Vikan - 29.10.1970, Qupperneq 6
F ullkomnasti
kúlupenninn
keiiiur frá
Svíþjiið
'P&TvOXA,'TvW
me'X
5(^czJL o cLcCutak
epoca
er sérstaklega lagaður til
að gera skriftina þaegilega.
Blekkúlan sem hefir 6 blek-
rásirtryggir jafna og örugga
blekgjöf til síðasta blek-
dropa. BALLOGRAF penn-
inn skrifar um leið og odd-
urinn snertir pappírinn -
mjúkt og fallega.
U
■
Heildsala:
l>ÓK»IIR SVEINSSON & Co. h.k*.
GEMST ASKMDUR
Úrval
Skipholt 33 - Pósthólf 533
Að launa gjöf eða
gjalda
Kæri Póstur!
Auðvitað lesum við Vikuna
vikulega og við höfum séð, að
þú hefur oft verið gerður að
hæstaréttardómara í deilum
manna á milli, sérstaklega þeg-
ar um veðmál er að ræða.
Þess vegna langar okkur, tvo
kumpána, til að biðja þig að
skera úr deilumáli okkar. Þetta
er veðmál og það er mikið í
húfi.
Þrætan stendur um þetta:
Hvort er réttara að segja „Æ sér
gjöf til gjalda“ eða „Æ sér gjöf
til launa“. Við vonum, að þú
bregðist skjótt við og svarir
okkur af þinni alkunnu vizku.
Bezt væri, ef þú gætir svarað
okkur sem allra fyrst. Annar
okkar skrifaði þér hér um árið,
en varð að bíða í fjóra mánuði
eftir svari. Við getum ekki beð-
ið svo lengi.
Með beztu kveðjum og fyrir-
fram þakklæti.
Tveir þverhausar.
Vizka Póstsins er ekki meiri en
svo, að hann verður að teygja
sig í bókahilluna, þegar mikið
liggur við, eins og í þetta sinn.
„Æ sér gjöf til gjalda“ er al-
gengur málsháttur og þess vegna
vorum við að því komnir alð
dæma honum sigurinn. En í „ís-
lenzkum málsháttum", sem
Bjarni Vilhjálmsson og Óskar
Halldórsson hafa tekið saman,
er einnig að finna málsháttinn
„Sér gjöf til launa“. — Þið haf-
ið því báðir rétt fyrir ykkur og
hvorugur verður ríkari fyrir
bragðið. En þið ættuð í samein-
ingu að geta gert ykkur glaðan
dag í tilefni af því, hvað þið er-
uð vel að ykkur í íslenzkum
málsháttum.
Þykir vont að kyssa
Kæri Póstur!
Mig langar að biðja þig að
hjálpa mér ef þú getur. Það er
vegna þess, að mér finnst ég
vera eitthvað öðruvísi, eitthvað
skrítin. Ég er fimmtán ára og
farin að vera með strákum auð-
vitað. En það er eitt sem er að:
Mér finnst ekkert gott að kyssa
þá. Mér finnst það meira að
segja frekar ógeðslegt, ég „finn“
ekkert. Allar vinkonur minar
eru að tala um, hvað þessi og
hinn strákurinn sé spennandi og
dásamlegur og hvað það sé gott
að kyssa þennan og hinn. Og
þeim finnst það í raun og veru
gott, að ég held. En ég — ég hef
reynt að láta sem mér þyki það
gott, en þeir finna það samt og
svo segja þeir bara: — Hvað er
að? Ertu eitthvað spæld? Eða
þeir segja, ef ég er ekki alveg á
kafi í þeim, að ég sé stíf. En ég
get ekki að þessu gert. Hvað er
að mér? Vantar eitthvað í mig?
Elsku Póstur! Svaraðu þessu
bréfi. Ég veit, að það er kjána-
legt, en ég get ekki komið orð-
um öðruvísi að því, sem ég vildi
segja. Þú skilur kannski ekki,
þar sem ég segi, að ég „finni“
ekkert, en ég hef ekkert annað
orð yfir það.
Ég vil helzt ekki, að þú birtir
sjálft bréfið, ef þú svarar mér,
og þó gerir það kannski ekkert
til, því ég skrifa ekkert nafn
undir.
Vertu sæll.
N.J.
Þú ert áreiðanlega ekkert öðru-
vísi en gengur og gerist um
stelpur á þínum aldri, nema
hvað þú ert kannski svolítið
minna þroskuð líkamlega en vin-
konur þínar. Þú skalt ekki hafa
neinar áhyggjur af því, þótt þér
þyki ekki gott að kyssa stráka
enn sem komið er. Og blessuð
vertu ekki að þykjast neitt í
þeim efnum. Ástæðan kann vel
að vera sú, að þú hafir ekki enn
hitt neinn strák, sem þú ert
verulega sólgin í. Vertu fegin
fremur en hitt, að þér skuli ekki
þykja of gott að kyssa of snemma
alltof marga stráka.
Er móðir Polanskis
lífs eða liðin?
Kæri Póstur!
Ég hef ekki skrifað þér áður,
en nú langar mig til að spyrja
þig nokkurra spurninga:
Fyrsta spurningin er þá: Hvort
á betur við Tvíburamerkið Vog-
arskálin eða Drekamerkið?
Og svo er annað: í Vikunni 2.
október 1969 er sagt og sýnt, að
móðir Roman Polanskis reyni að
hugga son sinn eftir að hinn
átakanlegi harmleikur hafði
gerzt. En í Vikunni 10. septem-
ber 1970 er sagt, að móðir Pol-
anskis hafi Iátið lífið í hinum al-
ræmdu fangabúðum í Ausch-
witz. Hvort er rétt?
Með kærri þökk fyrir allt gott
efni í Vikunni. Ég vonast eftir
svari fljótt.
Sonja Jónsdóttir.
Vogarmerkið á miklu betur við
Tvíburamerkið en Drekamerkið.
6 VIKAN tbi.