Vikan - 18.03.1971, Qupperneq 48
{----------------"'v
málshátturinn
• Betra er að skilja með
heiður en lifa með
skömm.
V________________/
Peter Sellers
og Miranda á
frumsýningu
Peter Sellers og nýja konan hans
voru nýlega við frumsýningu nýj-
ustu kvikmyndar hans, „There's
a girl in my soup". Frú Miranda
er í eins konar Tyrolabúningi úr
skinni, en hárið hefur hún sett
upp að hætti dansmeyja frá Jú-
góslavíu. Það er sagt að þessi
búningur hafi þótt bæði athygl-
isverður og fallegur.
mmmmmmmmmmmmma^mnm
Dýrasta loSkápan
er úr safalaskinni
og kemu frá
Danmörku
Þessi loðkápa gæti gert jafnvel
Liz Taylor græna í framan af öf-
und. Hún er úr safalaskinni og
fratpileidd í Danmörku, verðið er
um 800.000,— danskar krónur.
Það er sjónvarpsmaðurinn Gor-
don McLendon sem fékk danskt
fyrirtæki til að framleiða hana
fyrir sig og hann hefur hugsað
sér að láta þekktar kvikmynda-
stjörnur koma fram í henni á
ferðalagi sínu um Bandaríkin. —
Hann segir að þessi kápa eigi að
vera stöðumerki þátta hans og um
leið draga áhorfendur til sín.
Hann heldur því fram að fólk
muni þyrpast á sýningar hans,
þótt ekki væri nema til að líta
augum þessa fokdýru flík.
geturðu botnað?
I næsta þætti birtum við sýnishorn af botnunum við fyrripartinn um
mengunina, en við hann bárust fleiri botnar en nokkurn tíma áður.
Er þar sannarlega um auðugan garð að gresja og heildarútkoman lík-
lega sú bezta til þessa. Ahuginn á væntanlegum kosningum virðist
hins vegar ekki vera eins mikill. Við ítrekum því þann fyrripart, en
hann hljóðaði svo:
HvaS skal gera og hvernig fer,
hverja kýstu á næsta vori?
48 VIKAN ll.TBL.
Frank Sinatra
er nokkuð hugsandi á þessari
mynd, þar sem hann leiðir Nancy
dóttur sína Upp að altarinu i ann-
að sinn. Nancy og framleiðandinn
Hugh Lambert voru gefin saman í
kaþólskri kirkju. Brúðguminn hef-
ur líka verið kvæntur áður. Síðan
Nancy skildi við fyrri mann sinn,
söngvarann Tommy Sands, hefur
mikið verið um það rætt hver yrði
næsti eiginmaður hennar, og flest-
ir urðu hissa, þegar það kom í
Ijós að Lambert yrði sá hamingju-
sami.
Indira sem amma
Þrátt fyrir allt stjórnmálaþrasið,
sem hlýtur að vera ærið nóg, ekki
sízt þegar gengið er til kosninga,
hefur Indira Gandhi oft tíma til
að leika við eina barnabarnið sitt.
Uppáhaldið hennar heitir Rahul og
er sonur elzta sonar hennar, sem
heitir Rajiv og er kvæntur ítalskri
konu.