Vikan


Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 10

Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 10
Hreyfingar Chevaliers á sviðinu, þegar hann dansaði og veifaði strá- hattinum, urðu smátt og smátt sigildar. Hér tekur hann sporið með Sacha Distel. K Þetta eru elztu myndirnar, sem til eru af leikaranum Maurice Chevalier. Hann er aðeins tólf ára í elskhugahlutverki. Mynd- irnar fundust ekki fyrr en mörg- um áratugum síðar — og Cheva- lier var sannarlega skemmt, þeg- ar hann sá þær. iega gripinn leiksviðsskrekk. Þá tilfinningu yfirvann hann með því að leiða hugann að hinu iöngu liðna þunglyndis- tímabili. Að baki hinni ótrúlegu at- orku Maurice Chevaliers lá ó- seðjandi þörf til að nema og fræðast. Skólaganga hans var ekki löng, en hann bætti það upp með sífelldri þekkingarleit. Þegar gamall vinur hans einn, leikarinn Charles Boyer, benti honum á, hversu mikinn fróð- leik mætti afla sér með bók- lestri, þá hóf Maurice að lesa bækur fyrir alvöru og smátt og smátt eignaðist hann hið ágæt- asta bókasafn. Lestraráhugi hans olli því, að hann varð líka gripinn löngun til að skrifa. f fyrstu skrifaði hann ekki fyrir aðra en sjálfan sig, þvi að skriftirnar léttu á hjarta hans og veittu andlegri starfsorku útrás. En að því kom, að þekktur franskur útgefandi taldi hann á að safna saman hugleiðingum sínum og fá þær gefnar út á prenti. Bókin sá dagsins Ijós. Hún fékk góða dóma og seldist vel. Fieiri bækur komu því á eftir. Sú síðasta heitir „80 Berges“, og þar segir Chevalier meðal ann'ars' „Aldrei hef ég litið á mig sem rithöfund. Ég hef skrifað til að hjálpa mér áð finna sjálfan mig. Og hver veit nema hinar opin- skáu játningar mínar geti orð- ið til þess, að einhverjir aðrir eigi auðveldara en áður með að meta hið góða í tilverunni.“ Maurice lagði sig fram um að læra eitthvað af hverjum þeim, sem hann umgekkst. Gestir þeir sem hann bauð til snæðings með sér, voru úr ýmsum þjóð- félagsstéttum. Hann drakk reið- innar ósköp af kaffi og kaffi- kannan hans var stór og marg- brotin, nánast vél, eins og þær sem við sjáum á veitingahúsum. Þegar gestirnir skoluðu niður hverjum kaffibollanum á fætur öðrum, var húsráðandanum skemmt. Aldrei tókst honum betur en þá að halda uppi skemmtilegum samræðum. Afstaða hans til ellinnar var beggja blands. Eitt sinn sagði hann um hana: „Þar sem maður hefur ekki vald yfir tímanum, er bezt að sleppa alveg að ergja sig yfir, bvað hann líður stund- um fljótt.“ Oðru sinni sagði hann hins vegar: „Ef maður fylgist ekki með tímanum og því sem lífið hefur upp á að bjóða, þá er manni ofaukið í tilverunni.“ Enska leikkonan Hermione Gingold, sem söng með Maurice dúettinn skemmtilega í kvik- myndinni „Gígí“, gleymir al- drei morgninum, þegar hún birtist í leiksalnum klukkan sex, klædd gömlum síðbuxum og ópúðruð í framan. En þá var Maurice þegar mættur, ó- Á hinum glöðu millistríðsárum var Chevalier þegar orðinn heimsfrægur skemmtikraftur og persónuleiki. Þessi mynd er tekin árið 1924, og hann er þarna að skemmta með Dolly-systrum. 10 VIKAN 9. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.