Vikan - 18.12.1969, Qupperneq 26
Júdasarkossinn.
Múrar Jeríkóborgar.
u
BIBLÍAN — RIT HENNAR I MYNDUM OG TEXTA
nefnist myndabók í alþjóðaútgáfu, sem nýlega er kom-
in ut. Hér er um að ræða nýstárlega, myndræna túlkun
á biblíunni, sem danska listakonan Birte Dietz hefur
gerl. íslenzkaii texta liefur Magnús Már Lárusson,
rektor Háskóla íslands, annazt. Litmyndirnar eru
prentaðar í Hollandi, en textinn hér á landi.
Birte Dietz er kunn myndlistarkona, ekki aðeins í
heimalandi sinu, heldur víða um lieim. Hún hefur
hlotið mikla frægð fyrir klippmyndir sínar við hihli-
una, sem þykja allt í senn einfaldar, litríkar og í
fyllsta samræmi við smekk nútímans. Hún var nem-
andi Rostrups Boyesens á Statens Museum for Kunst
og Hans C'hr. Hoier á Glyptotekinu. Þrisvar sinnum
hlaut Blrte meiriliáttar námsstýrki, tlil dæinís Kaj
Munks-styrkinn og ferðaðist j)á um Libanon, Jordaníu
og ísrael. Árið 1963 teiknaði hún pislarsögu Krists í
páskamynd fyrir danska sjónvarpið.
Magnús Már Lárusson, rektor Háskóla íslands, Iief-
ur séð um íslenzku útgáfuna og ritar jafnframt inn-
gangsorð og ágrip af sögu hibliuþýðinga á Islandi.
Bókin er 83 blaðsíður í stóru hroti og kostar 500
krónur. Útgefandi er Hilmir hf.
Sköpun heimsins.