Vikan - 29.10.1970, Side 42
EXELENT SÓFASETT
AMBASSADOR
Stærsta húsgagnaverzlun utan Reykjavíkur. — Ótrúlega fjölbreytt úrval sófasetta. — Sér bólstruð eftir
ósk yðar. — Ný og glæsileg áklæði. — Borðstofur — Svefnherbergi. — Pírahillur og sérstök húsgögn
í úrvali. — Sendum myndalista- ef óskað er. — Sendum í póstkröfu um land allt.
Við erum ávallt spori á undan. Þess vegna sjáið þér allt það nýjasta í DÚNA.
Thummler fór austur fyrir, var hann
einsamall, en þegar hann sneri við,
var dóttirin Monika með honum.
Landamæraverðirnir stöðvuðu
hann:
— Hvaða barn er þetta? Það
stendur ekkert um hana í heimsókn-
arleyfi yðar.
— Þá hafa þeir bara gleymt að
skrifa hana, svaraði Georg Thumml-
er rólega. — Þetta er Monika dóttir
mín. Hér er fæðingarvottorð hennar.
Hún er dóttir mín.
í meira en sjö klukkutima, frá
klukkan 15 til 22.30 um kvöldið,
yfirheyrði landamæralögreglan föð-
ur og dóttur til skiptis. Þeir létu
Moniku lýsa Vestur-Berlín, þeir
spurðu hana um hverja einustu götu
í nágrenni heimilis hennar, spurðu
hana um bílmerki og margt annað.
Telpan svaraði greiðlega spurning-
um þeirra.
— Ef mér hefði orðið á að stama,
hefðu þeir gripið mig, segir Monika
nú.
Það var ekki fyrr en telpan sofn-
aði í stólnum af þreytu að hinum
austur-þýzku vörðum þóknaðist að
leyfa henni að fara með föður sínum.
Kraftaverkið hafði skeð, Thúmmler-
fjölskyldan var aftur sameinuð.
Nokkru síðar komust austur-þýzku
yfirvöldin að hvarfi Moniku. Ætt-
ingjar Thúmmlers í Austur-Berlín
voru þá yfirheyrðir. Georg Thúmml-
er var hótað handtöku fyrir mann-
rán, ef til hans næðist, en það er
ekki auðvelt og hann mun ekki láta
sjá sig nálægt Múrnum fyrsta kastið.
☆
Ríó tríó
HUSGAGNAVERZLUNIN
DÚNA
AUÐBREKKU 59
SÍMI: 42400
KÓPAVQGI
heldur ekkert um hana, sagði
Felicity. — Hún bað mig um
hana vegna þess að hún er hæfi-
lega gamaldags og það passar
svo vel innan um þetta „pop“,
eða hvað það nú heitir, og svo
eiga kunningjar þeirra heldur
ekki svona loftvog. Eg held það
sé eina ástæðan fyrir því að hún
fór að ágirnast hana. ... ☆
Tíu ára stúlka ...
Framhald af bls. 29.
austur fyrir. En þau fengu ekki að
taka Moniku með sér heim. Yfir-
völdin fundu alltaf upp nýjar ástæð-
ur til að halda telpunni.
BARN MÚRSINS
Monika Thúmmler varð barn
Múrsins. Það eru þau börn kölluð,
sem á einhvern hátt hafa orðið fórn-
arlömb skiptingar Þýzkalands. Enn-
þá búa um 2.000 börn i Austur-
Þýzkalandi, sem eiga foreldra sína í
Vestur-Þýzkalandi.
Það var ekki austur-þýzku yfir-
völdunum að þakka að Monika
komst loksins heim til foreldra sinna,
heldur sniðugu uppátæki föður
hennar.
Hann fór þannig að:
Hann náði sér í nafnskírteini frá
Vestur-Þýzkalandi. I síðustu þrjú ár
hafa Vestur-Berlínarbúar ekki haft
leyfi til að fara til Austur-Berlínar,
en þeir sem búsettir eru utan Berlín-
ar í Vestur-Þýzkalandi hafa fengið
að fara í heimsóknir austur yfir
mörkin. Svo fór Thúmmler til Austur-
Berlínar og tók Marion dóttur sína
með sér. Hún var átta ára.
Þegar hann fór vestur yfir aftur,
tók hann Moniku með sér, en lét
Marion verða eftir hjá ömmu sinni.
Austur-þýzku landamæraverðirnir
tóku ekki eftir aldursmismun telpn-
anna. Telpurnar eru báðar Ijóshærð-
ar, þótt sú yngri sé ennþá Ijósari
yfirlitum. Enginn tók heldur eftir
því að Marion var höfði lægri en
Monika. Börn eru ekki mæld við
Múrinn.
Monika kom nú heim til foreldra
sinna í fyrsta sinn í átta ár. Þá lagði
faðir hennar vel niður fyrir henni,
það sem hann hafði í huga.
Hann sýndi henni nákvæmlega
leiðina til skólans, þá leið, sem hún
yrði að fara, þegar hún kæmi aftur
til Vestur-Berlínar. Monika var tvær
vikur um kyrrt hjá foreldrum sínum.
Hún kynnti sér skólabækurnar og
allt hverfið kringum skólann og
heimili foreldranna.
Þegar faðir hennar fór með hana
til Austur-Berlínar aftur, sagði hann:
— Næsta skipti sæki ég þig fyrir
fullt og allt.
Það var svo yngri dóttirin Marion,
sem fór með honum vestur yfir í
þetta sinn. Landamæraverðirnir
héldu að þetta væri sama telpan og
fór með honum austur yfir um
morguninn.
En svo kom síðari hlutinn af
áforminu. Næst, þegar Georg
Framhald af bls. 33.
eins og auglýst hafði verið og
var Jón Gunnlaugsson, sá ágæti
skemmtikraftur, kynnir. Ég ætla
ekki út í nákvæma lýsingu á
hljómleikunum, það gerir platan
sjálf þegar hún kemur út fyrir
jólin, en ég veit að ég tala fyrir
munn allra, sem í Háskólabíói
voru þetta kvöld, þegar ég segi
að þarna sannaði Ríó-tríóið það
í eitt skipti fyrir öll, að þeir eru
góðir, og hafa enga ástæðu til að
vera að þessu sífellda hjali um
að þeir séu bara „fúskarar“. Eg
veit að ég ætti ekki að láta það
frá mér fara, en ég held því
fram að engir aðrir skemmti-
kraftar hefðu getað fengið rúm-
lega 1000 manns til að koma og
hlusta á sig í rúma tvo tíma, sig
og enga aðra.
Upptakan, sem þeir félagar
Pétur Steingrímsson og Jón Þór
Hannesson sáu um, tókst vel, og
12 lög verða örugglega á plöt-
unni, eitthvað af kynningum —
og ef til vill sitthvað fleira. Eru
þeir félagar allir mjög hressir
með útkomuna, og segja hana
hafa gengið mun betur en búizt
var við, miðað við að þetta var
í fyrsta skipti sem svona nokkuð
er reynt hér á landi.
Það er nú orðið eitt ár síðan
Ágúst Atlason gekk í lið með
42 VIKAN 44. tbi.