Vikan


Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 44

Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 44
 FRYSTIKISTUR FRYSTIKISTUR ^^^■IKISTUR ÞER SPflRIÐ STGJRFE MEÐ ÞVÍ m KflUPH IGNIS FRYSTIRISTUR HAGKVÆMAR — VANDADAR — ÚRUGGAR 145 LTR. — 190 LTR. — 285 L1R. 385 LTR. — 470 LTR. — 570 LTR UMBOÐSMENN UM LAND ALLT. RAFIÐJAN VESTIRGÖTIJ H SÍMI 19294 RAFTORG V/ALSTURVÖLL SÍMI 26660 m Athugið Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER eSVEGI2Z-24 30280-3262 herra Summers inn í embsetti sem stjórnanda happdrættis- ins. Sumir minntust þess, að einhvern tíma hefði verið ein- hvers konar innsetningarat- höfn sem var miklu viðameiri; stjórnandinn hafði þá farið með langa, eintóna þulu sem hafði smá stytzt í gegnum árin þar til að hún harf alveg úr minni manna. Sumir héldu því fram að stj órnandinn hefði staðið kyrr þegar hann söng eða mælti þuluna fram, en aðrir sögðu hann hafa gengið á með- al fólksins á meðan. Einnig hafði verið til hátíðleg kveðja sem stjórnandinn hafði kastað á alla þá er komu upp að kass- anum til að draga, en nú hafði hún einnig verið lögð niður og ein kveðja var látin duga á all- an hópinn. Herra Summers stóð sig mjög vel í þessu starfi; í hreinni, hvítri skyrtu og blá- um vinnubuxum og með aðra höndina hvílandi kæruleysis- lega á kassanum virtist hann mjög virðulegur og gaf athöfn- inni ákveðinn status. Hann tal- aði við herra Graves og Mar- ■tin-feðgana til skiptis. í sama mund og herra Sum- mers hætti að tala og sneri sér að þorpsbúunum sem stóðu fyrir framan hann, kom frú Hutchinson hlaupandi inn á torgið með peysuna á herðun- um og hún smeygði sér inn í hópinn. „Ég bara steingleymdi hvaða dagur er,“ sagði hún við frá Delacroix sem stóð við hlið- ina á henni og þær hlógu báð- ar mjúklega. „Ég hélt að gamli maðurinn væri á bak við að höggva við,“ hélt frú Hutchin- son áfram, „og þá leit ég út um gluggann og sá að krakk- arnir voru farnir og þá mundi ég að það er sá tuttugasti og sjöundi og þá tók ég nú held- ur betur til fótanna.“ Hún þurrkaði sér um hendurnar á svuntunni og frú Delacroix sagði: „Þú ert samt nógu tíman- lega. Þeir eru ennþá að tala saman þarna uppi.“ Frú Hutchinson teygði fram álkuna til að sjá í gegnum hóp- inn og sá mann sinn og börn standa framarlega í þyrping- unni. Hún klappaði frú Dela- croix lítillega á handlegginn eins og til að kveðja og lagði af stað í gegnum mannfjöld- ann. Fólk vék úr vegi og lét góðlátleg orð fylgja; tveir eða þrír sögðu þannig að heyrðist: „Hérna kemur frú Hutchin- son,“ og „Bill, hún hafði það af eftir allt saman." Frú Hut- chinson náði til manns síns og barna og herra Summers sem hafði beðið sagði glaðlega: „Við vorum farin að halda að við þyrftum að vera án þín, Tessie." Frú Hutchinson glotti og svaraði: „Þú hefðir ekki viljað að ég hefði farið án þess að vaska upp, eða hvað Joe?“ Lágvær og mjúkur hlátur breiddist um hópinn sem fólk- ið tók sér stöðu á á ný eftir að hafa hleypt frú Hutchinson í gegn. „Jæja þá,“ sagði herra Sum- mers alvarlega, „ætli sé ekki bezt að fara að byrja, koma þessu af svo við getum haldið áfram vinnu okkar. Er einhver ókominn?“ ,,Dunbar,“ sögðu nokkrir. „Dunbar, Dunbar.“ Herra Summers skoðaði list- ann sinn. „Clyde Dunbar," sagði hann. „Alveg rétt. Hann fótbrotnaði, ekki satt. Hver dregur fyrir hann?“ „Sennilega ég,“ sagði kona nokkur og herra Summers sneri sér við til að sjá hver það var. „Kona dregur fyrir mann sinn,“ sagði hann. „Áttu ekki uppkominn dreng til að gera það fyrir þig, Jansey?" Þrátt fyrir að herra Summers og allir aðrir í þorpinu vissu svarið fullkomlega, var það mál stjórnandans að spyrja slíkra spurninga formlega. Herra Summers beið kurteis og þolinmóður á meðan frú Dun- bar svaraði. „Horace er ekki orðinn sext- án ennþá,“ sagði hún með tregablandinni röddu að því er virtist. „Sennilega verð ég að draga fyrir hann gamla minn í ár.“ „Rétt,“ sagði hérra Summers. Hann skrifaði eitthvað á list- ann sem hann var með. Síðan spurði hann: „Dregur Watson- drengurinn í ár?“ Hávaxinn drengur í hópnum réttina upp hendina. „Hérna,“ sagði hann. „Eg dreg fyrir mig og mömmu.“ Hann blikkaði aug- unum óstyrkur og beygði höf- uðið þegar nokkrar raddir sögðu eitthvað á þessa leið: „Gott hjá þér, Jack,“ og: „Gam- an að sjá að móðir þín hefur fengið karlmann til að gera það.“ „Jæja,“ sagði herra Sum- mer, „þá eru sennilega alilir sér. Er Warner gamli mættur?" „Hér,“ sagði rödd og herra Summers kinkaði kolli. Skyndileg þögn féll á hópinn þegar herra Summers ræskti sig og skoðaði listann. „Allt tilbúið?“ spurði hann. „Jæja, þá les ég nöfnin — fyrirvinn- ur fjölskyldna fyrst — og karl- 44 VIKAN 43. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.