Vikan


Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 13

Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 13
til að virða fyrir sér nýju kennslukonuna. Daniéle gekk ákveðnum skrefum upp að kennaraborðinu og tók nýja krít, sneri svo baki í alla þrjá- tíu nemendurna og skrifaði á svörtu töfluna: FRELSI ER HUGARÁSTAND (Paul Valery) Svo sneri hún sér við. — Hvað segið þið um þetta? sagði hún svo. Umræðurnar héldu áfram á kaffihúsinu. Þau yirðast taka mig fram yfir billjardstofuna, hugsaði Daniéle og taldi þau sem sátu í kringum hana. Það voru sex piltar og fimm stúlk- ur. Þeim var frjálst að fara eitt- hvað annað. En það var greini- legt að þau höfðu áhuga á henni og það voru ellefu manns, hugs- aði hún, það var betra en nokk- ur doktorsgráða. Hún brosti. Það var gott að hún stakk ekk- ert í stúf við þau, þarna ríkti fullkominn skilningur. En hún vissi að almenningur myndi taka til þess, tala um að hún færi með nemendum sínum á kaffihús. En það gerði ekkert til. Hér segja þau mér hug sinn allan. Nú voru þau að tala um fjárhagshliðina. — Þér segið að maður vinni til að framfleyta lífinu, þér þor- ið ekki að segja að maður vinni til að auðgast, sagði ein stúlkn- anna. — Ég leyfi mér ekki að segja það, Therése, vegna þess að það er ekki satt. — En þér, sagði Gérard, — hve mikið fáið þér í laun? Álíka mikið og verkstjóri? — Já, álíka mikið. — Væri ekki betra ef þér hefðuð tíu sinnum hærri laun? spurði Marc. — Bæði já og nei. Mér þætti leitt að verkstjóri fengi tíu sinnum lægri laun en ég. — Það eina rétta er að allir fái meiri laun, sagði háðsleg rödd, en enginn hló. Daniéle fékk sting í hjartað, það var engin lausn, það eru til önnur verðmæti en peningar og eign- ir. Hvernig átti hún að skýra það fyrir þeim? — Og ef aðeins eru til pen- ingar, sagði Gérard skyndilega, — þá er það kannski vegna þess að það eru engin önnur v^rð- mæti eftir. Það eru ekki lengur til eyðieyjar, enginn kærleiku.r, ekkert líf. . Hann roðnaði og bölvaði i huganum, feiminn vegna þess að hann hafði látið þessar hugs- anir í ljós. Öll hin töluðu hvert í kapp við annað. Daniéle horfði dálítið undrandi á Gérard. Svo hugsaði hún ekki meira um þetta og á næstu vikum gleymdi hún þessu. Herra Leguen var að stilla út í gluggann á bókaverzlun sinni. Hann var friðsamur og rólegur maður. Hann elskaði konu sína og var mjög ánægður með bók- salastarf sitt. Börn hans tvö, Sylvia og Gérard voru vel upp alin börn, skylduráekin og hon- um til mikillar gleði. Það var sjálfsagt að lofa unga fólkinu að skvetta úr sér, en hann hafði aldrei haft áhyggjur af börnum sínum, enda höfðu þau visst að- hald. Hann setti alltaf eitthvað af framúrstefnubókmenntum í gluggann sinn og sjálfur var hann yinstri sinnaður, en hann fyrirleit ofbeldi. Hann hallaði sér upp að dyra- póstinum, fékk sér svolítið ferskt loft, meðan hann reykti síðustu sígarettuná af fjórum, sem hann skammtaði sér yfir daginn. Það heyrðist í bílflautu. Herra Leguen tók sígarettuna úr munninum og hneigði að- eins höfuðið, til að sýna að hann hafði tekið eftir farþeg- um bílsins. Frú Leguen leit líka út um gluggann á annarri hæð, en Sylvía, sem var þrettán ára, þaut niður stigann. Hún hljóp i gegnum búðina, kyssti föður sinn á kinnina og flýtti sér upp i bílinn. Daniéle sat við stýrið og Gérard við hlið hennar, það var líka hann sem hafði flaut- að. Herra Leguen brosti glað- lega, þau voru ánægð og áhyggjulaus. Hann var líka stoltur yfir því að kennslukon- an, sem var mikils virt sem kennari, skyldi