Vikan


Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 7

Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 7
— Hafið þér sambönd eða samvinnu við ónnur lönd? — Já, í tvö síðustu ár hefi ég haft árangursríkt samstarf við erlenda vísindamenn. Rann- sóknir í Bandaríkjunum eru komnar á miklu hærra stig en hér í Svíþjóð, þegar átt er við „lífið eftir dauðann“. Ég hefi oft aðstoðað vísindamenn í rannsóknum þeirra og mun gera það í ríkara mæli í framtíðinni. Tækniþróunin fer vaxandi og hæfileikar mínir geta orðið að gagni. — Hvað álítið þér það mikil- vægasta af því sem komið hefir fram? — Fyrir mörgum árum var mér sagt að um fimmtugt myndi ég aðstoða visindamenn við dul- rænar rannsóknir. Þá fannst mér það ótrúlegt, en nú, þegar ég er orðin 48 ára, er þetta orð- Þau sambönd, sem ég hefi er- lendis, eru mjög mikilvæg. í Bandaríkjunum er allt annað viðhorf til þessarra rannsókna, en það getur liðið langur tími þangað til hægt verður að leggja fram haldgóðar stað- reyndir. Fram að þessu er það eina sem við getum sannað að þessi hárfínu tæki, sem við not- um, nema vel sambandið við heim hinna látnu. — Hefir yður nokkur tíma misheppnast? — Það get ég ekki sagt, en stundum hefi ég misskilið þann boðskap, sem ég hefi fengið. En ég er á framfarabraut. Ég hefi lært mikið, meðal annars að forðast þau áhrif sem undir- vitundin getur haft á miðils- sambandið. Ég er líka farin að skilja að óskhyggjan er tilgangs- laus. en finn alltaf nærveru hans. Ég skil það alltaf þannig að það sé hann sem flytur mér „hugs- anir“ frá andaheiminum. — Hvernig tekur fólkið á miðilsfundunum þessu? — Mjög misjafnlega. Þeir sem „hafa eitthvað á samvizk- unni“ eru stundum hræddir við mig. Þeir eru dauðhræddir um að „hinir látnu“ munu Ijóstra einhverju upp. Það er þá oft- ast hentugra fyrir þá að hinir látnu séu látnir. Margir halda líka að ég „sjái“ eitthvað með- an á miðilssambandi stendur. En það geri ég ekki, sem betur fer. Það er nóg að finna út- streymi frá svo mörgu fólki. Hroki og öfund gera þetta út- streymi óþægilegt og nóg er til af slíkum tilhneigingum. — Hvernig er þetta miðils- ástand yðar? kemur til mín. Ég verð að sinna þessu sambandi, svo lengi sem hann eða hún eru við. Það er fyrst þegar ég legg frá mér sím- ann að hversdagsleikinn kemur aftur til mín. Straujárnið, jú ég hafði ósjálfrátt tekið það úr sambandi, að minnsta kosti í þetta sinn. — Ef allir hafa einhvern verndarengil, hvernig skýrið þér þá allar þœr ógnir sem dag- lega ske? — Við megum ekki gleyma því að það eru mennirnir sjálf- ir, sem kalla allar þessar ógnir yfir náungann. Til að leita að einhverskonar rökum, verðum við að snúa okkur að endur- holdgunarkenningunni. Breyt- ingin skeður innra með mann- inum sjálfum. Ef hugsunin er góð, verður verknaðurinn eftir því. Ástandið í dag er þannig EG VEIT AÐ HINIR Frú Astrid Gilmark frá Uppsölum er þekktasti miðill í Svíþjóð og víða um heim. Sænska sjónvarpið tók nýlega upp klukkutíma þátt með henni. Hér svarar hún nokkrum spurningum um líf sitt sem miðill og hvernig það sé að umgangast jafnt lifendur og dauða, ef svo má segja... LÁTNU LIFA in staðreynd. Við tilraunirnar er notað EEG (elektroencefalo- gram, sem mælir heilastarfsem- ina) af mjög nákvæmri gerð. Það hefir margt merkilegt komið fram við þessar rann- sóknir, en