Vikan


Vikan - 02.12.1971, Side 13

Vikan - 02.12.1971, Side 13
Eins og sakir standa er helzt . svo að sjá að það athygl- isverða þjóðfélagsfyrir- bæri í velferðarríkjunum sem kennt hefur verið við hippa sé að snúast upp í nýja, kristna trúarhreyfingu, Jesú- byltinguna, eins og hreyfingin er kölluð. Virðist svo sem hér sé um að ræða verulega sveiflu- breytingu í hugarfari æsku- fólks; hippahreyfingin auð- kennist sem kunnugt er mjög á áhuga á austrænum trúar- brögðum og margs konar dul- trú, en hér virðist snúið aftur til kristindómsins, eða það skyldi maður ætla. Raunar hafa trúarbrögð yfirleitt verið talsvert á döfinni undanfarin ár; Jesúbyltingin er ekki eina dæmið um það. Hreyfingar með róttæk, þjóðfélagsleg stefnu- mið hefur gætt mjög í kristin- dómnum síðustu árin, einkum innan kaþólsku kirkjunnar, og í Noregi tóku nokkur ung- menni sig til og tíndu saman í kver róttæka ritningarstaði, fyrst og fremst úr Matteusi og Spámönnunum. Af hvaða anda sem öll þessi ólga í kristninni er sprottin, þá geta velunnarar hennar varla yfir því kvartað að hún njóti ekki nægrar at- hygli þessi árin. Varla fer hjá því að mörgum þyki fróðlegt að heyra viðhorf forustumanna íslenzku kirkj- unnar til þess, sem er á döfinni hjá kristninni úti í heimi, og eins hver muni afstaða krist- inna manna hérlendis almennt til trúmála, samanborið við af- stöðu trúbræðra þeirra í öðr- um löndum. Vikan sneri sér því til biskups íslenzku þjóðkirkj- unnar, herra Sigurbjarnar Ein- arssonar, og lagði fyrir hann nokkrar spurningar. — Hver teljið þér að Jesús hafi verið í augum íslenzku þjóðarinnar gegnum aldirnar? Og hver er hann í augum henn- ar í dag? — í einu riti Nýja testa- mentisins segir: Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. Vist breytast tímar og menn, hættir og hugsun. En grunnstef mannlegs lífs hljóma líkt, hvernig sem annað breyt- ist. Jesús svarar til þeirra á sama veg um aldirnar. Er vert að minna á í þessu sambandi, hve margt í arfleifð kristinnar kirkju heldur fullu lífi. „Öll er hjálp af þér“, sagði Kol- beinn Tumason á þrettándu öld. Eysteinn segir efnislega það sama, Hallgrímur líka. Kristnir menn nútímans haga orðum í mörgu á annan veg en fyrri tíðar menn, en þeir kann- ast við sjálfa sig í hverri heilli og fullri játningu til Jesú Krists og í hverri bæn í hans nafni, gildir einu frá hvaða öld er. Og ég held, að kristnar kyn- slóðir þessa lands gætu einum munni og einum huga gert orð Hallgríms að sínum: Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má, Guðs míns ástar birtu bjarta bæði fæ ég að reyna og sjá. Nú er svo að sjá að trúar'- þörf fólks sé alltaf fyrir hendi, en að sú þörf krefjist mismun- andi svörunar eftir tímabilum. Vill ekki hvert tímabil sína sérstöku útgáfu af Messíasi? Og þarf Messías endilega að vera tengdur einhverjum ákveðnum helgisögnum eða ritum? — Trúarþörfin segir til sín með mismunandi móti, það er rétt. Kristur nægir öllum tím- um, allri trúarþörf. Og hann er ekki niðursoðinn í bók. Hann er lifandi. Því síður er hann hugarfóstur, sem taki mynd- breytingum . eftir tíðarfari og aldaranda. Messías, sem væri aðeins draumsýn, væri að sjálf- sögðu síbreytilegur, rétt eins og hver önnur hilling. Hann væri ekki tengdur neinni bók eða riti. En sá Messías, sem Jesús frá Nazaret holdgaði með lífi sínu, dauða og upprisu, er tengdur ákveðnum ritum, Nýja testamentinu. Þar er mynd hans, orð hans, og andi hans er virkur í þeim vitnisburði, sem þar er fólginn. Hitt er annað mál, að ég leita til hans með mínar spurningar, þú með þínar. Eins er um kynslóðir. Sumar áleitnustu spurningar nútímans voru ekki til fyrir fá- um áratugum. Aðrar eru horfn- ar, sem sóttu á fyrri tíma. Jes- ús Nýja testamentisins er ekki automat, sem skili föstum for- múlum, ef þrýst er á hnapp. Hann er dynamískur veruleiki, lífsmegin, lifandi vilji og andi, sem bregzt við nýjum aðstæð- um á nýjan hátt, gerir nýjar kröfur, gefur nýja sýn. Þó er grunnur og mark hið sama frá kyni til kyns. En það er köll- un og tækifæri hvers tíma að uppgötva hann og auðlegð hans að nýju. — Hafa íslendingar nokkurn tíma verið mjög trúaðir á guði? Þeir hafa lengstaf verið bændur, jarðbundnir realistar Framháld á hls. 81. 48. TBL. VIKAN 13
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.