Vikan - 25.03.1970, Síða 32
'■% :
Því var spáð fljótlega eftir að Bítla-
æðið svonefnda greip um sig árið
1963—64, að það myndi ekki standa
lengi yfir og að innan skamms myndi
enginn muna eftir Bítlunum. Raunin
hefur orðið allt önnur, og þeir eru
jafn vinsælir í dag og þeir voru þá.
En alltaf öðru hvoru heyrum við
fregnir af þvi að þeir séu að hætta og
jafnvel að þeir séu dauðir. Það er al-
gjör óþarfi að hafa áhyggjur af
þessu, við vitum að þeir eru eins
lifandi og ég og þú, og við VITUM
að þcir hætta ekki.
Þessi mynd var tekin síðari hluta
árs árið 1962, þegar þeir höfðu lokið
við að leika inn á fyrstu hljómplötu
sína, „Love me do“. Enginn sem var
viðstaddur þá upptöku hafði álit á
þeim — nema Brian Epstein, hinn
látni umboðsmaður þeirra, en það
kom líka á daginn að hann einn hafði
rétt fyrir sér.
ííMmm
Fyrsta kvikmynd hljómsveitarinnar
var gerð árið 1964, og hlaut nafnið
„A Hard Day‘s Night“.
Þessf mynd sýnir atriði úr kvikmynd-
inni og stúlkan lengst til vinstrl, Patti
Boyd, er nú kölluð frú George Harri-
son og er gift þeim sem hún er að
klippa á mynidnni.
4
The Bcatles fóru til Bandaríkjanna á
árinu 1964, og gerðu „allt vitlaust" ef
svo má segja. Nokkra daga notuðu
þeir til að hvíla sig i Holiywood, og
þar var þessi mynd tekin.
4
Þegar þeir komu aftur voru þeir
orðnir heimsfrægir, fleiri þekktu Bítl-
ana en Bandaríkjaforseta, og í safni
Madame Tussaud voru settar upp af
þeim vaxmyndir, en slikt þykir geysi-
legur heiður. Myndirnar voru siðar
notaðar á forsíðu plötuumslagsins á
„Sgt. Pepper‘s“ plötunni — þeirri sem
var og er mesta bylting í dægurtón-
list ailra tima.
4
Svo gifti Ringo sig og hefur nú eign-
ast tvö börn sem hann sinnir af mik-
illi alúð ásamt konu sinni, Maureen
Cox. En George gifti sig iíka og hér
eru þau hjónakorn, öll fjögur, George
og Patti og Maureen og Ringó.
Bítlarnir
írá upphafi
-til enda?
WM
v///.w/Æsmmí.
i 1
| rS; M ■ :: ■ : .1 : ^
Allt fram til ársins 1966 flökkuðu Bítl-
arnir um heiminn og héldu hljóm-
leika. Þeir komu meðal annars til
Japans og þar voru táningar hásir í
margar vikur á eftir og kellingar
fundu til í lærinu unz sólin fór að
verma tinda Fuji á nýjan leik árið
eftir.
Paul var lengi vel sá eini sem ógiftur
var, en hann hafði verið bendlaður
við leikkonuna Jane Asher. Einn góð-
an veðurdag giftist hann fráskilinni,
bandarískri stúlku, Lindu Eastman,
og hafa þau nú eignast erfingja. Þessi
mynd var tekin skömmu eftir brúð-
kaup þeirra, og með þeim Lindu og
Páli eru Jón og Jókólína.
32 VIKAN '3 tbl