Vikan - 21.01.1971, Side 13
og fyrir kraft þeirrar myndar
skulu þær í heiðri hafðar. Þær
eru mynt hans hátignar.
Og svo birtist okkur mynd
hins unga bónda frá Húsabæ
sem ferjar þennan vesaling yf-
ir fjörðinn og spyr hana á leið-
inni alvarlegum rómi, hvort
hún treysti sér til að sanna
með járnburði að hún sé sak-
laus af þjónaði þeim sem bor-
inn er á hana. I þeirri mynd
er eitthvað frjálst og fagurt -
kristinn maður og náungi hans,
án lágkúrulegra hugrenninga
um stórmennsku og stétta-
mun.
II.
Hallvarður var sonur Vé-
biarnar á Húsabæ í Hlíðum.
Vébjörn var stórbóndi og kaup-
maður. í hinni latnesku helgi-
sögn er hann kallaður aðals-
macjur. Hann var kvæntur Þór-
nýju, sem talin er hafa verið
systir eða svsturdóttir Ástu
móður Ólafs helga. Þau áttu
tvo syni, Hallvarð og Orm. Var
Hallvarður hinn eldri þeirra.
Á miðöldum var kirkja að
Húsabæ. Vígð var hún Ólafi
helga svo trúlegast er að bú-
ið hafi verið að byggja hana
áður en sonur bónda lézt og
helgi hafði skapazt um nafn
hans. Að minnsta kosti var
Hallvarður, að því er sagan
hermir, kristinn allt frá
bernsku, sem og gott og hlýð-
ið barn, er öllum vildi vel.
Hann var siðlátur, ráðvandur
rg gæddur ríkri réttlætis-
kennd. Þegar bræðurnir nálg-
uðust fifllorðinsár, tók faðir
þ°irra þá með sér í kaupferðir
sínar. Hallvarður fékk því
snemma tækifæri til að hleypa
hoimdraga og litast um í ver-
öldinni, — éigi síður en aðrir
stórættaðir piltar í Noregi.
Vitað er. um tvö atvik úr upp-
vexti Hallvarðs. Bendir annað
til vilia hans um að reyna að
vera óeigingjarn, seni 3$ visu
er nokkuð algengt .mg^al ungra
manna. Þegar hinn helgi Frans
frá Assisí var auðugur ung-
lingur heima í föðurgarði, rak
hann góðgerðastarfsemí í stór-
um stíl, með vörum úr
geymsluhúsi þess góða meist-
ara Bernardones. Svo langt
gekk Hallvarður helgi aldreí,
heldur lét sér nægja að svíkja
sjálfan sig ögn á voginni, til
þess að Ormur bróðir hans
fengi stærri hlut er þeir skiptu
vörum sín á milli.
Síðan er þess getið, að ein-
hverju sinni er skip það sem
Hallvarður var á, lá við Got-
Framhald á bls. 44
Þeir hafa veitt kerlingunni eftirför í æsingu, og hér ber svo
furðulega viS, að Halivarður blandar sér í mál þeirra. Hann tekur
til að yfirheyra þá í stað þess að framselja konuna ....
Loks gerist það, að einn grípur boga sinn, örvar þjóta og ein
þeirra finnur stað í hálsi Hallvarðar....
3. tbi. VIKAN 13