Vikan


Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 34
3 5 6 Niu rauðar rósir... væru tilvalin gjöf handa sérhverri húsmóður. En rósir standa ekki lengi, því miður. Á hinn bóginn eru skýrir litir og hvítari áferð OXAN þvottarins óendanlegur ánægjuauki fyrir allar hús- mæður. OXAN lágfreyðandi þvottaefni er gert fyrir konuna, sem hefur ánægju af rauðum rósum og fallegum þvotti. LÁGFREYÐANDI ÞVOTTAEFNI JAFNGOTT í ALLAN ÞVOTT. HF HREINN STJO ÍRNÖSPÁ*$fc Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Lífið heimafyrir verður hversdagslegt, en á vinnu- stað verður óvenju skemmtilegt. Þér verður boðið á skemmtistað. Frændi þinn leitar á náðir þínar með einhverjar skriftir. Meiriháttar viðskipti ótímabær. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Þú virðist vera blindur fyrir ágöllum eins félaga þíns, sem þú ættir að vera varkár gegn. Dveldu sem mest heimafyrir og lagaðu til í kringum þig. Þú steypir þér i nokkrar skuldir nú um þessa helgi. Tvíburamerkið (22. mai — 21. júní); Þú vanrækir eitthvert verkefni, sem kemur þér inn- an tiðar mjög illa, ef þú tekir þig ekki á. Þú hefur gott af því að gagnrýna störf þín vel og vandlega. Vinur þinn sýnir þér fremur leiðinlega framkomu. Á Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú færð heimsókn persónu, sem biður þig að hjálpa sér og sem, ef þú mögulega getur, ættir að liðsinna. Þú þarft að verjast ágangi forvitins fólks. Talan 4 getur skipt mjög miklu máli um helgina. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Einhverjar breytingar á högum þínum eru væntan- legar og ef þú leggur þig fram gætirðu komið þér laglega fyrir. Þú hefur lengi beðið eftir einhverri sendingu, en líklega verðurðu fyrir vonbrigðum. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Það gripur þig nokkurt eirðarleysi og skapþyngsli. Þú ættir að starfa sem mest og ekki gefa þér tíma til leiðinda. Þú verður að sætta þig við gerðar ákvarðanir vissrar persónu, sem þér falla miður vel. Vogarmerkið (24. september — 23. október); Eitthvað skemmtilegt stendur í nánu sambandi við flutninga. Þú dvelur að líkindum fjarri heimkynn- um þinum um helgina og sennilega mikið utan dyra. Maður, er þú þekkir lítið, færir þér hugmynd. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert heldur sjálfhælinn og gerir mörgum gramt í geði með rembingslegri framkomu. Þér er fyrir beztu að leita þessara galla þinna og varast þá, jafnvel þótt það muni kosta þig talsvert erfiði. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Með því að hafa augun opin og fylgjast vel með geturðu gert afar góð viðskipti. Þú ættir að sýna ákveðinni persónu meiri vináttu og umhyggju, eins og þú hefur hugsað þér. Skemmtu þér um helgina. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20 janúar): Þér er eitthvað þungt i skapi vegna órét'tar, sem þú hefur verið beittur. Þú færð óvænta vinaheimsókn um helgina, sem kemur þér í betra skap. Kunningi þinn biður þig bónar, sem þú átt erfitt með að neita. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú hefur átt náðuga daga undangengið og bráðum verðurðu önnum kafinn. Þú ferð i smáferðalag og skemmtir þér mjög vel. Þú verður fyrir einhverju happi á miðvikudaginn. Þú færð kunningjaheimsókn. !Vb Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz); Þér finnst ekki mikil ástæða til að vera bjartsýnn B þessa dagana en innan skamms muntu fá ástæðu til 1 þess. Þú lendir í vandræðum vegna greiða, sem þú 1 gerðir kunningja þínum ekki alls fyrir löngu. 34 VIKAN 13-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.