umgangast börnin hans. Það hlaut að vera gott fyrir þau. Herra Leguen veifaði glaðlega, þegar Renault- inn ók frá húsinu. Veturinn hafði verið mildur. Klíkan frá kaffihúsinu, með Daniéle í broddi fylkingar, fór í skíðaferð upp í Alpana. Á daginn héldu þau til í skíða- brekkunum í svimandi hæð og á kvöldin hittust þau við borð á barnum, alveg eins og á kaffi- hpsinu heima í Rouen, en nú voru þau rjóð í kinnum af úti- verunni. Á miðnætti árið 1967, kysst- þau oll, og Gérard, sem þgfði lagt armana um axlir Daniéle, fann ýlinn og mýkt- ina frá líkama hennar undir þu.nnri þlússunni. Hann þrýsti henni fastar að sér. — Gleðilegt ár, madame, sagði hann hátt, en hann fann til taugaóstyrks. Nokkrum dögum síðar voru þau öll komin í skólastofuna, þar sem steinveggirnir voru alltaf rakir. Það skéði ekkert markvert, það var engu líkara er. að tíminn stæði kyrr; þó hafði einhver málað eggjunar- orð á vegg í Nantes og í febrú- ar voru fyrstu flugritin send út, flugrit, sem voru undanfari hinna örlagaríku uppþota við frönsku háskólanna. Hafið þér lesið Lenin? skrif- aði herra Leguen á svörtu töfl- una í sýningarglugga sínum. Það brast í transitortækinu bak við bóksalann. Það var að liða að fréttatíma í útvarpinu. Herra Leguen hafði eitthvert hugboð um það sem efst var á baugi í fréttunum. — Það verður bylting, hafði Gérard sagt kvöldið áður. — Bylting er allt annað, svaraði Leguen alvarlegur i bragði. — Það er ekki hægt að gera byltingu á einum degi. — Þetta eru ekki lengur kröfugöngur, það er uppþot! skaut Gérard inn í. — Já, já, við skulum segja að það séu uppþot. En hvað með verkamennina? Það heyrðist í bílflautu fyrir utan og hann sá son sinn flýta sér til dyra. Strákskömminn! Það hlaut eitthvað að vera að ske. Gérard stökk upp í bílinn, sem beið hans. Daniéle sat við stýrið og lék sér að flautunni: — Þetta er aðeins upphafið, við höldurn haráttunni áfram'. Herra Leguen hristi höfuðið imeð föðurlegum svip og veifaði vingjarnléga til hennar. Áður én Gérard steig upp í bílinn, leit hann upp í glugg- ann, þar sem móðir hans stóð. Hann kvaddi hana með því að rétta upp krepptan hnefann og brosti. Nú var hann búinn að láta sér vaxa skegg. Börnin og heimurinn breyttu um útlit. Dauft bros lék um andlit frú Leguen, en það hvarf fljótlega. Gérard settist upp í Renaultinn. Daniéle varð að hemla, þegar hún hafði ekið nokkur hundruð metra, það var alger umferð- arhnútur. Nú voru slagösðin orðin hátt- bundin og bílflauturnar tóku undir hróp þeirra sem voru í kröfugöngunni. Daniéle lét bíl- flautu sína taka undir. Fimm hundruð metrum frá þeim hafði einhver kastað steini í lögreglu- þjón, en Daniéle og Gérard vissu ekki um það. Lögreglan svaraði með táragassprengjum og lögregluþjónarnir óðu fram í gasmekkinum. — Gestapo! öskraði mann- fjöldinn. Daniéle sveigði bíln- um inn á hliðargötu og ók til skólans. Þau óku inn um hliðið, þar sem rauðu og svörtu fánarnir blöktu hlið við hlið. Verðirnir voru farnir, en í þeirra stað stjórnuðu nokkrir nemendur umferðinni. Kennararnir stóðu nokkuð afsíðis og Daniéle fór til þeirra. Hún átti erfitt með að láta heyra til sín, hávaðinn frá hópnum, sem hafði tekið sér stöðu fyrir framan skólann jókst. — Guénot er með okkur! hrópuðu skyndilega nokkrir nemendanna. Daniéle leit hikandi á þá en sneri sér svo að samstarfsmonn- um sínum. Hún brosti vand- Framhald á hls. 49. Umræðurnar héldu áfram á kaffistofunni. Þar fann Daniéle að þau tóku hana í sinn hóp . . . 9. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.