Vikan - 21.01.1971, Page 11
að þær hljóta að breyta um og ganga í skíðabuxum á veturna."
„Ekki endilega," svaraði Rolvaag, en hann var áður landstjóri
i Minnesota. „í strandhéruðum íslands, þar sem obbinn af þjóð-
inni býr, eru vetur enn mildari en í heimalandi mínu.“
Það er grein af Golfstraumnum að þakka, að meðalhiti Reykja-
víkur í janúar, sem er kaldasti mánuður ársins, er um 0 stig á
Celsíus. En vetrardagar eru hér dimmir, skammir og dapurlegir.
Meðalhiti í júlí, sem er heitastur, er hins vegar um 12 stig á Cels.
Þótt Reykjavík fengi kaupstaðarréttindi árið 1786, er þar lítið
um gamlar byggingar. í þá daga voru húsið gerð af torfi og
timbri, og þau eru horfin fyrir löngu síðan. Til að þurfa ekki að
flytja inn nema sem minnst af dýrum byggingarefnum og auka
jafnframt þol þeirra gegn veðrum, eru nú flest hús byggð úr
steinsteypu. Enn standa þó nokkur bárujárnsklædd timburhús,
frá því um aldamót.
Við vorum fegin að rétta úr okkur og lögðum því gangandi í
forvitnisferð um borgina. Það fannst okkur skrítið, að breiðstræti,
Framhald á bls. 34.
Britton-hjónin veiða sér fisk í soðið. Þegar þessi mynd var tekin, voru þau
stödd í höfninni á Seyðisfirði.
UMHVERFIS
ÍSLAND
Á SKÚTU
Delight komin í
höfn á Akureyri.
Þá var leiðin
meira en hálfnuð,
en sitthvað sögu-
legt átti þó eftir
að koma fyrir.
Wright Britton
berst við að halda
skútu sinni ofan-
sjávar í ofsaveðri.
Oft var hann hætt
kominn, en lauk
þó hringferð sinni
umhverfis ísland,
eins og hann hafði
ráðgert.
s. tbi. VIKAN 11