Vikan


Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 49

Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 49
lokuðum. En ég geng út frá, að þér eigið eftir að opna þær aftur " Lori var svo hvumsa, að hún svaraði engu. Það voru meira en fimmtán ár frá því hún talaði við stjúpföður sinn, en allt í einu fannst henni sem hús þetta væri nokkurskonar ímynd þessa slæma og lymskulega manns, sem biði eftir lokauppgjörinu . . ,,Ég vona, að okkur Aline frænku eigi eftir að koma vel saman," tókst henni loks að segja. ,,Ég þarf áreiðanlega góða aðstoð til að geta áttað mig á öllu hérna." Hann vatt sér að henni og brosti. „Reynið mig, frænka. Byrjaðu á að kalla mig Jim. Ertu tilbúin til að standa til auglitis við fjölskylduna?" „Fjö . fjölskylduna?" „Já," hló hann. „Hina blásnauðu Kensingtona. Þá, sem eftir eru. Aline frænka er ættfaðirinn eða ættmóðirin, sem við öll leitum til eftir vernd, hlýju og gjafmildi." „Átt þú heima hérna, Jim?" „Nei, en ég kem hingað oft. Ég leigi herbergiskytru í Ardmore fyrir sjö dali um vikuna til að vera viðbúinn, ef einhver þyrfti á leigubíl að halda Þú veizt sjálfsagt ekki mikið um þfna eigin fjölskyldu? James frændi var ekki sérlega vingjarnlegur við okkur. Þér þykir sjálf- sagt undarlegt að heyra pabba þinn kallaðan James frænda?" Nú rann það upp fyrir Lori, hve lítil afskipti stjúpfaðir hennar hafði haft af hinum í fjölskyldunni. Jim hélt, að hún væri [ raun frænka hans. Hana langaði til að upplýsa þennan unga mann um efasemdir sínar og kviða og um uppruna sinn, En eitthvað fékk hana til að halda þessum leyndar- málum fyrir sig aleina. „Já, að vissu leyti er þetta skrítið," svaraði hún einungis. „Getum við nú ekið niður að húsinu? Það verður bráðum orðið dimmt?" „Það er ævinlega dimmt þarna niðri, Lori. Ég er fegin, að þú skulir vera komin. Það hefur aldrei verið skemmtilegt á Kensington-eigninni síðan...... Jæja, nú ökum við niður eftir." Áður en hann snéri sér aftur að stýrinu sá hún bregða fyrir sársauka- bliki í augum hans og að hann síríkkaði á kjálkavöðvunum. Svo rann bíllinn hægt niður í stóran sveig og að hringlaga akbrautinni, sem lá umhverfis húsið. Þau óku að yfirbyggðum innganginum. Lori horfði eftirvæntingarfull á stóru valhnetutrésdyrnar, en enginn opnaði til að bjóða hana velkomna. En einhver hlaut samt að hafa heyrt bílinn koma. Jim hjálpaði henni út úr bílnum og upp á veröndina, og nú sá hún, hvað húsinu var illa viðhaldið. Hvft málningin var orðin flekkótt og upp- hleypt, og sumstaðar sást, að klæðningin var fúin. Einungis tvöfaldar dyrnar virtust vel við haldnar. Dyrahamarinn var úr smfðajárn og hékk neðan úr kjafti einhvers óargadýrs. Það hljómaði sem sprenging, er Jim notaði dyrahamarinn. Aline frænka hefur húsið alltaf læst," sagði hann afsakandi. „Hún tekur hlutverk sitt mjög alvarlega." „Er hér enginn garðyrkjumaður?" „Jú, Frank Adler. En hann er gamall og ekki fær til mikilla verka. Hefur átt hér heima í næstum fjörutíu ár og tilheyrir fjölskyldunni. Ef eitthvað sérstakt þarf að gera við og við höfum peninga til, þá fáum við hjálp frá þorpinu. En það eru víst ekki alltaf peningar til." „Mér hafði skilizt, að til væri einhverskonar sjóður til viðhalds hús- inu," sagði Lori, því hún minntist orða lögmannsins. „Það er líka rétt," samsinnti Jim og hamraði aftur á hurðina. „Sjóður- inn er ekki stór, dugar Aline frænku rétt til lífsviðhalds og að greiða skattana. Sjóðurinn er undir stjórn ungs lögmanns ( Ardmore. Þú vilt sjálfsagt fara yfir reikningana með Joel Carthy?" Lori heyrði enn hávaðann í dyrahamrinum og sagði við sjálfa sig, að húsið væri stórt og Aline frænka gömul, en hún komst ekki hjá að láta sér detta í hug, að þessi bið væri gerð að yfirlögðu ráði. „Kannske er enginn heima?" sagði Lori. Hann brosti kaldranalega. „Aline frænka er alla tíð heima. Hefur ekki farið út úr húsinu í eitt einasta sinn í þrjátfu ár." Lori varð bilt við að sjá konuna, sem loks opnaði, því hún var alls ekki gömul og gamaldags eins og hún hafði reiknað með, heldur ung og mjög snotur kona. Hún horfði næstum ókurteislega dökkum, gneist- andi augum á Lori. Hárið á henni vakti einnig athygli Lori, því bað féll þykkt og óreglulega greitt niður á herðarnar. „Ah, Peggy," sagði Jim, „þetta er Lori Kensington, nýi eigandinn að Kensington, — og Lori, þetta er Peggy Seldon, svilkona mín." Hávaxin konan kastaði hnakka, „Ég veit hver hún er, Jimmy. Hef lesið bréfin hennar til Aline frænku. Komdu inn, góða, þetta er húsið þitt." Lori var ekki fyrr búin að ná sér eftir undrunina við að sjá konuna, en henni krossbrá við að heyra, að Jim væri giftur. Anddyrið var mjög stórt, og hún sá naumast út ( hinn endann á þvf, þvf eina lýsingin var einstök pera i fallegri kristalsljósakrónu, sem hékk niður úr hvelfdu loftinu, að minnsta kosti í þrjátíu feta hæð frá gólfi. Framhald í næsta blaði. BIBLÍAN RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA TILVALIN FERMINGARGJÖF BIBLÍAN - RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóSaútgáfu og bezta ferm- ingargjöfin sem völ er á. Hér er um aS ræSa nýstár- lega túikun á heilagri ritningu, sem fellur ungu fólki vel í geS. Myndirnar, sem danska listakonan Bierte Dietz hefur gert, eru litprentaSar í Hollandi, en textinn er prentaSur hérlendis. Magnús Már Lárusson, háskólarektor, hefur annazt útgáfuna og rit- ar inngang og ágrip af sögu íslenzkra Biblíuþýðinga frá upphafi. Þetta er vönduS og glæsileg mynda- bók. sem hentar sérstaklega vel til fermingargjafa. Fæst hjá næsta bóksala HILMIR HF. SKIPHOLTI 33 POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK 13. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.