Vikan - 23.12.1970, Blaðsíða 9
r
Astamál
bama
Onassis
Það er ekki einleikið hve ástamál Onassisfjölskyldunnar
eru flókin. Onassis, sem hefur nóg með sín eigin ástamál,
stendur í stríði við bæði börnin sín.
Tina, sem er 19 ára, er hrifin af amerískum pilti, Dany
Marentette, sem er með henni hérna á myndinni, en faðir
hennar vill að hún giftist syni grísks skipaeiganda.
Alexander er tuttugu og tveggja ára og elskar baróns-
frú Fionu von Thyssen, sem er 16 árum eldri, fráskilin
og á tvö böm.
En óánægja Onassis með þann ráðahag er ekki það
eina sem kemur í veg fyrir að Alexander kvænist baróns-
frúnni. Hún er sjálf óánægð með ill'naðarhætti hans. Hún
vill búa úti í sveit, en hann er heimsborgari, sem vill
halda sig á glæsilegum skcmmtistöðum stórborganna.
52. tw. viK/gy 9