Vikan - 29.10.1970, Qupperneq 31
um leið og hann gekk á móti henni,
og hún veitti því eftirtekt, eins og
hún hafði gert svo ótalsinnum áður,
hversu óvenjulega glæsilegur hann
var útlits. Hann beygði sig áfram
og kyssti hana á kinnina.
— Þú ert falleg í dag, sagði
hann. — Þér fer vel að klæðast blá-
um kjól.
Þegar þjónninn kom, hló Ken við
Cathy.
— Við eigum vel saman. Tókstu
eftir, hvað allir horfðu á okkur, þeg-
ar við komum inn!
Cathy var undrandi. Var þetta
eintómur leikaraskapur hjá honum?
Eða hafði hann í raun og veru
gleymt rifrildinu í gærkvöldi? Hún
leit undrandi á hann. Hvernig var
hann eiginlega saman settur? Að
hálfu leyti engill og að hálfu leyti
djöfull . . . Þarna sat hann nú, ró-
legur, hlæjandi og góður með sig.
Hann pantaði Bloody Mary eins og
f\'rsta kvöldið, sem þau voru sam-
an. Hann var töfrandi, nærgætinn
og umhyggjusamur, en jafnframt ó-
útreiknanlegur, hættulegur og
ruddalegur. Já, hann var sannarlega
blendinn persónuleiki. Cathy óskaði
þess allt í einu, að hún væri komin
langt í burtu.
— Ken, sagði hún. — Ég hef
hugsað mér að losa mig við íbúð-
ina. Ég kem með flutningabíl til að
sækja dótið mitt.
Ken svaraði ekki. Hann kveikti
sér í sígarettu og var lengi að því.
Hann sýndi engin merki þess, að
það sem Cathy hafði sagt, hefði
snert hann hið minnsta.
Cathy var gröm, fremur sjálfri sér
en honum. Það var hann, sem átti
sök á öllum leiðindunum þeirra í
milli, en samt var það ævinlega
hún, sem fann til sektarkenndar og
varð taugaóstyrk.
— Ég ætla að fara heim til Eng-
lands, sagði hún loks.
Hún hafði ekki ætlað sér að ^eoia
þetta, en þetta datt út úr henni
ósiálfrátt. Ken virtist enn iafn ró-
legur og áður.
— Til Englands? Þvert yfir hið
stóra úthaf?
Það var bersvnilent að hann
trúði henni ekki. Hann tók oaooirs-
blað upp úr vasa sínum oa bvriaði
að brjóta bað hvers og kruss, eins
og barn sem er að búa til flnnvél.
Cathy varð enn qramari en áður.
Hverniq oat hann setið hinn róleg-
asti og leikið sér á slíkri stundu?
— Jæia, saoði hún snöant.
— Jæia, hvað?
— Hefur hú ekkert að senia?
— Hvað get éa saqt?
Hann sauq revkinn rliúnt að -ér
úr sfoarettunni, on hlé- hnnum síð-
an hæqt út úr 'ér f áttina ti! hennar.
A meðan horfði hann beint í auqun
á henni. Síðan tók hann aftur að
sýsla við nannírsblað'ð sitt.
Þeqar þiónninn kom með Bloody
AAary handa þeim. hafði Ken skipt
um skoðun oq vildi heldur fá
kampavín.
— Kamoavín? saqði Cathy. •— Éq
vil ekki kamoavín.
— Víst viltu það. Við verðum að
halda upp á daginn.
Hann teygði sig yfir borðið og
lagði hönd sína á hennar. Hún
reyndi að draga höndina að sér, en
hann hélt svo fast, að hún gat það
ekki.
— Það er venjan. Við verðum að
skála í kampavíni fyrir því, sem við
eigum í vændum.
Cathy hrökk við. Ken varð var
við það og brosti til hennar. Þegar
þjónninn var farinn brast Ken í
hlátur.
— Það var stórkostlegt að sjá svip-
inn á þér áðan. Ég vildi óska, að ég
hefði haft myndavélina með mér.
