Vikan


Vikan - 18.03.1971, Síða 48

Vikan - 18.03.1971, Síða 48
{----------------"'v málshátturinn • Betra er að skilja með heiður en lifa með skömm. V________________/ Peter Sellers og Miranda á frumsýningu Peter Sellers og nýja konan hans voru nýlega við frumsýningu nýj- ustu kvikmyndar hans, „There's a girl in my soup". Frú Miranda er í eins konar Tyrolabúningi úr skinni, en hárið hefur hún sett upp að hætti dansmeyja frá Jú- góslavíu. Það er sagt að þessi búningur hafi þótt bæði athygl- isverður og fallegur. mmmmmmmmmmmmma^mnm Dýrasta loSkápan er úr safalaskinni og kemu frá Danmörku Þessi loðkápa gæti gert jafnvel Liz Taylor græna í framan af öf- und. Hún er úr safalaskinni og fratpileidd í Danmörku, verðið er um 800.000,— danskar krónur. Það er sjónvarpsmaðurinn Gor- don McLendon sem fékk danskt fyrirtæki til að framleiða hana fyrir sig og hann hefur hugsað sér að láta þekktar kvikmynda- stjörnur koma fram í henni á ferðalagi sínu um Bandaríkin. — Hann segir að þessi kápa eigi að vera stöðumerki þátta hans og um leið draga áhorfendur til sín. Hann heldur því fram að fólk muni þyrpast á sýningar hans, þótt ekki væri nema til að líta augum þessa fokdýru flík. geturðu botnað? I næsta þætti birtum við sýnishorn af botnunum við fyrripartinn um mengunina, en við hann bárust fleiri botnar en nokkurn tíma áður. Er þar sannarlega um auðugan garð að gresja og heildarútkoman lík- lega sú bezta til þessa. Ahuginn á væntanlegum kosningum virðist hins vegar ekki vera eins mikill. Við ítrekum því þann fyrripart, en hann hljóðaði svo: HvaS skal gera og hvernig fer, hverja kýstu á næsta vori? 48 VIKAN ll.TBL. Frank Sinatra er nokkuð hugsandi á þessari mynd, þar sem hann leiðir Nancy dóttur sína Upp að altarinu i ann- að sinn. Nancy og framleiðandinn Hugh Lambert voru gefin saman í kaþólskri kirkju. Brúðguminn hef- ur líka verið kvæntur áður. Síðan Nancy skildi við fyrri mann sinn, söngvarann Tommy Sands, hefur mikið verið um það rætt hver yrði næsti eiginmaður hennar, og flest- ir urðu hissa, þegar það kom í Ijós að Lambert yrði sá hamingju- sami. Indira sem amma Þrátt fyrir allt stjórnmálaþrasið, sem hlýtur að vera ærið nóg, ekki sízt þegar gengið er til kosninga, hefur Indira Gandhi oft tíma til að leika við eina barnabarnið sitt. Uppáhaldið hennar heitir Rahul og er sonur elzta sonar hennar, sem heitir Rajiv og er kvæntur ítalskri konu.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.