Vikan


Vikan - 25.03.1970, Side 41

Vikan - 25.03.1970, Side 41
um að fyrirtæki hans greiddi lionum 150 dollara á mán- uði í tvö ár. Gegn því áttu þeir svo að gefa út allar bækur, sem hann skrifaði á þeim tíma. Að skilnaði gaf Brett honum ráðleggingar, sem ef til vill voru þær beztu, sem hann fékk bæði fyrr og síðar: „Ég vona, að verk yðar beri héðan í frá vott um þá framför, sem ég varð svo greinilega var við í fyrstu bókum yðar, en sem ekki kemur jafn greinilega fram í tveim þeim síðustu, af því að á þeim er nokkur hroð- virknirblær. Heimurinn hef ur ekki þörf fyrir aðrar bók- menntir en þær beztu frá bendi sérhvers rithöfundar.“ Þessu svaraði Jack þann- ig: „Það er von mín og ætlun, undir eins og ég er búinn að koma fótunum undir mig aftur, að skrifa ekki sérlega mikið, heldur gefa aðeins út eina bók, eina góða bók á ári. Ég er mjög seinn að skrifa. Ástæðan til þess, að ég bef gefið svona mikið út er sú, að ég hef unnið sleitu- laust, dag eftir dag, án þess að unna mér hvíldar. Jafn- skjótt og ég hef losnað við ]iá þungu kvöð, að þurfa að vinna baki brotnu í dag til þess að hafa ofan í mig á morgun; þegar ég þarf elcki lengur að eyða kröftum min- um í alls konar igripavinnu, er ég sannfærður um, að ég á eftir að afreka mikið.“ í lestinni á leiðinni heim lagði Jack þrjár siðustu bæk- urnar sinar á bekkinn and- spænis sér í vagninum. Þær böfðu allar komið út í októ- ber, hálfum mánuði áður en bann kom til New York aft- ur. Hann sá, að það var ekld einungis met að gefa út þrjár bækur á einum mánuði. Það var hrein fífldirfska, sem Brett hafði með réttu fundið að. Hann ákvað, að fyrst hann væri nú búinn að binda sig einu útgáfufyrirtæki, skyldi hann liéðan í frá fara slcynsamlegar að ráði sínu. ÞegarJack kom til Pied- mont, sá bann, að Eliza bafði búið hjá Bessie í hálf- an mánuð og stillt til friðar á milli Bessiear og Flóru. Hann byrjaði aftur að vinna 19 tíma á sólarhring. Einu livíldarstundirnar voru mið- vikudagarnir, þegar gamlir og nýir vinir hans komu i heimsókn, og liann spilaði við þá póker eða skemmti sér við aðrar dægradvalir. Framliald. Frú Robinson Framhald af bls. 31. — Benjamín. ... — Já. — Hvað ætlarðu að gera núna? Hann hristi höfuðið og ýtti rúminu aftur upp að veggnum. — Hvað ætlarðu að gera núna? spurði hún aftur. — É'g veit það ekki, Elaine, sagði hann. Benjamín gekk aft- ur að kommóðunni, opnaði efstu skúffuna og fór með höndina um botn hennar. — Ætlarðu heim? — Nei. Hann lokaði skúffunni og opnaði þá næstu þar sem hann þreifaði líka fyrir sér. — Nú, hvert ætlarðu þá? — Ég sagði að ég vissi það ekki! Að lokum opnaði hann þá neðstu og strauk höndinni eftir botninum en fann ekki beltið. Svo fór hann yfir að skrifborð- inu og leitaði í öllum skúffum þar. — Hvað ætlarðu að gera? — Viltu hafa mig afsakaðan augnablik, sagði Benjamín. Hann fór út og inn í baðherbergið þar sem hann þvoði sér um hendurn- ar. Hann þurrkaði sér um hend- urnar á næsta handklæði sem hann fann og fór aftur inn til sín. — Hvað sagðirðu? spurði hann og skellti á eftir sér. — Hvað ætlarðu að gera? — Elaine, ertu vita heyrnar- laus? — Ha? — Ég veit ekki hvað ég ætla að gera! — Hefurðu ekki hugmynd um það? — Nei. — Ekki smávegis hugmynd? — Nei. Hann leit á hana um stund og fór svo að fataskápn- um. Hann opnaði dyrnar, tók herðatré niður af slánni og þreif- aði með því eftir skápbotninum í gegnum rykið. Svo henti hann því inn í eitt hornið og stillti sér upp á miðju gólfi. — En á morgun? spurði hún. — Hvað með það? — Veiztu ekki einu sinni hvað þú ætlar að gera á morgun? — Nei. — Ætlarðu með rútu eða hvað? — Elaine, sagði hann, — ég myndi segja þér það ef ég vissi það. En nú veit ég það ekki svo ég bið þig um að vera ekki að spyrja mig að þessu. — Með lest? — Drottinn minn dýri! Hann leit undir koddann sinn á rúm- inu. — Benjamín.... — Já! — Eg vil ekki að þú farir fyrr en þú veizt hvert þú ætlar. Hann snarsnerist við og starði á hana, með koddann í höndun- um. — É'g vil að þú hafir ein- hverjar ákveðnar áætlanir þegar þú ferð. — Hvers vegna? — Af því að ég vil það. — Ja — viltu nokkuð að ég fari yfirleitt. Hún kinkaði kolli. — Nú? — Viltu láta mig vita hvað þú ætlar að gera, nákvæmlega, þeg- ar þú ferð? — Hefurðu áhyggjur af mér? — Benjamín, sagði hún og stóð upp, — þú komst hingað mín vegna, þú seldir bílinn þinn mín vegna, þú gjörbreyáttir lífi þínu mín vegna og nú ætlarðu að fara mín vegna. — Og hvað með það? — Þú hefur gert mig ábyrga fyrir þér. — Guð minn góður! — Og þess vegna vil ég fá að vita hvað þú ætlar að gera. — Ég veit það ekki! hrópaði hann og kom skrefi nær henni. — Eg veit það ekki! Eg veit það ekki! Eg veit það ekki! Hann setti koddann aftur á sinn stað. — Viltu þá ákveða þig áður en þú ferð? — Elaine, hvað kemur þér það við hvað ég geri? — Þú hefur komið því þann- ig fyrir að mér kemur það við, Benjamín. — Nei. — Hvað meinarðu með „nei“? sagði hún. — Heldurðu að ég geti bara látið það sem vind um eyrun þjóta að einhver endur- skipuleggur líf sitt mín vegna? — Láttu ekki svona, Elaine. — Heldurðu að ég geti það? — Já, af hverju ekki? — Vegna þess að ég get það ekki. — Þá ert þú hræsnari. — Ha? — Elaine, þú ert hræsnari. Ef 13. tbi. VIKAN 41 BLÓMABÚÐIN ÐÖGG er meðlimur í Sendum um allan heim. Páskablóm og páskaskreytingar í miklu úrvali Allskonar gjafavörur. Höfum í þjónustu okkar einn færasta skreytingamann landsins, Ásmund Jónasson, skreytingameistara. BLOHABUDIH DðGC Álfheimum 6 - Sími 33978

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.