Vikan


Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 4

Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 4
HJARTAGARN Fjöldi tegunda og lita ávallt fyrirliggjandi. Fáanlegt í flestum verzlunum um land allt. Umboösmenn: STEINAVÖR HF. Norðurstíg 7 Símar 24120-24125 (6 línur) Wiither bríhiól Þríhjólin vinsælu alltaf fyrirliggjandi. Einnig reiðhjól í öllum stærðum. PÓSTURINN Lærum oftast nær heima Kæri Póstur! Við erum hér tvær stöllur og okkur langar svo mikið til að vita hvernig á því stendur að við lærum alltaf bezt á kvöldin áður en við förum að sofa, þótt svo að við séum alveg að sofna. Svo er það annað sem við vilj- um fá að vita. Við erum báðar orðnar sextán ára og pabba og mömmu finnst það alltof mikið að við förum á ball einu sinni í viku þó við borgum sjálfar, við erum báðar í skóla og lærum oftast nær heima. Hvað finnst þér, kæri Póstur? Okkur líkar báðum vel við Vik- una, einkum þó Póstinrr og viltu vera svo góður að svara fljótt, við bíðum eftir svari. Pjakka og Frekjuskjóða. P.S. Hvað lestu úr skriftinni? Það er mjög mismunandi eftir einstaklingum hvenær þeim fest- ist bezt í minni það sem þeir lesa, og vitum við enga tæm- andi skýringu á því. — Það ætti svo sem ekki að skaða þótt þið færuð á ball vikulega, svo fremi þið trassið ekki námið fyrir þá sök. Sennilega er það einmitt það, sem foreldrar ykkar hafa í huga, sem og að halda ykkur í reglunni yfirleitt. Ykkur ætti nú að vera útlátalaust að koma til móts við þau með því að sleppa úr viku endrum og eins. Úr skriftinni má lesa dugnað og tilhneigingu til að flýta sér. Ekki geðsleg þekking Kæri Póstur! Ég hef skrifað þér áður en í allt öðrum tilgangi, en ég vona samt að þú hjálpir mér líka núna. — Svoleiðis er mál með vexti að ég er mjög hrifin af strák. Og ég veit ekki hvern hug hann ber til mín. Hann og vinur hans eru alltaf saman, eiga bíl saman og eru líka í sama skóla. Vinkona mín og ég (við erum saman í öllu, skóla o. fl.) höfum verið með þeim í fyllstu merkingu, nema ég vildi ekki leyfa honum að ganga hættulega langt. En hann bað mig samt um að hitta sig aftur, þrátt fyrir allt. Hann er nærri því mjög feiminn en það er vinur hans ekki. Það er alltaf fullt af stelpum ! kring- um þá og allir vita hverjir þeir eru og við (ég og vinkona mín) höfum grun um að það sé ekki sérlega geðsleg þekking. Við er- um skotnar í þeim en höfum lágt um það og pössum okkur að spyrja engan brunalúður um þá, við vitum með vissu að þeir eru alltaf að spyrjast fyrir um okkur. Til dæmis hjá systur minni ef þeir sjá hana úti og verða þá eiginlega illir ef hún veit ekki hvar við erum og hætta þá ekki fyrr en þeir eru vissir um að hún viti það ekki. Alltaf þegar við sjáum þá, þá brosum við eða kinkum kolli en höldum alltaf áfram, svo heyrð- um við að þeir hefðu sagt að við hefðum aldrei tíma til að tala við þá, en í rauninni erum við mjög feimnar þótt útlitið bendi ekki til þess. Og svo núna í dag sáum við þá og það var eins og þeir hálfpartinn þyrðu ekki að heilsa, og við vorum ! efa hvort við ættum að heilsa og stóðum því og sögðum ekkert. Og þeir löbbuðu eins og tregir uppeftir. Við höfum nefnilega verið svo- lítið frekar, neitað að fara með þeim (eins og í fyrsta skiptið). Æ, blessaður, hjálpaðu ■ okkur nú. Hvað myndir þú álíta og hvað myndir þú gera, reyna að hætta að hugsa um þá (hann)? Eru þeir ef til vill ekki þess virði? Hvernig er skriftin og hvað lestu út úr henni? Með fyrirfram þökk. S. H. Það litla sem þú segir af þeim bendir til að þetta séu hálfgerð- ir plebbar, alltaf að þvælast um í bíl og veitast með frekju að systur þinni til að spyrja um ykkur. Og sjálf hefurðu grun um að ekki fari af þeim sem bezt orð. Pósturinn myndi því áli'ta að þið ættuð að gefa fjand- ann í þá, en ef þið viljið það ekki þrátt fyrir allt, ætti að vera hægur vandi fyrir ykkur að neita ekki að fara með þeim næst, ef þeir skyldu manna sig upp í að fara fram á það. Skriftin er fremur óskýr og mjög tilgerðarleg. 4 VIKAN 9.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.