Vikan - 18.03.1971, Qupperneq 5
tvisvar áður en aldrei fengið
svar.
En sem sagt: Ég hef verið með
sama stráknum tvisvar á föstu (
um það bil tvo mánuði ( hvort
skipti, og einhvern veginn
finnst mér, að ekki sé enn allt
búið á milli okkar. Því hefur
verið spáð fyrir mér, að við
munum giftast og ef til vill
skilja aftur seinna, og út frá þv(
langar mig til að spyrja þig,
hvernig nautsmerkið og vogar-
merkið eigi saman.
Er eitthvað til ( því að þeir, sem
fæddir eru í vogarmerkinu, eigi
að giftast oftar en aðrir?
Geturðu lesið einhvern karakter
úf úr skriftinni hjá mér? Og
hvað mundirðu gizka á, að ég
væri gömul?
Já, mig langar til að segja, að
ég er svo hjartanlega sammála
„þessari sem er ekki náttúru-
laus" um „greddutöffarana"
okkar, en ég býst nú samt við
að þeim takist að erfa landið
eins og „greddutöffurum" lið-
inna tíma hefur tekizt. Annars
er ég nú ekkert inni á því, að
karlmenn eigi að erfa landið
frekar en kvenfólk, en ég held,
að ég sleppi því í bili að fara
að tala um það.
Svo er þessi sígilda: hvernig er
skriftin og stafsetningin?
Vertu svo blessaður, Póstur
minn og Vika, og þakka þér
fyrir allt gamalt og gott.
Ein sem er forlagatrúar og hjá-
trúarfull.
Nautið og vogin eru bæði und-
ir miklum áhrifum frá Venusi og
því tengd um margt. í báðum
merkjum er mikið af góSviljuSu
fólki og tilfinningariku. Naut-
og vogmennum kemur því oft
vel saman, en stundum veldur
árekstrum aS nautfólkiS er aS
jafnaSi nokkuS jarSbundiS og
sinnir aSeins áþreifanlegum
hlutum, en vogmennin hins
vegar dreymnari og gædd viS-
kvæmara tilfinningalífi.
Ef þú átt viS, aS vogmennum
sé hættara viS hjónaskilnaSi en
öSru fólki, þá mundi þaS hæp-
iS. Fullyrt er, aS ekkert merki
sé svo upplagt fyrir hjónaband
sem vogarmerkið. Vogmenni
stefna því yfirleitt mjög ákveS-
ið aS hjónabandi, en þar eS
þau eru varkár, dálítiS snobbuS
og eiga oft erfitt meS aS velja
á milli, þá getur dregizt aS þau
geri alvöru úr hlutunum.
Skriftin bendir helzt til aS þú
sért þróttmikil og hneigS til
raunsæis; aldurinn frábiðjum
viS okkur aS gizka á, af ástæð-
um sem viS þegar höfum marg-
tekiS fram. Skriftin er mjög
skýr og regluleg, og ekki hnut-
um viS um neinar stafsetningar-
villur við yfirlestur bréfsins.
Til „einnar í
vandræðum"
ViS ráðleggjum þér eindregiS
aS reyna annaðhvort aS gleyma
þessum útlenda vini þínum al-
gerlega eSa fresta því aS
minnsta kosti um fáein ár aS
nálgast hann á nokkurn hátt.
Þú ert alltof ung til að leggja í
þá áhættu aS flytja i fjarlægt
land meS ókunnugu umhverfi,
og þótt föSurland vinar þíns sé
að vísu velferðarríki eins og
það er kallað, þá er mannllfiS
í sumum verksmiðjuborgunum
þar að minnsta kosti ekki nein
paradisarsæla ennþá, eftir okk-
ar mati. Til þess aS rífa þig upp
úr þessu þunglyndi væri ráð-
legt fyrir þig aS skipta um um-
hverfi um stundarsakir, fara í
skóla eSa vinnu einhvers staSar
annars staSar. Svoleiðis hjálpar
oft.
Skriftin er alls ekki svo slæm og
bréfið þar á ofan ágætlega stil-
að, en þaS leynir sér ekki á
rithöndinni að hugarfarið er á
nokkuð mikilli ringulreiS sem
stendur. Þess vegna er ekki ger-
legt aS reyna að lesa nokkuS út
úr skriftinni.
Krossgátuverðlaunin
Kæri Póstur!
Nú lanaar mig til að vita hve-
nær eigi að hækka verðlaunin
hjá krossgátunni ykkar. Mig
minnir að verðlaunin hafi verið
þau sömu þegar Vikan kostaði
þrjátíu krónur og nú, er hún er
komin ( sexttu krónur, svo mér
finnst nú allt ( lagi, að verð-
launin hækki smávegis með.
Svo þakka ég fyrir allt það góða
í Vikunni og með von um birt-
ingu á bréfinu.
Vertu sæll.
Ingibjörg.
Málið er til athugunar hjá fjár-
málaráSuneyti blaSsins.
FERMIN G ARKÁPUR
KAPUDEILD
VIÐARÞILJUR
í miklu úrvali.
Viðartegundir: eik, askur, álmur, fura, val-
linota, teak, caviana, palisander
o. fl.
HARÐVIÐUR og þilplötur, ýmsar tegundir.
PLASTPLÖTUR, Thermopal, ýmsir litir.
SPÓNN (eik, gullálmur, teak, valhnota).
*
Harðviðarsalan sf.
Þórsgötu 14, símar 11931 og 13670.
KAPUR MEÐ SLÁ
OG/EÐA HETTU
★
KÁPUR MEÐ OG ÁN SKINNA
BLÁIR HETTUFRAKKAR
PEYSUR, STUTTAR OG SÍÐAR
ME© OG ÁN RÚLLUKRAGA
BLÚSSUR OG UNDIRFATNAÐUR
í FJÖLBREYTTU ÚRVALI
FESTAR, HÁLSMEN OG
ÝMSAR FLEIRI
GJAFAVÖRUR.
** SKOLAVO RÐUSTIG 223
11. TBL. VIKAN 5