Vikan


Vikan - 18.12.1969, Qupperneq 41

Vikan - 18.12.1969, Qupperneq 41
Húsmæður reynið SLOTTS-sinnep Sérstaklega gott bragð Sterk og falleg glös Fæst í næstu búð Spáni og Bretar sögðu um að al- drei hefðu þeir barizt við nokk- urn Frakka, sem þeim hefði þótt vænna um, Junot, Marmont og margir fleiri. En á Ítalíu var ekki öllu meira að gera, og fljótlega sneri Bona- parte heim til Parísar. Fyrir ítal- íuleiðangurinn hafði hann verið tötradúði, sem snobblýður höf- uðborgarinnar hafði að háði og spotti; nú var hann mesti sigur- vegari þjóðarinnar og tilbeðinn af háum sem lágum. Hann varð þegar meðal áhrifamestu maima í stjórn lýðveldisins, sem um þessar mundir hafði liðssafnað mikinn við Ermarsund í von um að koma liði yfir til Englands og sigra Breta, sem nú voru einir eftir í stríði við Frakka. Napó- leon þóttist fljótt sjá að franski herinn kæmist aldrei yfir sund- ið fyrir enska flotanum, og lagði þess í stað til að leiðangur yrði gerður út til Egyptalands. Hann fékk þessu ráðið og var sjálfur settur yfir þann fjörutíu þúsund manna her, er austur var sendur. Af öllum herferðum hans var þessi með mestum ólíkindum. Ástæðan, sem hann gaf upp, var sú að frá Egyptalandi yrði Frökkum mögulegt að ná til ríkis Breta í Indlandi, en raunar virð- ist exótísk rómantík hafa valdið miklu um þetta tiltæki hans. Hann hélt eldmóðugar tölur um að Evrópa væri of lítil sigurveg- ara sem sér, að hann myndi taka Konstantínópel af Hundtyrkjan- um og skapa Frökkum óravítt veldi í austurvegi. Hið ótrúlegasta af öllu saman við þetta ævintýri var líklega það, að hann skyldi sleppa eftir endilöngu Miðjarðarhafinu fram- hjá Nelson, sem sat þar fyrir honum með brezka flotann. En ekki hafði Egyptalandsherinn fyrr verið landsettur en Nelson hafði upp á flotanum, sem hafði flutt liðið og skaut hann svo til allan í kaf við Nílarósa. Til lands gekk Frökkum betur. Egyptaland. var þá tyrkneskt skattland, en umboðsmenn sol- dánsins þar voru Mamlúkkar, af- komendur málaliða þeirra er lagt höfðu þetta land undir sig á þrettándu öld. Napóleon strádrap niður illa vopnað riddaralið þeirra í orrustu skammt frá pýramídunum miklu og mætti eftir það ekki teljandi mót- spyrnu í landinu. Hermönn- um hans þóitti vistin þarna slæm; þeir þjáðust af hita, þorsta, sandroki og pestum, en yfirmaður þeirra var í essinu sínu sem aldrei fyrr. Fornminj- ar og austrænt andrúmsloft þessa móðurlands heimsmenningarinn- ar höfðuðu til listamannsins og rómantistans í honum, og hann gekk berserksgang við að endur- skapa landið eftir evrópskri og þó einkum franskri mynd. Það tókst auðvitað aðeins að tak- mörkuðu leyti, en þessi snerting við franska menningu hafði þó áhrif, sem Egyptar losnuðu aldr- ei við síðan. Enn er þess ógetið er merki- legast er við þennan leiðangur Napóleons. Hann hafði með sér fjölda vísindamanna, er rann- saka skyldu furður þessa dular- fulla lands. Vísindamenn þess- ir lögðu grundvöllinn að nútíma rannsóknum á fornmenningu Egypta. Hér sem oftar sýndi og sannaði Korsíkumaðurinn litli að hann hafði ekki einungis næm- an skilning og falslausan áhuga á fallbyssum, heldur og kúnst og vísindum. Þekkingarþorstinn var honum engu slakari drifkraftur en valdafíknin. En allt þetta færði hann og Frakkland litlu nær Indlandi og sigri yfir Englendingum. Árásin á Egyptaland varð auðvitað til þess að Bretum bættist nýr bandamaður þar sem Hundtyrk- inn var, og til að klekkja á þeim ófögnuði marséraði Bonaparte nú inn í Palestínu. Hermenn hans hegðuðu sér með verra móti í þeim leiðangri, enda hafa tyrk- nesk líf og arabísk trúlega verið eitthvað minna virði í þeirra augum en evrópsk. Þegar