Vikan - 21.01.1971, Side 15
Af hverju lífrænu mólekúli geta
verið til tvö form, annað sem
spegilmynd af hinu . . .
Dæmi: Það er hægt að búa til
drúfusykur úr ólífrænu efni. Speg-
ilformin tvö eru í jafnmiklu magni
í gervisykri þessum. Borði maður
slíkan sykur, samlagast annað
formið líkamanum fljótlega, en
hinu vísar líkaminn frá og yfir-
gefur það hann með saurnum.
Náttúrlegur sykur inniheldur að-
eins annað formið.
— Eftir því sem við best vitum
myndast bæði „spegilformin" þeg-
ar við búum til eftirlíkingar af
amínósýrum og núkleótíðum í
efnarannsóknastofunni, segir dr.
Ponnamperuma. — Það er ekki fyrr
en nýlega að við fengum tæki, sem
gera okkur mögulegt að rannsaka
málið — hinn efnafræðilegi munur
á formunum tveimur er eins og við
vitum ákaflega lítill. En þar sem
álíka mikið magn var til af báðum
formum við upphaf lífsins —
hvernig stóð þá á því að annað
„sigraði"? Þau virtust þó standa
jafn að vígi, eða hvað?
Vísindin gera sig ekki ánægða
með að afgreiða neitt með því að
gera ráð fyrir tilviljun. En lausnin
hefur ekki fundist — eina hugsan-
lega skýringin ennþá er sú að allt
l(f hafi sprottið útfrá einni frum-
lífveru, en það er af öðrum or-
sökum óllklegt.
Fórust spegilformin í
súrefnisstríðinu?
Einn þeirra fáu norrænu vís-
indamanna, sem gefið hafa sig að
spurningunni um upphaf lífsins,
er sænski prófessorinn Gösta Eh-
rensvard í Lundi. Hann bendir á
að menn geti þegar búið til eftir-
líkingar af einföldum eggjahvítu-
efnum. í framtíðinni getur vel far-
Framhald á bls. 41
Alll líf er byggt upp af söniu efnum, sem sett
eru saman á mismunandi hátt. Kannski er-
um „við öll“ komin af einu og sömu litlu
frumlífverunni, þótt ásýndin sé orðin nokk-
uð ólík eftir allan þennan tíma?
3. tbi. VIKAN 15