Vikan


Vikan - 25.03.1970, Qupperneq 8

Vikan - 25.03.1970, Qupperneq 8
Þorpin í Sambíu eiga sér flest skamman aldur. Jarðvegurinn er útpíndur eftir fáein ár og þá verður að flytja sig á nýjan stað. Fleiri og fleiri sjúklingar sækja til Duncans og félaga hans, þótt töframennirnir. sem áður voru einir um lækningastörfin, spilli fyrir þeim eftir beztu getu. Duncan og hjúkrunarkona hans, Jane 0‘Brien, láta sér líða í brjóst á leið milli sjúkraskýlanna. Erfiðleikarnir eru margir og miklir og al- gert vonleysi stundum skammt undan. James Lawless, brezkur læknir, stofnaði hina fljúgandi læknasveit Sambíu. Ilann er sannfærður um að flokkur hans sé sá bezti sinnar tegundar, sem til er í heiminum. En hann vill engan lækni hafa lengur en hálft ár, eftir það eru þeir orðnir of „hægrisinn- aðir“. LÆXNIR I SAMBiU MEÐALALDUR SAMBÍUMANNA ER ÞRJÁTÍU OG FIMM ÁR. BARNADAUÐINN ER GÍFURLEGUR. ÞAÐ ÞARF EKKI MIKIÐ TILAÐ DEYJA f SAMBfU. RISPAÁ HENDI DUGAR, SVO EITT- HVAÐ SÉ NEFNT. ÞANNIG HEFUR ÞAÐ ALLTAF VERIÐ f SAMBfU. LANDSMENN HAFA TIL ÞESSA LÍTIÐ SEM EKKERT HAFT AF LÆKNUM OG ALGENGUSTU LYFJUM AÐ SEGJA. Sambía er ríki í sunnanverðri Afríku og hét áður Norður- Ródesía. Það er að flatarmáli sjö hundruð fjörutíu og sex þúsund ferkílómetrar, eða meira en sjö sinnum stærra en ísland. íbúar eru tæpar fjórar milljónir, þar af tæplega sjötiu þúsund Evr- ópumenn og þrettán þúsund Asíumenn. Afríkumennirnir í landinu skiptast í yfir sjötiu þjóðflokka og ættbálka, sem flestir tala Bantúmál. Helmingur íbúanna er undir átján ára aldri, og þeim fjölgar um þrjú prósent á ári. Aðeins rúmlega níu hundr- uð þúsund hinna afrísku íbúa búa í borgum, hinir í sveitaþorp- um. Sambía er að mestu þakin frumskógi og savannagróðri. Landið er yfirleitt í þúsund til fimmtán hundruð metra hæð yf- ir sjávarmáli, og þar er ræktað tóbak, maís, jarðhnetur, græn- meti og bómull. Landsmenn eru ennþá flestir heiðnir, en margir hafa þó gerzt kristnir, bæði ka- þólikkar og prótestantar. Land- ið „fannst“ á átjándu öld, en „gleymdist“ aftur. Livingstone kom þangað og á liæla honum trúboðar, og Cecil Rhodes kom líka og á hæla honum nýlendu- herrar og brezkir landnemar. 1888—1924 var landinu stjórnað af Brezka Suður-Afríkufélaginu, en varð eftir það verndarsvæði brezka heimsveldisins. 1953 voru Sambía, Ródesía og Malaví (þá Nýassaland) sameinuð í banda- lagsríki, sem hélzt við í tíu ár. 1964 náði Sambía sjálfstæði und- ir handleiðslu núverandi forseta, Kenneths Kaunda. Stjórnarfar er byggt á lýðræði en forsetinn valdamikill. Meðalárstekjur á íbúa eru þetta fjórtán- fimmtán þúsund krónur, en verðlag er litlu Iægra en á Norðurlöndum. Koparnámurnar leggja til helm- ing þjóðarframleiðslunnar. Sam- bía flytur út meiri kopar en nckki’rt annað land í heimi, að einu undanskildu. Meðalaldur landsmanna er þrjátíu og fimm ár, næstum sex- tíu prósent þeirra ólæsir og óskrifandi. Tvö blöð eru gefin út í landinu, annað af brezkum aðilum. Þar er líka ríkisrekið sjónvarp og útvarp. Sambía hef- ur notið allmikillar þróunar- hjálpar víða að, meðal annars frá Norðurlöndum. Höfuðborg landsins er Lusaka, með rúmlega hundrað og fimmtíu þúsund íbúa. Aðrar helztu borgir eru Kitwe og Ndola, sem eiga upp- gang sinn einkum koparnámun- um að þakka. í meðfylgjandi grein verður brugðið upp skyndilýsingu á heilbrigðisástandinu í landi þessu, sem raunar gæti að mörgu Ieyti átt við hvaða vanþróað land sem er. Toffee grét daginn sem sjúkra- skýlið í Lunsemfwa-dal brann. Hús þetta var að vísu ekki ann- að en nokkrar bambusstengur klíndar saman með leir, ósköp óálitlegt hreysi sem sagt og haf- andi enga þýðingu fyrir aðra en þá, sem höfðu það fyrir sitt lífs- akkeri. Sjúkrastofan, sem opinberlega var auðkennd með einkennis- merkinu „Austur-fjögur“ og var í Sambíu austanverðri, var tíu mínútur að brenna. Það bar við á laugardagsmorgun, þegar raf- all sprakk. Útvarpstækið, skýrsl- urnar yfir sjúklingana, nokkur teppi og smáræði af lyfjum var 8 VIKAN 13. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.