Það var rétt eins og þú fengir tauga-
áfall.
— Hvernig — hvernig veiztu
þetta, stamaði Cathy og vissi ekki
hvaðan á hana stóð veðrið.
Ken hafði nú gert flugvél úr
pappírsblaðinu og kastaði henni í
áttina til Cathy. Hún greip hana
ósjálfrátt.
— Hvernig ég veit þetta? Það
er þá rétt? Ætli ég hafi ekki fengið
hugskeyti frá þér.
Cathy braut sundur pappírsflug-
vélina hægt og rólega. Ken hallaði
sér fram á borðið og sagði:
— Ég er svo glaður. Eigum við
að gifta ckkur í kirkju. Við verðum
að gera það fyrr en seinna. Ég vil,
að þú verðir regluleg brúður, í
brúðarkjól með slöri . . .
— Ken, sagði Cathy. — Ég vil það
ekki.
En hann hlustaði ekki á hana.
— Ef ég hefði bara vitað þetta í
gærkvöldi, þá hefði ég auðvitað al-
drei fleygt þér á dyr. Þú hlýtur að
skilja það. Rifrildi okkar hlýtur að
hafa stafað af því, að þú hefur ver
ið illa fyrirkölluð, vegna þess sern
nú er komið á daginn. Konur fá víst
alls konar flugur í höfuðið, á með-
an þær eru barnshafandi. Ég skal
umbera þig, hvernig sem þú verð-
ur, meðan á þessu stendur.
Samtal þeirra hafði nú tekið allt
aðra stefnu, en Cathy hafði hugsað
sér. Hún reyndi aftur að komast að:
— Ken, hlustaðu nú á mig . . .
— Nei, það ert þú, sem átt að
hlusta. Ég skal verða stórkostlegur
pabbi, sá bezti í heimi. Ég veit
hvað það er mikilvægt fyrir börn
að eiga föður. Ég átti engan sjálfur,
eins og þú veizt. Mitt barn skal al-
drei þurfa að þjást á sama hátt og
ég.
Cathy hafði samúð með honum.
Hún óskaði þess heitt, að hún gæti
trúað honum og gifzt honum. Bara
að henni tækist nú að segja skilið
við hann, án þess ..að særa hann.
Hún sagði lágt og dapurlega::
— Éq elska þig ekki lengur, Ken
Við verðum að slíta sambandi okk-
ö'
Annaðhvort heyrði hann ekki
hvað hún sagði eða tók ekkert mark
á þvl. Hann hélt áfram og var jafn
ákafur og áður:
— Nú verða alger þáttaskil í lífi
mínu. Þú skalt fá að sjá það. Nú fer
ég að vinna baki brotnu. Ég hef
reyndar þegar fengið hugmynd,
sem mun gefa mér mikla peninga í
aðra hönd. Oll blöð borgarinnar
munu slást um myndirnar mínar.
Bíddu, ég skal segja þér nánar frá
þessu ....
I sama bili kom þjónninn með
kampavínið.
— Takið það burt, sagði Cathy
stutt í spuna. Þjónninn leit undr-
andi á hana og síðan spyrjandi á
Ken.
Ken aðhafðist ekkert andartak, en
það leyndi sér ekki, að reiðin bloss-
aði upp í brjósti hans. Skyndilega
reis hann til hálfs á fætur og sló um
leið kampavínsflöskuna úr höndum
þjónsins.
Þjónninn hrökklaðist burtu oq
allir gestirnir litu við um leið oq
flaskan mölbrotnaði á gólfinu. Ken
var orðinn viti sínu fjær af bræði.
Hann velti borðinu um koll, og í
sama bili hljóp Cathy út úr salnum.
Hún vissi ekki hvort hann hefði
elt hana eða ekki. Allavega varð
hún ekki vör við hann. Hún fékk
kápuna sína í anddyrinu, og um
leið og hún kom út, var hún svo
heppin að fá leigubíl strax. líklega
höfðu veitingaþjónarnir komið á
vettvang og handtekið hinn óða
gest.
