Vikan


Vikan - 18.12.1969, Blaðsíða 22

Vikan - 18.12.1969, Blaðsíða 22
EYJARSKEGGINN SEM EIGNAÐIST KEISARADÆMI liðskost úr hópi þeirra, svo eitt- hvað sé nefnt. Korsíka heyrði frá aldamót- unum 1300 undir verzlunar- borgina Genúu, en var lögð undir F'rakkiland árið áður en Napóleon faeddist. Ekki líkaði öllum eyjarskeggjum það vel og var Napóleon litli engin undantekning hvað það snerti, fyrstu árin eftir að hann komst til vits og þroska. í þá daga skar hann sig varla neitt sem heitið gat úr öðrum korsíkönskum ung- lingum, en metnaðargjarn var hann strax orðinn í meira lagi. Þó var sú metnaðargirnd enn háð þjóðernislsgum takmörkun- um: hann dreymdi aðeins um að frelsa Korsíku og verða höfðingi hennar. Þessi uppreisnar- og frelsisþrá átti ríkastan þátt í huga Buonapartes unga á æsku- árum hans. Sjálfur sagðist hann á þessum árum hafa verið þung- lyndur dagdraumamaður. Móðir hans var ekta Korsíku- kona, skapmikil, stolt, staðföst og ættrækin, en faðirinn öllu lausari í rásinni. Engu að síður tókst honum að koma þessum syni sínum í herskólann í Bri- enne. Sú skólavist varð horn- steinninn að öllum hans frama, en ekki átti hann þar lukkulega daga. Skólabræður hans voru flestir af auðugum frönskum að- alsættum, og þeir hæddust óspart að þessum feimna, dula og sér- vitringslega eyjarskeggja, sem gat ekki einu sinni talað al- mennilega frönsku. Napóleon lagði íyrir sitt leyti hatur á þessa siðfáguðu, glæsilegu og áhyggju- lausu félaga. En hann sökkti sér í námið, og ekki einungis her- fræði og stærðfræði, sem voru aðalgreinar skólans. heldur og sagnfræði, landafræði og góð- bókmenntir. Hann hafði brenn- andi áhuga á öllu, sem mann- kyninu viðkom, lífi þess og sögu, fortíð þess og stjórnarfari. Ein fyrsta og helzta uppáhaldsbók hans varð Gallastríð Sesars, og 22 VTTCAN m. tbi. Sesar varð alla ævi hans megin- hetja og fyrirmynd ásamt Alex- andri mikla. En Rousseau snart hann einnig, og hann grét af geðshræringu er hann fékk í hendur Ossíanskviðu Macpher- sons. Fantasíur þessa lygna Skota áttu prýðilega við drauma- manninn í honum. Hann var alla tíð fíkinn í allt, sem gat vakið hjá honum draumhrif, rökkur, þunglyndislega tónlist, vind- gnauð, öldugjálfur. Elja hans við námið var gífurleg og minnið ótrúlegt. En það var ekki ein- ungis námsefnið, sem hann lagði á minnið á skólaárunum, heldur og ýmis atvik beiskrar reynslu, sem var fylgifiskur fátæktar hans og umkomuleysis. Honum sveið sárt sú auðmýking er var samfara því að eiga sér ekki Napóleon og Jósefína. viðreisnar von nema fyrir ann- arra náð. A misjöfnu þrífast börnin bezt, og þótt sannleiksgildi þess máls- háttar sé eflaust með minna móti, þá sannaðist hann á Napó- leoni. Lærdómselja hans, knúin fram af þörfinni fyrir að standa yfirstéttargikkjunum skóla- bræðrum sínum á sporði, gerði að verkum að hann varð marg- faldur yfirburðamaður þeirra flestra. Skólinn í Brienne skil- aði honum ekki sem hverjum öðrum grannvitrum og fávísum soldáta, heldur sem sérfræðingi í stjórnfræði og þjóðfélagsmálum. Án þeirrar þekkingar hefði öll hans margrómaða herstjórnar- snilld komið til lítils. En ekki varð niðursetnings- vistin í Brienne honum einhliða til góðs. Hann tamdi sér þá hrokafulla og óþýða framkomu, sem meðfram var ætluð til að breiða yfir ótta, öfund og feimni gagnvart hinum tignu og auðugu félögum. Þessa tilfinningu gagn- vart bláu blóði losnaði hann al- drei við til fulls; hún kom til dæmis fram er hann umgekkst síðari konu sína, Maríu Lovísu af Austurríki. Ekki var þetta minni- máttarkennd í venjulegum skiln- ingi, því að Napóleon var sann- færður um að hann væri lang- mesta mikilmenni, sem til þessa hefði fæðst. En hann gat ekki vikið því úr huga sér að hann var uppskafningur. Til vinstri: Murat, frægastur riddaraliðsforingja Napóleons, síðar konungur í Napólí. Að neðan: Sprengjutilræði við Napóleon, er hann var á lcið í óperuna f Parfs. Hann grunaði hertogann af Enghien um að hafa staðið að baki tilræðinu og lét taka hann af lífi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.