Vikan


Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 4

Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 4
Svo liggur hver sem hann hefur um sig búið. íslenzkur málsháttur. # fólk í fréttunum Lúðvík 18. Frakkakonungur, sem tók við völdum eftir fall Napoleons mikla, átti á efri árum sínum mjög erfitt um gang. Sjálfur vissi hann, að hann átti ekki langt eftir ólifað og tók því með karlmennsku og heimspekilegri ró. Þó var eitt, sem olli honum kvíða. Hann gerði sér ljóst, að öll líkindi voru til þess, að bróðir hans mundi taka við ríkjum eftir hans dag, en með þeim bræðrum voru litlir kærleikar. Þessi bróðir hans var Karl X. — Herra minn, sagði hann dag nokk- urn við herbergisþjón sinn. — Eg veit, að margir Frakkar eru argir yfir því, að konungur þeirra er fótaveikur og getur ekki stigið í lappirnar. En hvað munu þeir segja, þegar þeir fá brátt kóng, sem stígur ekki í vitið? UNISEX Hér eru skemmtilegar skyrtu- blússur, frá fyrirtækinu Stiag í Silkiborg. Þær eru teiknaðar af Bent Visti og framleiddar úr mjúku Helanca efni. Þessar blússur eru mikið í tízku nú og verða í sumar. Þær eru kallaðar UNISEX, og eru bæði fyrir hana og hann. ☆ Louis Armstrong er eim í fullu fjöri og heldur hljómleika bæði í heimalandi sínu og einnig erlendis. Nýlega sagði hann frá því, hvernig hann færi að því að hrífa áheyrendur sína kvöld eftir kvöld: — Ég þarf þrjár klukkustundir til að undirbúa mig undir hverja hljómleika. — Svo langan tíma tekur það mig að vera andlega og líkamlega „upphitaður“, ef ég má orða það svo. Allan tímann blæs ég hægt í trompetinn minn og ég finn glöggt hvernig ég verð heitari og heitari smátt og smátt. Þegar ég er kominn á „suðu- punktinn“, sem ég kalla — þá geng ég inn á sviðið. í sama viðtali upplýsti Armstrong annað, sem ekki er síður at- hyglisvert. Þegar hann var spurður að því, hvers konar tónlist hon- um geðjaðist bezt að, svaraði þessi konungur jazzins: — Auðvitað klassískri tónlist! Margir álíta, að Danmörk sé mesta osta- land í heimi, en þó er Frakkland enn fremra á þessu sviði og geta Danir ekki keppt við það. Hinn ágæti matmaður og sælkeri, Raymond Lindon, skrifaði fyrir nokkrum árum ágæta bók um osta og menn, sem kunna að meta þá. í bók sinni nefndi hann 290 mismunandi ostategund- ir, sem hann hefur sjálfur bragðað. Hann sendi Sir Winston Churchill bók- ina, um leið og hún kom út, því að Churc- ihll var geysimikill ostamaður og hafði góðan smekk fyrir þeim. Gamli maðurinn sendi höfundinum þakkarbréf, kvaðst hafa lesið bók hans með ánægju og lauk bréfinu með svofelldum orðum: — Land, sem getur státað af tæplega 300 ostategundum, hlytur að lifa um aldir alda. Hlustað á samtal tveggja imgra stúlkna í strætisvagni: — Hvers vegna ertu aldrei með gleraugun, manneskja, þegar þú ert með honum Jóni? — Af því að Jóni finnst ég fallegri gleraugnalaus, og mér finnst Jón miklu sætari, þegar ég er ekki með gleraugun.... BEETHOVEN í BAKSÆTINU Franski píanóleikarinn Claude Kahn þarf, starfs síns vegna, að ferðast heilmikið og lengi áður en hann kemst á áfangastað — þar sem hann heldur hljómleika. Því var það að honum datt í hug að láta setja pínupíanó (mini) í aftursætið á bílnum sínum. Og á meðan konan situr við stýrið og ekur, situr Kahn í aftursætinu og æfir verkin sem hann ætlar að flytja. Brell- ið! ☆ Með því að vinna af sam- vizkusemi og álúð átta tíma á dag, getur svo farið, að maður verði svo hepp- inn að vera gerður að for- stjóra. Og upp frá því verður maður að vinna fimmtán tíma á dag — og alltaf af samvizkusemi og alúð! 4 VIKAN 13. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.