Cathy fór beint heim til Meg. Hún
gat ekki hugsað sér að fara aftur í
vinnuna. Hún hrinadi og kvaðst
hafa veikzt skyndilega.
Um fimmleytið, þegar Meg kom
heim úr vinnunni, hafði Cathy iafn-
að sig að mestu leyti. Hún sagði
Meq allt af létta og kvaðst nú hafa
skipt um skoðun. Hún ætlaði að
fylgja ráðum hennar og bað hana
um að hjálpa sér.
ÞRIÐJI KAFLI
Meg ók Cathy til læknisins þegar
þetta sama kvöld. Klukkan var hálf
tólf og gatan var auð og mannlaus,
þegar þær lögðu bílnum og gengu
þögular í áttina að húsinu. Þær
gengu eftir löngum, óhrjálegum og
dimmum gangi og staðnæmdust við
dyr, sem á stóð: Dr. J. F. Parking-
ton, kvenlæknir.
Cathy titraði öll. Hún hafði byrj-
að að titra, jafnskjótt og Meg sagði,
að aðgerðin ætti að fara fram strax
um kvöldið. Þetta hafði allt saman
gengið svo fljótt fyrir sig. Meg
hafði rétt náð að komast í banka
til að taka út 800 dollara, sem Cathy
átti síðan að greiða henni til baka,
þegar henni hafði tekizt að fá víxil
í banka.
Meg lagði handlegginn um axlir
Cathy.
— Berðu höfuðið hátt. Það er
ekkert að óttast. Þetta tekur enga
stund og er alls ekki hættulegt.
— Ertu viss um það, spurði Cathy.
Hún var hrædd, hræddari en hún
hafði nokkurn tíma verið áður á ævi
sinni. Og um leið og þær gengti
inn um opnar dyrnar og komu !
mannlausa og skuggalega biðstofu,
varð ótti hennar yfirþyrmandi. •
— Meg, ég get ekki gert þetta.
Meg herpti saman varnirnar og
hnyklaði brúnir:
— Svona, enga vitleysu núna,
þegar á hólminn er komið.
Síðan hækkaði hún röddina og
kallaði:
— Halló! Er nokkur hér!
Þær biðu, en enginn svaraði.
— Klukkan er ekki orðin hálf
tólf enn, sagði Meg. Við skulum
setjast.
Cathy settist og titraði enn. A
slaginu klukkan hálf tólf opnaði
Parkington læknir dyr sínar. Hann
var klæddur hvítum slopp og leit
út eins og hver annar læknir. Við
því hafði Cathy ekki búizt. Einu
sinni hafði hún séð kvikmynd, þar
sem Natalie Wood átti von é barni
með Steve McQueen. Þá læddust
þau um miðja nótt að gömlum timb-
urhjalli, þar sem „læknirinn" beið
þeirra. En „læknirinn" var ekki í
neinum hvítum slopp og hafði ekki
rakað sig lengi.
En Parkington var alls ekki þann-
ig útlits.
— Gott kvöld, sagði hann við
Cathy. — Það var gott að þið kom-
uð stundvíslega. Hversu gamalt er
fóstrið orðið?
— Sjö vikna.
— Gott. Komið með mér.
Meg rétti honum umslagið með
peningunum. Hann stakk því í vas-
ann á sloppinum, án þess að líta í
það.
— Gangi þér vel, hvíslaði Meg
og kyssti Cathy á kinnina. — Ég bíð
hérna á meðan.
Augu Cathy fylltust af tárum og
hún fylgdi lækninum eftir í blindni.
Hún gat varla sætt sig við, að þetta
skyldi þurfa að koma fyrir hana.
Henni fannst eins og hún stæði ut-
an við þetta allt saman og horfði
á einhverja aðra stúlku fylgja lækn-
inum, einhverja aðra stúlku, sem
gekk með honum til að . . . til að
fremja morð.
ÞARTIL.
AUGU ÞIN
OPNAST™
Framhald á bls. 47
44. tbi. VIKAN 31