þar sem þessar rann- sóknir eru ennþá á byrjunar- stigi, ef svo má segja, þá er ekki hægt að skýra ýtarlega frá þeim. En það er hægt að sanna að „eitthvað skeður“. Þessi ná- kvæmu tæki, sem mæla starf- semi heilans, taka fljótt við sér, þegar samfíand næst við hina framliðnu. Starfshópur- inn, sem er að reyna að gera ljósa þá atburði, sem mér finn- ast ósköp eðlilegir, hefir náð góðum árangri á mörgum svið- um. Ég vil alls ekki hafa neina leynd yfir þessum tilraunum, en við verðum að ná það greini- legum árangri, að vísindamenn- irnir, sem eru svo nákvæmir, verði ánægðir. Þar sem para- sálfræðin nýtur ekki mikilla styrkja ennþá, þá verðum við að fara varlega og kosta tilraun- irnar að mestu leyti sjálf. — Hafið þér sérstakan stjórn- anda og eru sannanir fyrir því? — í fyrstu voru það aðrir miðlar, sem sáu hann. En svo hefir hann birzt mér tvisvar í draumi. Og eftir því sem mið- ilssamband mitt varð sterkara, hefi ég fundið meiri áhrif. Það skeði þegar ég sá hann raun- verulega í fyrsta sinn- Hann bað mig að kalla sig Caesar, en nafnið benti ekki á neina per- sónu, sem ég kannaðist við. Ég reyndi að leggja fyrir hann spurningar. En hann svaraði því að mér væri það nóg að vita að hann væri í þjónustu Krists og ætti að færa mannkyninu sann- leikann Ég væri aðeins verk- færi. Það verður að teljast rétt að hann er til. Aðrir miðlar (sem hjálpa mér) geta lýst honum, án þess að hafa samband hvor- ir við aðra og þeim ber alltaf saman. Ég finn alltaf fyrir honum, finn titring eða sveiflur frá honum. Ég sé hann ekki alltaf, — Það er mjög þægileg til- finning. Það er eins og mér sé lyft á vængjum, eins og að vera laus við líkamann og það er stórkostleg tilfinning. í miðilsástandi er eins og vit- undin flytjist til. Ég hefi oft óskað þess að geta notað þetta ástand fyrir sjálfa mig. Ég á, til dæmis son í Ástralíu, ég gæti þegið að „heimsækja" hann. En slíkt get ég ekki ákvarðað sjálf. Ég er og verð venjuleg sænsk húsmóðir, sem hefi verið kjörin til þess að flytja boðskap frá öðrum heimi. Stundum finnst mér þetta ástand óbærilegt. Það getur hent að ég sé í sakleysi að strauja þvottinn minn og þá hringir einhver kona til mín og mig langar mest af öllu til að segja henni að ég sé upptekin. Ég stend þá hikandi, man ekki einu sinni hvort ég hefi tekið straujárnið úr sambandi. Svo finn ég þennan titring og hinar hversdagslegu hugsanir hverfa mér, og hinn látni sem konan er að spyrja um, að hið góða er oft troðið í svað- ið. En í öllu þessu öngþveiti bjargast þó sumir á yfirnáttúr- legan hátt og þá er það sem við tölum um „óskiljanlegt lán“ og „ vérndarengla". — Eruð þér hrœddar við dauðann? — Nei, síður en svo, þótt ég elski lífið. En ég hefi sjálf heim- sótt þann heim, sem ég kalla „hin björtu heimkynni". — Vitið þér nokkuð um yð- ar eigin framtíð? — Já, ekki get ég neitað því. En ég held að það sé yfirleitt ekki hollt fyrir manneskjurnar að vita fyrirfram atburði líð- andi dags. En samt getum við ekki skotið algerlega frá okkur hugsuninni um komandi kyn- slóðir. — Getið þér gefið upplýsing- ar um óupplýsta glœpi? — Ég hefi oft verið beðin um það. Ég hefi líka verið beðin að finna týnda ketti og ótrúa eig- inmenn. Það get ég ekki. Ég hefi ekki hlotið slíka „hæfi- leika“. 9. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.