Vikan


Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 50

Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 50
gekk fram hjá Daniéle, sem stóð kyrr og hljóð. — Þeir bíða eftir okkur á skrifstofu samtakanna. Flýttu þér nú! — Já, já, tautaði herra Le- guen og tók saman blöðin. Hann gekk svo til dyranna. — Afsakið, sagði herra Le- guen. Hann benti til dyranna og Daniéle gekk út. Hún leit ekki um öxl, þegar hún kom út á gangstéttina og hún leit ekki heldur upp í gluggann á fyrstu hæð. Hún steig upp í Renaultinn og skellti bílhurðinni fast á eftri sér, ók síðan af stað. Bóksalinn horfði á eftir henni. — Þessi vill blanda sér í bylt- inguna, sagði hann háðslega. — Það væri betra að hún gerði hreint fyrir eigin dyrum. __ Bylting er aðeins handa karlmönnum, sagði Nobelt há- tíðlega. Herra Leguen leit á hann og þakklætið skein úr augum hans. Þeir skildu hvor annan. Uppi á lofti sat Gérard, öfug- ur á stól í miðju herbergi sínu og hallaði höfðinu fram á stól- bakið: hann beit saman vörun- um, þegar hann heyrði Renault- inn aka af stað. Síðustu mínúturnar hafði hann haft löngun til að fara niður, en hann stóðst freisting- una. Ástandið var of alvarlegt til þess að hann vildi eiga það á iiættu að auðmýkja Daniéle fyrir framan ókunnuga. Hann vissi ekki hve lengi hann sat svona. / nœstu — Við höfum ekki gert neitt af okkur, sagði hann um kvöld- ið, þegar hann var kominn heim til Daniéle. — Nei, sagði Daniéle. Þau sátu á gólfábreiðunni og hölluðu sér upp að veggnum. Synir Daniéle, Marc og Patrick, voru í eltingaleik um íbúðina. — Hvað eru þau svona hrædd um? sagði Gérard. — Það liggur í augum uppi, sagði Daniéle og brosti dauf- lega. — Já, nokkurn veginn, en það er samt ekki nógu augljóst, sagði Gérard. — Ég á það sem kallað er frjálslynda foreldra. Þau eru jafnvel sammála okkur stjórnmálalega séð. Hvað er þá að. Eru þau alltaf að látast eða ljúga? ___ Þau eru kannski að ljúga, en þau vita ekki af því. Gérard stóð upp, hann var orðinn óþolinmóður. — Það er Fjörutíu stormasöm ár meS Liz Hún er fertug, móSir, tengda- móðir og amma. HingaS til hefur Marlene Dietrich veriS talin fegursta amma heims, en nú verður hún aS afsala sér þeim titli. Við honum tekur eggin önnur en Eliza- beth Taylor. ViS byrjum að birta ævisögu hennar i næsta blaði. Hjónabandið er happdrætti Maður skyldi aldrei velja sér maka sjálfur, heldur láta forsjónina gera það, segir Gut de Maupassant i bráð- smellinni smásögu. Bakkus konungur valdi eiginkon- una fyrir aðalpersónu sögunnar — og tókst það með einstökum ágætum. Bangla Desh-hljómleikar Hljómleikarnir, sem George Harrison, Ringo Starr, Bob Dylan og fleiri heimsfrægar stjörnur héldu til ágóða fyrir Bangla Desh, þykir einhver bezt heppnaði popp- konsert, sem efnt hefur verið til. Við birtum frásogn og litmyndir frá honum næst. Hver næst? Vikan birtir svipmyndir af kunnum mönnum í formi persónulegra spurninga. Hver skyldi verða fyrir valinu í næsta blaði? Hvað gerist? Framhaldssagan um frönsku kennslukonuna og nemanda hennar, sem hún verður ást- fangin af, er hafin. Hvað skyldi gerast í næsta hluta hennar? sagði hann svo. Já, horfðu svo á mig. Hann leiddi hana að speglin- um. Hún sá þau, hlið við hlið. Hann setti upp valdsmanns- svip, til að sýnast eldri og það var ósköp barnalegt. En annars, já, hún sá ungan mann við hlið ungrar konu. Hún snerti ósjálf- rátt kinn sína með fingrinum .. — Fjandinn hafi það, við voru nákvæmlega jafn gömul fyrir viku síðan, jafnmikill ald- ursmunur á okkur. En engum datt í hug að leggja fram nokkr- ar spurningar þá. mér að kenna, ég hefði ekki átt að vera svona opinskár við þau. Við hefðum átt að fara meira með leynd. — Nei, sagði Daniéle áköf. __Maður verður að taka því sem að höndum ber. Ef maður heldur einhverju' leyndu, slepp- ur maður við spurningar, en það er nauðsynlegt að hafa spurningar, þá hefir maður meiri möguleika á að finna rétt avör. Faðir þinn hefir lagt fyr- ir okkur spumingu, við verðum að finna rétt svar. Gérard hló, svolítið háðslega. — Faðir minn hefir ekki lagt neina spurningu fyrir okkur. Hann vill heldur ekki heyra svarið... — Við verðum þá að láta sem hann hafi spurt. En ég er ekki viss um svarið. Faðir þinn minnti á nokkuð, sem ég hafði gleymt... Gérard leit spyrjandi á hana. — Aldur minn, sagði Dani- éle. — En það er hlægilegt, sagði ' Gérard. — Líttu á sjálfa þig, — Mér var þetta ekki ljóst fyrir viku. Mér fannst allt ó- sköp eðlilegt þá. Hún færði sig til hliðar og hristi sig. -— Ég þarf að fá ferskt loft, sagði hún. Jafnvel gæzlufólkið í Jardin des Plantes var í verkaflli. Verðirnir sátu að dominospili fyrir framan varðklefann, sem var prýddur rauðum klút í fána stað. Það brakaði í mölinni undir fótum þeirra. Gérard tók hönd hennar. Hún dró hana ekki til sín, en hún þrýsti ekki heldur hönd hans. — Sjáðu til, sagði hún, — áð- ur hugsuðum við ekki svo mikið um þetta. Það gprum við nú. Við ákveðum að hittast. Það gerum við í ákveðnum til- gangi. Það getur verið að við verðum að ákveða að hittast ekki oftar. — Við förum nú ekki að hlaupa eftir skipunum föður mins, eins og krakkakjánar! Daniéle nam staðar og virti hann fyrir sér. — Það er ekki spurning um að hlýða eða óhlýðnast, sagði hún. — Það eina sem gildir er að við svíkjum ekki okkur sjálf. Hún gekk af stað aftur. Gér- ard tók í arm hennar og hélt henni til baka. — Ég er ekki að svíkja sjálf- an mig! sagði hann æstur. — Ertu viss um það? Ertu viss um að þú sért ekki ein- göngu að þrjózkast við föður þinn ... Gérard sneri henni við og vafði hana örmum. Hann ætlaði að loka munni hennar með kossi en hætti við það og horfði í alvar'eg augu Daniéle. Spenn- an í svip hans hvarf og glað- legt bros ljómaði á ásjónu hans. —. Það er furðulegty sagði hann lágt. — Ef faðir minn hefði ekki þrumað yfir mér, þá hefði mér kannski aldrei orðið ljóst að ég elska þig ... Framhald i nœsta blaði. 50 VIKAN 9. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.