Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 10
Á þessu korti sést leiðin, sem Wright-hjónin sigldu umhverfis ísland.
10 VIKAN 3- «>i.
mælandi skipverji af Ingólfi Arnarsyni og færði okkur laxflök
til morgunverðar, svo indæl, að við lá að þau bættu upp allar
skemmdirnar.
„Hvernig hefur veiðzt á þessari vertíð?“ spurði ég. Flest allt
verður að flytja inn til eyjarinnar, en meira en níutíu hundraðs-
hlutar af öllum innflutningi er greitt með útfluttum fiski og
fiskafurðum.
„Lélegar veiðar,“ svaraði maðurinn. „Erlendir togarar eru að
eyðileggja fyrir okkur þorskstofninn. Og breyting sem nýlega
hefur orðið á köldum sjávarstraumum hefur valdið því að síldin
hefur fjarlægzt alla leið norður undir Spitzbergen. Það er of
löng veiðisókn fyrir okkur.“
Þorskinn sem Ingólfur Arnarson var með, átti að verka í fryst
flök og selja megnið af því til Bandaríkjanna.
Það var fjölda margt nýstárlegt að sjá í Reykjavík. Meðal
annars komumst við að því, að íslenzku stúlkurnar gengu í nær
jafn stuttum kjólum og kynsystur þeirra í New York borg.
Við fórum í kurteisisheimsókn til Karls Rolvaag, ambassadors
Bandaríkjanna, og þar varð mér á að segja: „Það er ég viss um