þeir tóku Jaffa, strádrápu þeir borg- arbúa niður, og sjálfur lét Na- póleon við eitt tækifæri slá af slatta af tyrkneskum stríðsföng- um. Hann settist um Akka, en varð að hopa þaðan eftir að hafa látið fimm þúsund manns fallna, enda var hið tyrkneska varnar- lið undir stjórn brezkra foringja. Hann hörfaði þá til Egyptalands með illa leiknar herleifar. Á undanhaldinu skipaði hann svo fyrir að þeir fáu hestar, er liðið átti eftir, skyldu hafðir fyrir sjúka og sára, og gekk sjálfur á undan með góðu fordæmi og labbaði með mönnum sín- um í steikjandi eyðimerkursól- inni. Nú hafði hann fengið sig fullsaddan af Austurlöndum, og í ágúst 1799 yfirgaf hann menn sína í Egyptó og slapp til Frakk- lands framhjá freigátum Breta. Lagalega séð var þetta strangt tekið liðhlaup, sem kostað hefði einhvern minni kall höfuðið, en hér fór á aðra leið. Þótt flest hefði gengið úrskeiðis fyrir Na- póleoni í Egyptalandi, urðu Frakkar honum guðsfegnir, því að heima fyrir var ástandið enn verra. Bretum hafði á ný tekizt að spana nokkur ríki, þar á með- al Rússland og Austurríki, gegn Frökkum, nær öll hin unnu lönd voru þeim töpuð og innrás í sjálft Frakkland yfirvofandi. —■ Efnahagur þjóðarbúsins var í ólestri og bæði konungssinnar og jakobínar brugguðu þjóð- stjórn Barrasar launráð. Napó- leon ham.raði járnið meðan það var heitt og gerði blóðlausa stjórnarbyltingu með stuðningi Sieyésar ábóta, eins helzta frum- herja byltingarinnar, Fouchés, sem síðar varð frægur og þó einkum illræmdur sem lögreglu- foringi keisarans og Talleyrands, sem varð utanríkisráðherra hans. Formlega var æðsta stjórnin höfð þannig, að í henni sátu þrír svokallaðir konsúlar. Varð Bonaparte fyrsti konsúll og í rauninni einvaldur, þegar til framkvæmdanna kom. Eitt af fyrstu verkum Napóle- ons, eftir að hann hafði fest sig í sessi heima fyrir, var að ryðja óvinunum frá landamærum rík- isins. Austurríkismenn voru sigr- aðir í blóðugum og tvísýnum orrustum bæði norðan og sunn- an Alpa og urðu þegar friður var saminn að sætta sig við að öll héruð vestan Rínar væru innlim- uð í Frakkland Þar að auki varð keisarinn í Vín að viðurkenna fjögur leppríki, sem Frakkar höfðu komið sér upp, batavíska lýðveldið (Holland), það Kísal- pínska (Langbarðaland), það helvetíska (Sviss) og hið lí- gúrska (Genúu). Næstu árin mátti heita að Frakkar sætu í friði, og á þeim tíma sýndi Napóleon eftirminni- lega að hann var engu síðri stjórnandi við þær aðstæður en á vígvellinum. Þá lét hann gera lögbók sína, Code Napoleon, sem byggði á því baráttumáli bylt- ingarinnar að allir skyldu jafnir fyrir lögunum. Þessi lögbók hafði ekki aðeins grundvallar- áhrif í Frakklandi, heldur og í fjölmörgum öðrum Evrópulönd- um. Fyrsti konsúllinn kom einn- ig af stað merkum umbótum í skólamálum, stofnaði lycéurnar svonefndu, þar sem embættis- menn og herforingjar framtíðar- innar skyldu uppalast. Hann kom fjárhag ríkisins líka í lag og studdi vísindi og listir, iðnað og verzlun, byggði hafnir, lagði vegi, gróf skipaskurði. Hins veg- ar leiddist honum lýðræði og harðbannaði alla krítik á sig og sína stjórn. Engu að síður gerði hann allt hvað hann gat til að sætta þær hatursfullu andstæður, sem bylt- ingin hafði skapað. Hann gaf út- lögum af aðalsættum upp sakir, enda var hann, að uppskafninga hætti, veikur fyrir hinu bláa blóði og þráði að hafa um sig hirðmenn með klingjandi æva- fornum aðalstitlum. Hann leyfði og kaþólsku kirkjunni að starfa í landinu á ný, en byltingin hafði gert hana útlæga og lýst skyn- semistrú ríkistrúarbrögð. Gömul kona heyrðist segja við þetta si. tbi. vtkAN 41

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.