Vikan - 21.01.1971, Page 48
síðan
síðast
' v
málshátturinn
• Einn glópur kann meira
að spyrja en tíu vitrir fá
svarað.
v_________________y
ríku nýlega. Við komuna til Eng-
lands voru stúlkur, sem hann auð-
vitað þekkti ekki nærri búnar að
knúskyssa hann í hel. I ferðinni
hafði hann þénað um tvöhundruð
milljónir króna svo að sá aðili
sem mest hefði átt að kyssa hann
eru skattayfirvöldin í heimaland-
inu, sem hafa heiðurinn af því að
leggja á hann tekjuskatt. Hann
hafði verzlað þó nokkuð I ferðinni,
því að hann varð að borga um
sjötíu þúsund krónur í yfirviat i
flugvélinni. Ofan á allt annað hafði
hann f leiðangrinum verið kjörinn
,,mest aðlaðandi karlmaðurinn í
Bandaríkjunum".
Að vera frægur
Að vera frægur í popheiminum
hefur sínar góðu hliðar, til dæmis
þá að allir eru hrifnir af manni.
Þeim sem fyrir slíkri fjöldahylli
verða þykir þó stundum nóg um,
og það átti við um Tom Jones þeg-
ar hann kom úr söngferð til Ame-
Karlmenn á midi
Midi er ekki beinlínis eins ný
tízka og haldið hefur verið, að
minnsta kosti ekki hjá karlþjóð-
inni. Þessir hérna eru landslið
Fipjieyja í rugby, og myndin var
tekin er þeir komu til Englands í
keppnisferð. Fidjieyjar eru annars
í Kyrrahafi og íbúar þeirra bæði af
innfæddum, melanesískum stofni
og innfluttir Indverjar.
geturðu botnað?
Vonir okkar rættust með þetta litla horn. Það streyma til okkar botn-
arnir á hverjum degi og útlit fyrir mjög góðar undirtektir hagyrðinga
um land allt. Enn hefur póstur utan af landi ekki borizt, en við bíðum
eftir honum. Til þess að fyrripartarnir berist ekki of ört, ætlum við að
rifja upp þá tvo, sem nú eru í gangi. Þeir eru svona:
Víst er nóg um vandamál,
versnar heimur okkar.
Sumir byrja sérhvert ár
soldið utangátta.
Versjálfum þér nægur
Hasjneysla hefur verið mikið í
tízku síðustu árin, eins og varla
þarf að minna á. Þar sem nautna-
vara þessi er víðast hvar bönnuð í
Evrópu, verður fólk yfirleitt að út-
vega sér hana langar leiðir austan
úr löndum, og það getur kostað
sitt, fjármagn, málarekstur og fang-
elsisvist, svo eitthvað sé nefnt. En
nú er það svo að hasjjurtin getur
vel sprottið í lofslagi flestra Ev-
rópulanda, og er því dálítið um
það að framtakssamt fólk bregði
á það ráð að koma sér upp eigin
hasjplantekrum.
Meðfylgjandi myndir eru frá
þeirri frægu og gamalrómantísku
háskólaborg Heildelberg í Vestur-
Þýzkalandi, en þar hafði á ein-
hverjum stað hippakommúna nokk-
ur komið sér upp slíkri plantekru
úti á akri. Um hríð fengu hÍDD-
arnir í friði að stunda þessa akur-
yrkju ásamt tilheyrandi smáiðnaði.
en svo komust yfirvöldin í spilið
og þá var úti um það gaman.
hvar
er borgin San Rafael?
Hasjið skorið upp.
Hampurinn síaður.
Og hér er varan fullunnin: hasi.
Hampurinn þurrkaður.
hvenær
eru páskarnir í ár?
hver
samdi skáldsöguna „Anna"?
hvernig
hefst fyrsti passíusálmurinn?
48 VIKAN 3- tbi.