Vikan


Vikan - 02.12.1971, Blaðsíða 70

Vikan - 02.12.1971, Blaðsíða 70
F“1 skreppa í sendiferðir, ef með þyrfti. — Svo var það eitt laugar- dagskvöld, að konan kom seint heim frá heyskap og fór að skúra gólf. — Ónýt er ég, Stein- unn mín, að geta ekki hjálpað þér við þetta, verður mér að orði. — Það gerir nú ekki mikið til, segir hún, — enda ætlast ég ekki til þess. Mér þykir bara lakast að eiga ekkert með kaff- inu. Ég hefði beðið þig um að ná í það fyrir mig, ef ég hefði munað eftir því. Þetta var í júlímánuði. Finn- bogi Finnbogason frá Búðum hafði þá verzlun þarna, og var nokkur spölur þangað, en ég þekkti vel bæði hann og hans fólk. — Blessuð vertu, segi ég, — það er auðvelt að ráða bót á því. Ég skal skreppa niður í búð, því að þó Finnbogi sé kannski háttaður, þá er Laufey áreiðanlega enn á fótum ... Jæja, hún kvað sér þykja vænt um ef ég vildi skreppa þetta, og ég hélt af stað. Þegar ég hafði gengið spottakorn, lá leið mín fram hjá húsi sem kallað var Bern, en þar bjó maður, sem Kristján Þórðarson hét. Mér verður litið inn fyrir girðinguna og sé þar þá standa tvær ungar stúlkur og virtist önnur þeirra nokkuð eldri en hin. Fannst mér sem ég kann- aðist eitthvað við þær, en gat þó ekki komið þeim fyrir mig. Heyri ég þá að sú eldri segir: — Það er hörmuleg fregn að frétta úr símanum. Hann datt út... hann datt út... Ég veit ekkert hvar þetta á heima. Held svo áfram sem leið liggur og mæti þá stúlku nokk- urri úr plássinu, sem ég þekkti. Ég spyr hana hvort hún segi nokkur tíðindi; hvort nokkuð hafi frétzt úr símanum? Ó-nei, ekki vissi hún neitt til þess. Þegar ég hafði lokið erindi mínu í búðina, held ég heim aftur. En þegar ég kem á móts við Bern, sé ég stúlkurnar sem fyrr, nema hvað þær standa nú hinum megin við veginn, og voru því á hægri hönd við mig, eins og þegar ég gekk niður eft- ir. Ekki vildi ég yrða á þær, því að ég þekkti þær ekki. En þær endurtaka það, sem sú eldri hafði áður sagt), og með sama orðalagi. — Það er hörmuleg fregn að frétta úr símanum. Hann datt út... hann datt út.. Ég anza þeim ekki neinu. Þegar ég kom heim til Stein- unnar, segi ég henni hj^að fyrir mig hafi borið. — Þetta er fyr- irboði, elskan mín, segir hún. — Þú færð bráðlega fréttir af og það hefði gerzt í gær, og lík- lega hef ég aldrei orðið hrædd- ari á ævi minni. í sömu svifum kemur pabbi inn og spyr hvers- vegna ég sé að gráta, og þegar mamma segir honum ástæðuna, segir hann: Þér verður ekkert meint af því, fáðu þér bara vatnssopa til að taka bragðið úr munninum. Ég varð heldur en ekki fegin, og satt var það, ekki varð mér neitt meint af þess- um drukk. „HANN DATT ÚT.. " — Svo við víkjum óbeinlínis aftur að því þegar Loftur fórst. Heyrðir þú þess getið á þínum uppvaxtarárum að fólk dreymdi fyrir slysförum eða fengi vís- bendingu um slikt á annan hátt? — Jú, þess voru dæmi. Ég heyrði sagt um sumar mann- eskjur, að þær væru draum- vitrar og kæmi ekki allt á óvart. Þá heyrði ég líka talað um ein- staka manneskju, sem sá ýmis- legt — var skyggn, eins og það var kallað. — Kynntist þú fólki, sem gefnir voru þeir hæfileikar? — Ó-nei, ekki get ég bein- línis sagt það. En margt heyrði ég um þetta talað, þegar ég var barn. Eins var fólk trúað á fylgjur manna, drauga og aft- urgöngur, ekki vantaði það. En ég heyrði ekki mikið minnzt á huldufólk, ekki að almenning- ur væri trúaður á tilveru þess. — Hefur þú verið berdreym- in? — Jú, ekki get ég neitað því, að mig hefur dreymt fyrir ýmsu. En ég hef ekki kunnað að ráða þá drauma mína fyrr en eftii' á, þegar þeir voru komnir fram. Ég hef því ekki orðið margs vísari um óorðna hluti af þeim. Aftur á móti hef- ur það komið fyrir, að ég hef séð atburði fyrir í vöku; sýnir, sem hafa bent mér á ýmislegt. — Og með hvaða hætti hefur slíkt borið fyrir þig? — Því er ekki svo auðsvar- að. En ég get sagt þér frá einni sýn, eða hvað á að nefna það, sem dæmi: Það var árið sem maðurinn minn dó; hann lézt um veturinn, þann 14. marz. Um sumarið lézt svo annar maður í plássinu, réttu missiri seinna. Þá um vorið fékk ég fingurmein og varð að fara inn í Ólafsvík. Var þar í mánuð undir læknis- hendi og dvaldist hjá hjónum, sem ég þekkti. Sagði ég kon- unni, að ef ég gæti létt eitthvað undir við hana, þá skyldi hún ekki vera að hlífa mér við því. Þó að ég gæti ekki beitt hend- inni, væri mér ekki í mein að taka af henni snúninga eða Höfum fengið nýja sendingu af þessum fal- legu frönsku baðskápum. Skáparnir eru úr mjög góðu og sterku plasli, með segullæs- ingum og haganlegum innréttingum. PLLiBERT Einkaumboð fyrir ísland: S. Armann Magnússon, heildverzlun. BYGGINGAVÖRUVERZLUNIN NÝBORGP HVERFISGÖTU 76- SÍMI 12817 70 VIKAN 48. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.