Vikan - 18.03.1971, Qupperneq 6
FERMINGAMYNDATOKUB
MYND ER MINNING
ALLAR MYNDATÖKUR
* Stúdíó GuOmundar *
Garðastræti 2 — Sími 20900
PIERPONT OR
MODEL1071
Sterk og vönduð
GARDAR OLAFSSON
Lækjartorgi - Sími 10081
MIG DREYMÐI
Fjallganga
Kæri Draumráðandil
Mér fannst ég vera staddur á
einu af stórfjöllum íslands, en ég
var einmitt þar í þeim tilgangi að
klífa fjallið, að því að mér skild-
ist. Var ég þarna ásamt tveimur
öðrum mönnum. Við byrjuðum að
klifra og gekk ferðin vel í byrj-
un, en heldur dró úr okkur þegar
snarbrattir hamrar tóku við.
Tókst okkur þó að komast upp
með aðstoð ýmissa griptanga og
kaðla.
Segir nú ekki frekar af för okk-
ar upp klettana. En nóttin skall
á og um það leyti gekk ég út á
eina klettasylluna. Ég stóð á
brúninni og horfði niður snar-
bratta klettana sem teygðu sig
langt niður fyrir. Skyndilega sá
ég í tunglsljósinu daufan skugga
nálgast mig aftanfrá. Leiftur-
snöggt beygði ég mig niður og
fann í sama bili að maður
straukst við mig og flaug niður
klettana með ópum.
Vinsamlega birtið þennan draum
sem fyrst.
Með fyrirfram þakklæti,
BHS.
Draumur þessi er þér fyrir mikl-
um hrellingum, skakkaföllum og
jafnvel tjóni, sem magnast nokk-
uð hægt og stígandi, en lýkur
siðan áSur en þú veizt af og átt
þú eftir að hljóta skýringu á
óhöppum þínum.
Annars var þetta spennandi
draumur og hefSi okkur ekki
komiS á óvart þó sjálfur James
Bond hefSi komiS þarna viS sögu.
Tveir draumar í
framhaldi
Kæri Draumráðandi!
Hér eru tveir draumar sem mig
dreymdi fyrir nokkru. Sá fyrri
er svona:
Mér fannst ég eiga að fara á
spítala til uppskurðar, og fór X
vinkona mín með mig í litlum
bíl. Þegar við komum að sjúkra-
húsinu, sem var mjög stórt, fór-
um við upp á aðra hæð. Gengið
var upp mjög stóran hringstiga.
Þegar upp var komið kom á
móti mér hjúkrunarkona og vís-
aði mér inn í litla stofu, þar sem
fyrir voru þrjár mjög veikar
konur. Herbergið var svo lítið,
að ég varð að afklæða mig
frammi á gangi og leizt mér
ekki sem bezt á þetta, en varð
að láta mér það lynda, þar sem
annað var ekki að fá.
Lengri varð þessi draumur ekki,
en næstu nótt dreymdi mig, að
ég væri á spítala og var skorin
upp. Fannst mér það vera hol-
skurður (á kviði) og á eftir sagði
læknirinn mér að það hefði
gengið vel og að ég yrði orðin
góð eftir viku eða tíu daga.
Saumurinn yrði tekinn úr á
föstudag, en þegar mig dreymdi
þetta var mánudagur eða þriðju-
dagur.
Ég veit ekki hvort þessir draum-
ar tákna eitthvað, en mér fannst
svolítið skrítið að dreyma fram-
haldsdrauma.
Með fyrirfram þakklæti,
Hulda.
Vissulega er það óvenjulegt og
jafnvel „svolítið skrítiS" aS
dreyma framhaldsdrauma, en
ekki er ólíklegt aS þú neySist
til aS koma nærri sjúkrahúsi
bráSlega, en fyrst og fremst er
þessi draumur þér fyrir því sem
sjúkrahús boSar alltaf: Hjóna-
bandi.
örlítið ástarævintýri
Kæri Draumráðandil
Viltu vera svo góður að ráða
fyrir mig eftirfarandi draum:
Mig dreymdi að ég væri með
strák (sem ég þekki aðeins í
sjón). Fyrst þegar hann reyndi
við mig vildi ég helzt ekki vera
með honum og ég var ekkert
hrifin af honum en þá sagðist
hann elska mig, svo ég yrði að
vera með honum, þó ekki væri
nema bara þetta eina skipti. Þá
fannst mér það allt í lagi — en
bara þetta eina kvöld.
Svo vorum við búin að vera
saman í eina viku og þá var ég
orðin hrifin af honum en þá
fannst mér að hann væri ekki
lengur hrifinn af mér og mér
fannst eins og hann skammað-
ist sín fyrir að vera með mér.
Einu sinni fórum við og keypt-
um okkur ís. Hann valdi sinn í
brúnu formi en minn f bleiku.
K.S.
Þessi draumur býr ekki yfir
miklum möguleikum til ráSn-
ingar. Helzt eru þaS litirnir á
fsnum. Brúnt táknar oft tryggS
og ræktarsemi, en bleikt heitar
en ekki varanlegar tilfinningar.
6 VIKAN ll.TBL.