Vikan - 18.12.1969, Síða 36
morfín. Þau eru mjög vanamynd-
andi og hækka þarf stö'ðugt
skammtana til þess að fá sömu
áhrif. Einnig skapast ómótstæði-
leg fíkn í slík lyf, og þaðan er
nafnið komið, fíknilyf. Sé töku
þessara lyfja hætt eftir langvar-
andi notkun, skapast líkamleg
krísa þar sem menn svitna og
fara í gegnum ólýsanlegar kval-
ir, líkamlegar og andlegar. Þarna
höfum við þennan líkamlega og
andlega ávana.
Aftur á móti skapast engin fíkn
í hash eða LSD, og líkamleg
vanamyndun er óþekkt með öllu.
Annars legg ég til að við notum
hér orðið cannabis, en það er
sameiginlegt heiti á hash og
marijuana. Cannabis og LSD til-
heyra allt öðrum lyfjaflokki, svo-
kölluðum hugvíkkandi lyfjum,
eða því sem kallað hefur verið
á ensku „psycheldelic“, vegna
þess að þau hafa mjög sterk
sálræn áhrif og virðast víkka út
meðvitundina þannig að hún nær
yfir mun stærri hluta heilabús-
ins. Og þar höfum við fót fyrir
þeim sögum að LSD hafi verið
notað í sambandi við sállækn-
ingar. Það liggja fyrir vísinda-
legar niðurstöður um að sál-
könnuðir þurfi 20 sinnum minni
tíma til að meðhöndla sjúkling
sem hann fær til meðhöndlunar,
ef hann talar við sjúklinginn
undir áhrifum LSD. Og ástæðan
er sú, að læknirinn á mun greið-
ari aðgang að hinum dýpri svið-
um í huga sjúklingsins þegar
hann er undir áhrifum þessara
hugvíkkandi lyfja.“
„En virka ekki þessi hugvíkk-
andi lyf ákaflega misjafnlega á
fólk, eftir skapgerð þess og per-
sónuleika?"
„Jú, og þetta sést vel á hinum
mismunandi skömmtum sem
menn þurfa. Stífir og vanafastir
menn þurfa ef til vill 5—600
microgrömm, en aðrir, sem eru
næmir og opnir finna jafnsterk
áhrif af 50 microgrömmum.
Og ef ótti og óöryggi eru
áberandi í skapgerðinni, þá eru
líkur á því að slíkt magnist með-
an á áhrifunum stendur. Trú-
hneigður einstaklingur, aftur á
móti, verður sennilega fyrir
sterkri, trúarlegri reynslu eða
áhrifum. Sem sagt: þessi hug-
víkkandi lyf magna þá eiginleika
sem búa í einstaklingnum.
Þegar maður les blöðin þá er
oft gert mikið úr því að fólk fari
í svokallaðar „slæmar ferðir".
Ég man eftir rannsókn sem gerð
var árið 1960, en þá var hópur
lækna og vísindamanna sem
höfðu gefið LSD, spurður um
tíðni slæmra ferða og slæmra
áhrifa. ÍHú,n reyndist ákaflega
lítil, og af rösklega 2600 sjúkling-
um og heilbrigðum sem athugun-
in náði til, var tíðni slæmra ferða,
sem stöðva þurfti, undir 0,1%.
Bæði cannabis og LSD eru
mjög lítið eitruð efni. þannig að
þeim fylgja engir timburmenn
og ekkert er sannað um skað-
samleg áhrif þeirra. Og að auki
er hægt, án þess að afleiðingarn-
ar verði alvarlegar, að taka mjög
stóra yfirskammta. En ég er alls
ekki að ráðleggja fólki að fara
að taka þetta í massavís; LSD
ætti aðeins að vera notað af fólki
sem kann með það að fara og ég
held að það lyf sé svo sterkt að
það verði að notast undir hand-
leiðslu sérfræðinga og í sérstöku
umhverfi, því umhverfið hefur
mjög sterk áhrif á þann sem er
undir LSD-áhrifum.
Einnig þarf sá sem tekur LSD
að vera í sem beztu andlegu og
líkamlegu ástandi, því með áhrif-
um sínum magnar lyfið það með-
vitundarástand sem fyrir er. Sá
sem tekur LSD þegar hann er
með tannpínu er því væntanlega
ekki öfundsverður. En ég held
líka að cannabis sé svo milt efni
að það ætti ekki að vera vand-
meðfarnara en áfengi.“
„Öll ofnotkun hlýtur náttúr-
lega að vera til ills, en er ekki
hætta á, að eftir að fólk hefur
verið í þessum daufari lyfjum um
stund, að það vilji fara að reyna
eitthvað sterkara eins og ópíöt-
in?“
„Þessu hefur verið haldið fram
en það er langt síðan það kom í
Ijós að ekkert orsakasamband er
á milli neyzlu cannabis og ópí-
ata. Sú staðreynd að margir
heróínistar hafa einhverntíma
neytt cannabis er einfaldlega af-
leiðing af því að hvorutveggja er
dreift ólöglega af skipulögðum
glæpahringjum, þannig að lieró-
ínistinn hefur haft gnægð tæki-
færa til að útvega sér cannabis.
Glæpahringirnir vilja náttúrlega
fá sem flesta fasta kúnna, og þeir
reyna því eftir beztu getu að fá
cannabisneytendur yfir í vana-
myndandi hcróínneyzlu.
Liður í þessari glæpastarfsemi
er að blanda ópíum saman við
hash og kveður svo rammt að
þessu, að sennilega er stærsti
hlutinn af því hashi, sem boðið
er til sölu á dansstöðum og kaffi-
húsum á Vesturlöndum, bland-
aður ópíum. Slíkar hash-ópíum-
blöndur eru oft kallaðar „shit“
og því miður eru sterkar líkur
á því að hlutfallslega meira ber-
ist af slíku rusli til afskekktra
staða eins og íslands, því betri
tegundirnar af cannabis seljast
upp á hinum langa dreifingar-
vegi frá Austurlöndum.
Lögbann á neyzlu og dreifingu
cannabis er því vatn á myllu
glæpahringjanna sem nota sér
eftirspurnina eftir cannabis til
þess að læða hinum eiginlegu
eiturlyfjum inn á óharðnaða ung-
linga. enda hefur háttsettur mað-
ur í brezku heilbrigðisþjónustu
sagt, að hann þekki ekkert ljós-
ara dæmi um það hvernig lögg.iöf
hefði verri afleiðintrar er þær
sem henni var ætlað að koma í
veg fyrir.“
„Og að lokum: Heldur þú að
lögbanninu verði létt af cannabis
er fram líða stundir?"
36 VIKAN «•tbl-