Þar
fann ég ljósbrúnan sokk með
fullum vínpela í. Ég smakkaði á
víninu en mér fannst það vont;
það var alveg eins á bragðið og
brugg sem ég hef smakkað.
Síðan kemur bróðir minn og
maður með honum sem Kristján
(ég þekki hann). Fleira fólk var
þar, en ég man ekki hverjir það
voru. Kristján segist eiga pelann
svo ég læt han nhafa hann.
Á sokknum voru tveir bókstaf-
ir saumaðir í með rauðu. Það
voru stafirnir E.S. Ég man ekki
hvar E-ið var á sokknum, en
S-ið var saumað inn í rauða rós
sem var á ristinni á sokknum.
Draumurinn endaði á því að
ég geymdi sokkinn. A.G.
Að dreyma vín, alla vega eins
og þig dreymdi það, er fyrir
veikindum, en þó bendir allt til
þess að þau verði ekki langvinn
eða alvarleg. Og hver veit nema
þú giftist einhverjum sem á þessa
upphafsstafi....
8 VIKAN
51. tbl.