Vikan


Vikan - 25.03.1971, Page 49

Vikan - 25.03.1971, Page 49
Rýja - teppi og Rýja - mottur prýða heimilið og lifga upp. Hlífa teppum sem lögð eru yfir allt gólfið. Persía lif. Suöurlandsbraut 6. - sfml 85822 kominn af harmi, þegar sonur hans lézt. En jafnframt sorginni iukust áhyggjur hans af Mikaelu dag hvern. Hann gat ekki skilið, hvernig hún gat verið svona ró- leg og hvers vegna hún tók láti barnsins svona - vel. Hann vissi ekkert og skildi ekkert; hafði ekki minnsta grun um, að þrátt fyrir eftirsjá hennar eftir barni slnu, fann hún til léttis. Og það var einmitt léttirinn, sem orsakaði dofa og ró innra með henni. Því var lokið. Hún þurfti ekk- ert að óttast framar. Hún hafði brugðizt, þegar hún átti að bjarga lífi. Nú hafði hún orðið að gjalda fyrir það með öðru llfi, sem vissu- lega var þúsund sinnum dýrmæt- ara. Hún hafði tekið út sína hegn- ingu. Hún mundi syrgja fyrsta barn sitt alla ævi. En hinar skelfi- legu minningar mundu mást út og gleymast. Börje Rickardsson mundi ekki heimsækja hana fram- ar í draumi og martröð. Lífið mundi halda áfram. Ingvar mundi gleyma smátt og smátt. Þau yrðu aftur vonglöð og hamingjusöm. Stundum grét hún, en aðeins þegar enginn sá. Og hún gat ekki gert sér grein fyrir þvl sjálf, hvort tár hennar stöfuðu af harmi eða feginleika. Loksins gat hún verið eiginkona Ingvars og elskað hann óttalaust I blíðu og strlðu, einsog hún hafði heitið frammi fyrir alt- arinu. Ingvar fann, að hún var orðin breytt. Hún var nú eins og hún átti að sér að vera, einlæg og glöð. Hann hætti að hafa áhyggj- ur af henni. Það liðu ekki nema nokkrir mánuðir, þar til Mikaela átti aftur von á barni. Þegar hún sagði Lajlu tlðindin, bað hún hana að halda barninu undir sklrn, þegar þar að kæmi. — Það vil ég gjarnan gera, sagði Lajla. — En heldurðu ekki að Ellen móðgist? — Nei, ég held, að hún skilji þetta, sagði Mikaela. — Ég skal reyna að útskýra fyrir henni, að allt þurfi að vera öðruvfsi nú en síðast. Og ef við eignumst fleiri börn, til dæmis annan son, þá ætla ég að biðja hana að vera guðmóðir hans. En ég vona, að ég eignist stúlku núna. — Drengur gæti kannski bætt upp — Nei, ég vil ekki að nýja barnið bæti neitt upp. Ég vona að þetta verði dóttir, fullkomlega sjálfstæð, lltil persóna. Ég veit ekki, hvort þú skilur hvað ég á við, en . . . — Ég held, að ég skilji þig, sagði Lajla rólega. — Já, ég er viss um, að þú gerir það. Hún hikaði, en hélt síðan áfram: — Þú hefur skilið miklu meira en nokkur annar. Ég hef alltaf litið á þig sem vinkonu mína. Og samt er svo margt, sem ég get ekki útskýrt, svo margt, sem al- drei mun koma I Ijós. — Það skiptir engu máli. Það er nútíðin, sem skiptir öllu máli, en ekki fortíðin. Mér þykir vænt um þig eins og þú ert núna og mun halda þvl áfram. — Það er svo margt, sem veld- ur mér hugarangri, sagði Mika- ela. — Það er svo margt, sem ég vildi, að ég hefði aldrei gert. En því verður ekki breytt. — Allir hafa upplifað eitthvað þessu llkt. Við höfum öll iðrazt einhvern tíma misgjörða okkar. En maður verður að hafa styrk til að sigrast á fortíð sinni. Og þann styrk hefur þú nú. — Já, þann styrk hef ég nú, sagði Mikaela. Og upp frá þeim degi leit hún aldrei til baka. ENDIR. 12. TBL. VIKAN 49

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.