Vikan - 29.10.1970, Síða 8
NYITBS
í GOMLIIM STlL
Rétt fyrir utan Kristianstad á Skáni búa Marjatta Makkonen, teiknari af finnskum
ættum og maður hennar Ola Hedin, sem er framkvæmdastjóri fyrir skóverksmiðju
og börnin þeirra tvö, Nicklas, 9 ára og Pernilla, 5 ára. Bæði hjónin, Marjatta og
Ola, hafa geysimikinn áhuga á heimilisinnréttingum, elska liti og hafa mikið yndi
af að safna skemmtilegum hlutum og húsgögnum. Þau hafa látið byggja grinda-
verkshús úr nýtízkulegum tígulsteini. Þetta er stórt og rúmgott hús, vel búið til
hvílda, leiks, vinnu og skemmtilegra samkvæma. Helmingurinn af jarðhæðinni er
fyrir svefnherbergi og baðherbergi. í hinum er þvottahús, eldhús og dagstofa með
notajegum borðkrók. Uppi í risinu er baðstofa og eitt gestaherbergi.
l
Það er notalegur svipur á borðkrókn-
um, þar er ljós viðarklæðning og rós-
rautt veggfóður. Gluggatjöldin eru
líka rósrauð, með blúndum. Meðfram
langveggnum er fastur bekkur og fyr-
ir ofan hann hilla undir smáhluti.
X VIKAN
44. tbl.