Vikan - 29.10.1970, Síða 37
ar af nærliggjandi eyjum. Ég
hef hugboð um að mér verði
ekki vært á Tahiti og ég vil
ekki gera fjölskyldu minni þá
skömm að láta flytja mig aftur
heim til Englands.
Hann vissi af brezkum rann-
sóknarleiðangri á Tahiti og vissi
að hann yrði færður heim til
Englands, þar sem ekkert beið
hans, annað en gálginn.
Níu af uppreisnarmönnunum
kusu að fylgja honum, hinir
gengu á iand á Tahiti. Fletcher
sigldi svo út í bláinn, með þá
sem eftir voru af áhöfninni, auk
þess tók hann sjö innfædda karl-
menn og tólf konur með sér.
Hvenær hann tók land á eld-
fjallaeynni Pitcairn, veit engr
inn með vissu. En þangað fór
þetta fólk. Það byggði sér hús,
ræktaði garða og brenndi „Boun-
ty“, svo ekki væri hægt að sigla
skútunni til Englands aftur.
Á Pitcairn eignaðist Fletcher
Christian son. Hann var fæddur
á fimmtudegi í október, þess
vegna var hann skírður „Thurs-
day October Christian". Frá
honum eru svo allir þeir komn-
ir, sem bera nafnið Christian og
ennþá búa á Pitcairn eyju og
lifa þar friðsælu lífi. Þeir tala
jafnvel ennþá hina gömlu ensku,
sem uppreisnarmaðurinn for-
faðir þeirra talaði.
En það var ekki alltaf frið-
sælt á Pitcairn. Árið 1810 varð
togstreita um suðurhafskonurn-
ar milli eyjarskeggja. Eftir sög-
um, sem gengu á Tahiti á Flet-
cher Christian að hafa verið
skotinn til bana, þar sem hann
var við vinnu í garði sínum, en
bein hans hafa aldrei fundizt.
Svo hefur verið önnur saga á
kreiki um endalok Fletcher
Christian. Það eru möguleikar á
því að hann hafi með leynd kom-
izt um borð í ameríska skipið
„Topaz“, en það var fyrsta skip
sem kom til Pitcairn.
Svo mikið er víst að 1808 og
1809 gengu um það sögur að
hann hafi sézt í nágrenni ættar-
óðalsins og jafnvel að hann hafi
byggt þar hús og kvænzt.
HVER VAR DULARFULLI
MAÐURINN Á GÖTUNNI?
Einn af uppreisnarmönnunum
á „Bounty", Heywood að nafni,
sem hafði orðið eftir á Tahiti
var fluttur heim til Englands,
þar sem hann varð síðar vel
virtur skipstjóri.
Hann heldur því fram að hann
hafi séð Fletcher Christian á
hafnargötu í Plymouth árið
1809. Þessi maður, sem hann
kannaðist svo vel við, gekk á
undan honum. Heywood hljóp á
eftir honum og þegar hinn leit
við, sá hann að það var Fletcher
Christian. En þegar maðurinn sá
Heywood tók hann til fótanna
og Heywood missti sjónar af
honum. Þessi saga er sögð í
enskri alfræðaorðabók og þar er
sagt að hún sé mjög sennileg.
En eitt er víst: Afkomendur
hans sverja sig mjög í ætt við
hann, þrátt fyrir nokkuð Sterk
einkenni Suðurhafseyjabúans.
Nú í ár á Christianfjölskyldan
á Pitcairn von á heimsókn ungs
manns, sem heitir Maurice Bligh
og er afkomandi William Blighs,
hins fræga skipstjóra á „Boun-
ty“.
☆
Loftvogin
Framhald af bls. 16.
— Og svo hefðum við átt að
flytja inn í snoturt raðhús, sem
við værum auðvitað búin að
spara í mörg ár til að eignast,
og við ættum svo að fylla það
með húsgögnum, sem væru
keypt gegn staðgreiðslu, tylftir
af handklæðum, sængurverum
og slíku, útsaumaða púða og
klukkustrengi. Og henni finnst
það bókstaflega hræðilegt að ég
skuli fara í brúðkaupsferð með
þessa gömlu garma mina í bak-
poka og eyða fyrstu dásamlegu
dögum hjónabandsins um borð í
fiskibáti! En það er kannske
ekki svo skrítið að hún hugsi
þannig.. . . Svo þykir henni
íbúðin okkar hræðileg og að við
ættum að brenna uppstoppaða
erninum, sem við keyptum á
flóamarkaðinum, gefa einhverj-
um myndina af Viktoríu drottn-
ingu og gömlu vekjaraklukkuna.
Mig langar til að fá gömlu loft-
vogina, en hún vill ekki gefa
mér hana.
— Hvers vegna ekki?
— Hún er gjöf frá pabba Hún
hefur verið biluð í mörg ár . . .
þess vegna stendur hún alltaf á
„Blíðalogn". Hún hefur ein-
hverja sérstaka tilfinningu fyrir
þessari loftvog.
— En hvers vegna bankar þú
alltaf í hana, þegar þú gengur
fram hjá? spurði hann. — Ef
hún stendur alltaf á „Blíðalogn"
á ég við.
Hún svaraði ekki. Sér til
undrunar sá hann að hún roðn-
aði.
— O, bara að gamni, sagði
hún loksins. En hann tók það
ekki sem góða og gilda vöru.
— Lygari. Þú gerir það ekki
eingöngu í gamni. Hvers vegna?
— Að gamni mínu, endurtók
hún.
Nei. Hann kyssti hana. Fast
og ástríðufullt, þangað til hún
fann að öll mótstaða og styrkur
hvarf henni. Þá sleppti hann
henni.
— Segðu mér það þá.
— Þú ert ruddalegur, tautaði
hún og ballaði sér innilega að
honum. Hún fann að hún varð
að vera einlæg.
Segðu mér það þá, sagði
hann, altekinn skyndilegri löng-
un til að vita allt um hana. —
Hvers vegna bankar þú alltaf í
loftvogina, þótt þú vitir að hún
er biluð?
Æðstu gæði
Fátt vekur yður yndi sem góð tónlist. Og nú orðið er
yður fátt auðveldara en að njóta hennar.
Philips-verksmiðjurnar eru stærsti framleiðandi hljóm-
tækja í Evrópu. Og frá Philips er hin fjölþætta Hi Fi-
hljómtækjasyrpa (High Fidelity International); plötu-
spilarar, magnarar, hátalarakerfi — allt nákvæmlega
samhæft til fullkomins flutnings.
Hi Fi-syrpan er stílhrein og snotur, auðveld í upp-
setningu og verður yður til varanlegrar ánægju.
í verzluninni Heimilistæki sf., Hafnarstræti 3, getið þér
reynt gæði Hi Fi-hljómtækjanna. Þar eru tækin öll
uppsett. Komið og reynið tóngæðin.
HEIMILISTÆKISE
HAFNARSTRÆTI 3, SlMI 20455
__________________________/
44. tbi VIRAN 37