Vikan


Vikan - 25.03.1970, Qupperneq 30

Vikan - 25.03.1970, Qupperneq 30
(THE GRADUATE) 9. HLUTI CHARLES WEBB — Hvað gerði hann þér? — Ekkert, svaraði hún. — Eg varð bara örlitið æst. — Æst yfir hverju? — Þetta var og er einkamál! sagði Benjamín. — Geturðu ekki skilið það?! Lögreglumaðurinn sneri sér við og horfði á Benjamín. — Hvað heitir þú? — Ha? — Hvað heitirðu? — Þú verður að hafa ákæru á hendur mér ef þú átt heimt- ingu á að vita nafnið. Hver er ákæran? — Hafðu engar áhyggjur af því. Hvað heitirðu? — Hann heitir Braddock, sagði herra Berry. — Hann heit- ir Benjamín Braddock. — Ertu stúdent? — Nei. — Heldur hvað? — Ég er íbúi. — Hvað vinnurðu? Hver er staða þín? — íSg geri ekkert. — Hvað meinarðu? — ííg meina að ég hef ekki atvinnu. — Ert þú að reyna að vera sniðugur? — Nei. — Hvað gerirðu þá? — Ég vinn ekki við neitt. — Hvað gerirðu þá? — 53g get ekki séð að það komi málinu við. — Nú? Hvað gerirðu þá? — Er þetta viðtal eða eitt- hvað svoleiðis? Lögreglumaðurinn leit á herra Berry, síðan á stúdentana tvo sem stóðu í miðjum ganginum. — Komið ykkur inn til ykkar, sagði hann og benti. Þeir fóru inn, rólega þó, og lokuðu á eftir sér. — Það verða engin frekari vandræði, sagði Benjamín. Lögregluþjónninn horfði lengi á Benjamín og kinkaði svo kolli. — Allt í lagi, Ben, sagði hann. — Ég treysti þér í þetta skipt- ið. Hann snerist á hæl og gekk niður stigann og út. — Herra Braddock? sagði húsráðandinn. — Já? — Ég vil að þú verðir farinn héðan innan viku. — Hvað? Herra Berry svaraði ekki en hélt aftur niður stigann. — Herra Berry? — Þú heyrðir hvað ég sagði. Benjamln flýtti sér á eftir honum. — Af hverju á ég að fara? — Þú átt bara að fara! — Hvers vegna? — Þú veizt hvers vegna. — Nei, herra Berry, ég veit það ekki. Segðu mér það. — Vegna þess að ég vill ekki hafa þig hérna. — Af hverju ekki? — Vegna þess að mér líkar ekki við þig, herra Braddock. Mér finnst þú leiðinlegur. Benjamín horfði á eftir hon- um og yggldi sig. Hann hlustaði á hann loka á eftir sér og læsa. Svo gekk hann aftur hægt og rólega inn í herbergið sitt. Ela- ine stóð enn í dyrunum. Benja- mín gekk framhjá henni, að rúminu sínu og settist á brík- ina. — Benjamín. . . . — Já. — Mér finnst leiðinlegt að ég skuli hafa æpt. Hann sat enn um stund á rúminu sínu, stóð síðan upp og gekk yfir herbergið að stólnum þar sem ferðataskan hans var. Hann flutti hana yfir á rúmið og opnaði hana. Elaine lokaði dyrunum og settist svo á stólinn í miðju herberginu. — Benjamín? — Já. — Má ég spyrja þig að dá- litlu? Hann kinkaði kolli, gekk að kommóðunni og opnaði efstu skúffuna. Hann tók upp skyrtu og setti hana í ferðatöskuna. — Hvað hélztu að myndi ske? — Ha? — Þegar þú komst hingað, sagði hún. —- Hvað hélztu að myndi ske okkar í millum? — Ég veit það ekki. — Hvörfluðu nokkurn tíma að þér tilfinningar mínar til þín? — Sko, sagði hann og sneri sér að henni. — Ég vil ekki tala í augnablikinu. Mér finnst þetta allt saman leiðinlegt, en ef þér er sama þá vildi ég alveg eins vera einn. Elaine kinkaði kolli. — Er ekki allt í lagi með það? — Jú, sagði hún, allt í lagi. Má ég sitja hérna þangað til þú er búinn að pakka niður? — Alveg eins og þú vilt. — En geturðu ekki sagt mér um hvað þú varst að hugsa áð- ur en þú komst hingað? — Ég veit það ekki, sagði hann. Hann gekk að fataskápn- 30 VIKAN 13-tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.