Vikan


Vikan - 18.12.1969, Síða 30

Vikan - 18.12.1969, Síða 30
Robert Plant úr hljómsveitinni Led Zeppelin: Neil Innesur úr hljómsveitinni The Bonzo Dog Doda Band: Keith Emerson úr hljómsveitinni Nice: — Ég trúi á hið góða sem býr innst inni í hverjum manni. Af ein- hverjum ástæðum hafa lægstu hvat- ir mannsins komið í Ijós á öllum tím- um. Og jafnvel núna er þessari plá- netu hótað tortímingu vegna þess, að hjá hinu svokallaða siðmenntaða mannkyni er enn ríkjandi þröngsýni um stéttaskiptingu, trú og litarhátt. — Einhvern tíma kemur að því, oð veglyndið í manninum sigrar ófreskjuna í honum. Jesús Kristur, Búdda, Múhameð og hinir miklu trú- arleiðtogar hafa um aldir vakið anda- gift fólks, vegna þess að hið góða í þeim hefur verið ráðandi. — Ég dáist mjög að John Lennon, vegna þess að hann er talsmaður friðar. Hann er að reyna að benda heiminum á ögn af heilbrigðri skyn- semi. Þótt furðulegt megi heita, verður hann að koma fram á kyn- legan hátt, til þess að geta komið boðskap sínum á framfæri. Fólk hlær að honum. En hvað er svo hlægi- legt við mann, sem vill, að allir lifi í sátt og samlyndi? — Þegar Kristur kom með sinn boðskap var hann krossfestur. Hið sama er að gerast með Lennon. Flestir krossfesta framkomu hans, orð hans og æði. — Ég trúi á frið og ást. Eg trúi á þann tíma, þegar engar hindranir verða á milli landa, þegar hver mannvera mun aðeins líta á sjálfa sig sem íbúa jarðarinnar. Þá mun koma von um betri heim. — En jafnvel nú á þessari öld, sem á að heita öld menntunar, er maðurinn að reyna að reisa fleiri múra, til að skilja nágrannann frá sér. Skozku, írsku og velsku þjóð- ernissinnarnir og einnig hinir þel- dökku ættu að gefa gaum að því sem John Donne sagði fyrir mörg- um árum. — Enginn maður er eyja í sjálfu sér. Við erum öll hluti mannkyns. — Ég held, að allar verur eigi rétt á því að öðlast hamingju. Ef Guð er einhvers staðar, er hann í manninum sjálfum, vegna þess að maðurinn gaf hinum nafn. Fólk ætti að trúa á sjálft sig í þeim skilningi, að það sé ábyrgt fyrir gerðum sin- um, um leið og það hefur gert eitt- hvað. Sjálfur er ég ekki hlynntur því, að beðið sé til Guðs um að fyrirgefa syndir, vegna þess að mér finnst það auðveldasta leiðin út úr ógöngum. Það virðist misnot- að einfaldlega vegna þess, að fólk getur endalaust haldið þannig áfram — með því einu að hræsna. — Allir syndga, en ég trúi því, að ég eigi skilið fyrirgefningu, ef ég fer alltaf eftir því sem samvizka mín býður mér. Maður þarf aðeins á fyrirgefningu að halda, ef maður finnur til sektarkenndar, og maður finnur því aðeins til sektarkenndar, að maður hafi eitthvað á samvizk- unni. Ef þú hlýðir samvizku þinni, verður þér fyrirgefið. — Eina leiðin til að öðlast sanna hamingju er að finna ekki til sektar- kenndar. Ég trúi því, að þetta geri fólk heilsteypt. — Mér finnst erfitt að tala um þetta efni vegna þess að ekki er víst, að ég trúi því á morgun, sem ég trúi í dag. Á hverjum degi er allt eins vist, að ég sjái eitthvað eða geri eitthvað, sem breyti skoðunum mínum og viðhorfum. — Viðhorf hins sanna tónlistar- manns fela alltaf í sér spurningu. í tónlistinni sinni mótmælir hann hinu illa og lofar það góða. — Það verður að vera markmið í lífinu. Líf hvers einstaklings, hversu lítilfjörlegur sem hann er, breytir vissulega rás sögunnar. Til allrar lukku eða ólukku, verður maður að bíða til skapadægurs, til þess að komast að hinu raunverulega svari. Þar til þar að kemur veitir ímynd einhvers æðri máttar mörgu fólki öryggiskennd. — Á unga aldri var ég fermdur, en hvers vegna veit ég ekki. En vinir mínir voru fermdir, og ég vildi ekki láta hjá líða að gera góðverk! — Ég minnist þess, að eftir á leið mér yfirmáta vel, og þessi nota- kennd entist mér allan daginn. Kannski hef ég hnuplað nokkrum eplum daginn eftir, sem eyðilögðu allt saman, en færðu mér heim sanninn um það, að það er hræði- lega leiðinlegt að ganga í gegnum lífið og reyna að vera fullkominn. — Það, sem mér er mest í mun, er að gera aðra glaða. Og þegar þið spyrjið mig á hvað ég trúi, þá segi ég — daginn í dag. Vegna þess að dagurinn er hér, og ég sé hann. EF GOB BJd EKKITIL LITLO GRfENO EPLIN HVER BJÖ MU M TIL? 30 VIKAN «•tbL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.